24.5.2012 | 13:30
taekwondo og ball í dag
Fjölskyldan horfði á júróvision, borðaði næstum heimagerða pizzu ( botninn keyptur tilbúinn ) og tortillakökur með fyllingu inni í stofu.
Drukkum gos með og fylgdumst með keppninni.
Annar sonurinn lét álit sitt í ljós öðru hvoru :
" hún er bara rammfölsk " Grikkland. ( ekki gat mamman heyrt það )
" hann er eins og einn í Pollapönk " um íslenska bakraddasöngvarann Gísla Magnason.
" það er eins og henni hundleiðist á sviðinu " um hina 17 ára belgísku söngkonu.
Annars var hann nokkuð sáttur.
Síðasta æfingin í taekwondo fyrir sumarfrí í dag og svo próflokaball frá 18-20 í kvöld. Síðasta prófið var í dag.
Það er opin sjoppa á ballinu, það er mikilvægast !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2012 | 13:03
Styttist í sumarfrí hjá bræðrum
Bræður telja dagana þar til kemur að sumarfríi. Eru samt andlega löngu hættir í skólanum, vilja vaka fram á kvöld og annað hvort horfa á sakamálaþætti í sjónvarpinu eða vera úti eftir kvöldmat og leika.
Uppstigningardagur ( og frí í skólanum ) á fimmtudag. Starfsdagur (og frí í skólanum ) á föstudag. Svo helgarfrí og ekki mæting í skólann fyrr en kl 10 - því það eru komin próf
. Bræður voru kyrrsettir heima að læra fyrir íslenskupróf í smá stund um helgina. Annnar sonur átti að vera að lesa sögu um miskunnsama samverjann
" mamma, A (bekkjarsystir) segir að maður fái að skera í rottu eða músarheila þegar maður kemur í níunda bekk " - umrædd bekkjarsystir á reyndar systkini í nínuda bekk svo eflaust er þetta rétt en ef þetta er ekki merki um að áhuginn fyrir heimalærdómi ( og miskunnsama samverjanum ) sé enginn þá veit ég ekki hvað
norski bróðir og fjölskylda á Íslandi. Ekki náði ég að hitta þau svo viðkynning við nýja fjölskyldumeðliminn bíður betri tíma. Sem betur fer er sú stutta farin að vilja spjalla á skype svo ég reyni að hemja mig þar til ég fæ að strjúka fallegu krullurnar hennar. En til að taka af allan vafa þá langar mig líka að hitta foreldra hennar ! ÞIÐ ERU EKKI DOTTIN ÚR TÍSKU OG GLEYMD bara svo það fari ekki á milli mála.
í staðinn fyrir að bruna austur og eyða smá tíma með foreldrum og systkinum sat ég á bekk í íþróttahúsinu við Ásbrú ( gamla hersvæðið ) og horfði á bræður - ásamt fleiri börnum og fullorðnum - sparka og slá út í loftið. Það voru æfingabúðir í taekwondo og þeir sem mættu þar og stæðu sig vel yrðu verðlaunaðir með nýju belti.
( Beltin segja til um hversu langt einstaklingurinn er kominn í íþróttinni )
Bræður höfðu bæði gagn og gaman af og komu heim afar glaðir með nýtt (gult) belti eftir næstu æfingu.
Næstum komið alvöru pallaveður - garðhúsgögnin komu ekki vel undan vetri og bóndinn búinn að dunda sér við að pússa og bera á um helgina. - Veðurspáin alveg ljómandi fyrir næstu helgi. Þá fer maður örugglega út á pall.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2012 | 22:04
hrakfallavikan mikla.
Fjölskyldan, bæði unglingar og ellismellir fóru í klippingu í vikunni. Ef hárið hefði verið vigtað hefði það örugglega vegið eitt kíló, svo lubbaleg var fjölskyldan orðin.
75% af fjölskyldunni er líka búin að fara til tannlæknis, í eftirlit. Við hittum tannlækninn að sama tíma að ári þegar kemur aftur að eftirliti.
