22.10.2009 | 18:07
Hvernig í ósköpunum fór fólk að með veik börn heima hér áður fyrr ?
Hef svo iðulega hugsað út í þetta þegar veikindi hafa stungið sér niður hérna og sjónvarpið/vídeó/dvd gengur "non stop". Geðheilsa mín, og sjúklingana væri komin langt út í buskann á fyrsta degi veikinda. En börnin hafa sennilega verið mun duglegri að hafa ofan fyrir sér sjálf - eitthvað sem allt of mörg nútímabörn kunna og geta ekki.
SÁ er búinn að vera heima í tvo daga - með hita og flensu. Ekki þessa sem er kennd við svín, að ég held allavega. Honum líður aðeins betur og amma í rauðahúsinu ætlar að tala að sér sjúklingapössun á morgun svo mamma komist í vinnuna.
Fyrri part vikunnar var hinn sonurinn slappur og sljór. Hann tók síðustu helgi og vetrarfríið fyrri part vikunnar í að liggja eins og skata( fyrir framan sjónvarpið, nema hvað ) með hitavellu en var orðinn nógu sprækur til að fara aftur í skólann í gær. Honum fannst frekar súrt samt að bróðir hans "fengi" að vera heima en hann yrði að fara í skólann.
Pabbi átti afmæli i gær - og vegna þrýstings frá fjölskyldumeðlimi varð ég að gjöra svo vel að snara fram eins og einni köku. Ekki gat ég boðið bóndanum upp á góða máltíð þar sem hann var að fara skólann og hafði ekki tíma til að borða. Lítið hátíðlegt við þennan afmælisdaginn.
Afi á Djúpavogi ( sem keypti sér mótorhjól i sumar ) meiddi sig á hendinni um daginn og var frá vinnu í nokkra dag. Ég fór að segja JA að afi hefði meitt sig í hendinni. " Datt hann á mótorhjólinu ?" spurði strákur. Það var alveg viðbúið að það yrðu einhver slys þegar afar tækju upp á því að keyra um má mótorhjólum á gamals aldri.
SÁ ætlar sér að læra að binda slaufur og reima skóna sína. Hann notar hvert tækifæri til að æfa sig og þar sem viljinn er töluvert meiri en stirðu puttarnir hans ráða við þá eru það ansi margir hnútarnir sem búið er að binda og mamma og pabbi hafa þurft að leysa.
Ætla að vera lásí húsmóðir og elda unna kjötvöru og þurrvöru. Sveitabjúgu frá Kjarnafæði og kartöflumús úr pakka verður á boðstólum í kvöld !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2009 | 22:00
Er ekki kominn tími til að
setja upp einhvers konar síu eða netvara þegar nýjustu leitarorðin á jútúb eru "sexy" eða "sexi" ? Norski bróðir var með ægilega fína grein og fullt af tenglum á blogginu sínu um daginn, eins gott að fara að leita.
Er búin að gera við og bæta 5 buxur af bræðrum í dag, auk þess að merkja tvenn pör af fingravettlingum og nýju úlpurnar sem bræður fengu í afmælisgjöf. Er bara nokkuð ánægð með mig. Stefni á að sauma og setja upp ný gluggatjöld fyrir baðgluggann á morgun. Verð ægilega hagsýn í kreppunni og sauma þau upp úr gömlum eldhúsgardínum.
Vildi að ég ætti koníak - eða Jameson, mig langar í heitan áfengan kaffidrykk. En hvorugt er á boðstólum svo ég læt bara pepsi max duga.
Best að athuga hvaða sjónvarpsrás er minnst leiðinleg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.10.2009 | 10:41
afmælisveisla, bíóferð, tannúrdráttur og barnamatur
Bræður eru orðnir 8 ára - ótrúlegt að það skuli vera orðin átta ár síðan við komum heim með í litlu íbúðina okkar í Reykjavík með tvo pínulitla stráka. Það var fallegur, sólríkur og dálítið kaldur októberdagur þegar við þrömmuðum með tvo ungbarnastóla upp á þriðja hæð, klæddum þá úr útifötunum og settum þá í rúmið ( þeir voru í sama rúminu fyrstu 3 mánuðina ) settumst fram í eldhús og horfðum á hvort annað með spurnarsvip og mér fannst við bæði hugsa það sama " og hvað svo " ?
Og síðan eru liðin átta ár - vá ! Bræður héldu afmælisveislu 9 okt og buðu 20 strákum í veislu á pizzastað þar sem þeir snæddu pizzu, franskar, kökur og nammi. Léku sér og ærsluðust auk þess að hlusta á Michael Jackson. Bræður voru jafn ánægðir með daginn eins og foreldrarnir voru uppgefnir. 2 klukkutímar með 20 orkumikla og óþæga átta ára stráka er ágætis skammtur.