Sá stóri fann fyrir brjóstverk í vikunni og leitaði læknis að vinnudegi loknum. Fjölskyldusagan er þannig að það hringir viðvörunarbjöllum og læknar vilja skoða hann í hólf og gólf. Sem betur fer virtist allt vera í lagi en þar sem klukkan var orðin meira en miðnætti þegar læknisrannsóknum lauk ákvað sá stóri að vera heima daginn á eftir.
Þann dag sem sá stóri hvíldi sig var hringt úr skólanum - strákur hafði snúið sig illa á fæti. Sama dag fór ég með hann í Keflavík til að láta skoða fótinn - ef hann skyldi vera brotinn. Sloppaklædda fólkið taldi svo ekki vera. Amma í rauða húsinu á hækjur í barnastærð og þar sem tábrotni frændi var hættur að nota þær gat stráksi fengið þær lánaðar.
Á föstudegi var halti haninn ekki enn farinn að stíga í fótinn. Hinn sonurinn vaknaði útsteyptur í bólum og klæjaði ógurlega. Ég smurði hann með einhverju kremi sem átti að vera gott við kláða. Klukkutíma seinna var hringt úr skólanum - strákur orðinn viðþolslaus af kláða og doppóttur á efri hluta líkamans. Ég sat í stólnum hjá hárgreiðslufrænku sem var nýbúin að setja lit (til að fela gráu hárin ) í hárið á mér.
Elskulegur starfsmaður skólans smurði hann í meira kremi og gaf honum ofnæmistöflu. Einhvern veginn varð barnið að lifa þetta af þar sem móðirin var upptekin í fegrunaraðgerð og mátti ekkert vera að því að hugsa um barnið.
Þegar ég var orðin hæf til að láta sjá mig á almannafæri var brunað í skólann og báðir erfingarnir sóttir, áfangastaður heilsugæslan. Eftir samtal við hjúkrunarfræðing var doppótta syni skutlað aftur í skólann enda ljóst að ofnæmistaflan var að gera sitt gagn. ( sturtusápa með ilm og litarefnum sem sonurinn þvoði sér með kvöldið áður var tilnefnd sem sökudólgur )
Hinn sonur fékk ekki að fara úr bílnum - áfangastaður Keflavík þar sem myndataka var heimtuð. Myndatakan staðfesti að engin bein voru brotin en ung og elskuleg læknakona útbjó fyrir mig beiðni fyrir sérfræðing enda full ástæði til að að láta skoða fæturna á stráksa sem var að snúa sig á sama fætinum í 6 skiptið þetta skólaárið.
Fyrir utan þessar heilsufarsökuferðir, snúninga og áhyggjur þessa vikuna er ég líka búin að fara með hækjulausa soninn í Reykjavík þar sem hann spilaði fótbolta í grenjandi rigningu og roki og fara sitthvort kvöldið með sitthvorn soninn að sýna leikrit í Grunnskólanum.
Ef ég er ekki búin að vinna mér inn titilinn mamma skutla þessa vikuna þá veit ég ekki hvað 
Er annars bara nokkuð góð og vonast eftir að næsta vika verði rólegri.
Eftir næstu viku eru bræður svo komnir í páskafrí, þeir eru bara sáttir við það
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2012 | 13:26
Bergmálið hans Unnsteins
Þið fyrirgefið en ég get ekki vanist Umma nafninu. Geri mér hins vegar vel grein fyrir að í landi hinna teppalögðu baðherbergja þá er Unnsteinsnafnið ekki mjög þjált.
Ég er langt því frá að vera einhver tónlistarnörd en þetta höfðar til mín. set "like" á þetta.
http://ummig.com/?page_id=219
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2012 | 11:48
Hammond hátíð 2012 - dagskráin komin
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2012 | 23:48
Hvað er að skera undan mamma ?
spurði sonur þar sem hann las fyrirsagnirnar á mbl.is yfir öxlina á mér um helgina ?
Ég útskýrði það fyrir honum ( og hinum syninum líka ) á eins einfaldan hátt og ég gat. Sagði þeim efni fréttarinnar í stuttu máli. Bræður hrylltu sig og þótti verknaðurinn afar ljótur, sem hann auðvitað er.
Stundum koma örstutt augnablik þar sem ég er ekkert glöð yfir að bræður séu orðnir læsir. 
|
13 ára fangelsi fyrir að skera undan ástmanninum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2012 | 15:48
stutt og laggott
Bræður hafa haldið sig alveg á mottunni síðustu vikur og engar fréttir um óæskilega hegðun eða heimsóknir til skólastjóra.
Þeir æfa fótbolta og taekwondo af kappi - Spiluðu hér í Grindavík um síðustu helgi og spila aftur í Grindavík um næstu helgi.
Uppáhaldsfrændi spilar ekki með, hann braut á sér tána í síðustu viku.
óheppinn.
Sá stóri vann ekki í hreyndýralottóinu - en það mátti nú vona.
Ég gekk í bókaspjallshóp hér í bæ í síðasta mánuði og Slysavarnardeildina í mánuðinum þar á undan. Ætla að bjóða mig fram í stjórnarsetu í einum hóp í viðbót þennan mánuðinn.
Er farin að verða forvitin hverjir spila á Hammond - 
Ætla að elda grjónagraut í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2012 | 17:03
Skyldusparnaður
Stend í tiltekt, búin að henda slatta af gömlum pappírum en sumt verður maður að eiga !
Þarna var kominn hluti upp í útborgun á íbúð.
Ég var samt búin að taka út hluta af skyldusparnaðnum sem var notaður til að fjárfesta í Subaru Justy árg 1995 öðru nafni fótanuddtækið.
En nú sparar enginn neitt, tekur bara lán og meira lán.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2012 | 22:48
9 fótboltaleikir og 10. geup. gul rönd.
Sunnudagurinn var annasamur.
Mamman og bræður tóku daginn snemma, voru farin út úr húsi klukkan 8 um morguninn. Fyrst á fótboltamót í Njarðvík þar sem bræður voru búnir að spila 9 leiki klukkan rúmlega 12 á hádegi og einn leikur eftir.
Ekki gott því bræður áttu að vera mættir í annað íþróttahús klukkan 12,30 í sama bæjarfélagi til að taka fyrsta beltaprófið sitt í taekwondo. Það leit út fyrir vandamál því ef þeir hefðu yfirgefið svæðið hefði liðið verið einum færri.
Sem betur fer mætti Andri frændi snemma fyrir sinn riðil og auðvitað hljóp hann í skarðið og spilaði síðasta leikinn svo bræður gætu mætt á réttum tíma í prófið. Þarf ég að taka það fram að núna er hann uppáhaldsfrændi minn 
Bræður stóðust prófið og eru með skírteini upp á það að hafa staðist próf fyrir 10 geup, gula rönd.
Pabbinn var með stjórasímann og komst ekki með. Hundsvekktur yfir því.
Þegar hann er með stjórasímann þá er hann á bakvakt og verður að vera viðbúinn að rjúka í útkall eins og skot.
Þá þýðir ekki að vera á fjölskyldubílnum á íþróttamóti eða í einhvers staðar annars staðar.
Vonandi kemst pabbi með næst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2012 | 17:21
fékk tölvupóst frá báðum kennurum
Fyrsti tölvupóstur dagsins
" XY kom 12 mín. of seint inn í dag úr einum frímínútunum. Hann verður að laga þetta. kv kennari "
Ekki í fyrsta skipti sem þessi sonur kemur of seint úr frímínútum
Annar tölvupóstur dagsins
"YX skilaði sér ekki í 5. tíma. Þegar korter var liðið af tímanum fór ég út að leita og fann hann ásamt öðrum dreng út á leikvelli bak við hjólabrettarampana. Þar voru þeir að leika sér með Ipat sem hinn drenguinn hafði komið með. Þeir fóru í viðtal til skólastjóra. " kv kennari
Bræður ásamt fleiri strákum voru saman í frímínútum. Annar slapp við að heimsækja skólastjóra, hinn ekki.
Foreldraviðtöl í næstu viku, bræður eru ekkert sérstaklega spenntir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
kona á besta aldri
212 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Okursíða dr Gunna
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eva Laufey Kjaran
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 7
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 63
- Frá upphafi: 47495
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 58
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



drezi
gumpurinn
ellahelga
ragnhildur
eirag
topplistinn
ingahel-matur
jonaa
karljg