á Sunnudeginum, afmælisdeginum sjálfum var svo búið að ákveða að fara í bíó og sjá Algjör Sveppi og leitin að Villa. Bræður skemmtu sér vel en foreldrarnir voru kannski ekki alveg eins heillaðir. Svo var endað á Kentökkí - að ósk bræðra og allir voru sáttir.
Þó svo bræður hafi hvorki fengið BMX hjól, leikjatölvur né fartölvur í afmælisgjöf þá voru þeir ánægðir með það sem þeir fengu - markmannshanska, íþróttasokka, geislasverð, úlpur og slatta af peningum. Eru búnir að kaupa sér sitthvort tölvuleikinn og fá að kaupa eitthvað meira en svo eiga þeir að setja afganginn í banka. Nú skal safnað upp í BMX hjól sem kostuðu allavega 50 þúsund kr stykkið í sumar, hver veit hvað þau koma til með að kosta næsta sumar
Á mánudagsmorgni lá svo leið okkar hjóna aftur á höfuðborgarsvæðið - ekki nein skemmtiferð samt, bóndinn átti bókaðaðan tíma hjá tannlækni sem sérhæfir sig í að skera tennur úr fólki. Tveimur tímum og tveimur tönnum seinna höldum við heim á leið aftur. Bóndinn ekki mjög frýnilegur á svipinn, bólginn í andliti með blóðugar grisjur í munninum auk þess sem göngulagið var ekki mjög stöðugt. En svoleiðist verða áhrifin af deyfilyfja- og róandi lyfja kokkteil í bland. Fyrsta daginn gat bóndinn engu komið niður nema AB mjólk. Næsta dag var AB mjólk líka á matseðlinum en um kvöldið fékk hann soðna sæta kartöflu sem var búið að stappa og smávegis af þurrsteiktu hakki saman við. Daginn þar á eftir var veisla - eggjahræra í hádegismat og svo heimatilbúin kartöflumús með stöppuðu soðnu grænmeti og maukaðri kjúklingabringu saman við. Bóndinn borðaði barnamatinn með bestu lyst.
Í gærkvöldi borðaði hann svo pylsur og kartöflumús með bestu lyst - enda ekki spurning að honum líður mun betur. Hann nýtur þess væntanlega einhverja daga í viðbót en það er ekkert langt í næstu tannlæknaheimsókn og þá verða fleiri tennur fjarlægðar. Sem betur fer er til starfstétt sem heitir tannsmiðir og einn af þeim kemur víst til með að smíða nýjar tennur í staðinn fyrir þær sem hverfa.
Ég ætla í sláturgerð næsta fimmtudagskvöld - með vinnufélögum. Ég mætti ekki í fyrra, en minning um sláturgerð og vambasaum frá matreiðslunámskeiði í Grunnskóla situr ennþá í mér og ég fæ ógleðistilfinningu við tilhugsunina. Nú ætla ég hins vegar að láta mig hafa það, enda tuttugu og eitthvað ár síðan og tími til kominn að vinna sigur á þessu. Svo fær maður líka hluta af afrakstrinum með sér heim og fellur vel í kramið hjá hagsýnu húsmóðurinni
Vetrarfrí í skólanum á mánudag og þriðjudag - ætla að hlekkja bræður heima fyrir hádegi meðan ég fer í vinnuna en leysa þá svo um hádegisbil. Fæ kannski lánaðar dvd myndir svo þeim leiðist ekki eins mikið.
Ætla að draga fram saumavélina á eftir og gera við buxur af bræðrum - einar 4-5 stk buxur sem þarfnast viðgerðar. En ætla aðeins út að hjóla fyrst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2009 | 23:33
óþægir illa innrættir glæpamenn ?
kannski full hart orðað en ég er að tala um afsprengin.
Síðustu tvær vikur hefur búðarþjófnaður, ljót og skammarleg hegðun gagnvart yngra barni í skólanum ( með tiltali frá kennara, skólastjóra og viðtali við deildarstjóra ) verið á dagskránni.
Til viðbótar ákvað annað afkvæmið að leika sér aðeins inni á baðherbergi. 1/2 túba af háreyðingarkremi og samsvarandi magn af raksápu ( fyrir konur ) var skolað niður um vaskinn og ca 1/3 af svokallaðri hitavörn ( hársprey sem er sprautað í hárið áður en maður notar sléttujárn ) var úðað yfir herlegheitin. Gat ekki krakkadýrið valið sér ódýran sjampóbrúsa úr Bónus í staðinn fyrir dýrustu vörurnar sem voru í hillunni ? Urr - ég var ekki glöð.
Til að toppa þetta var svo hringt í dag og ég beðin um að spyrja annan soninn hvort hann hefði tekið þátt í því að fara inn í vörubíl sem stóð fyrir utan heimahús, svona rétt á meðan bílstjórinn skrapp inn að fá sér kaffisopa.
I - the mother of the criminal twins !
Svo er ég búin að vera með súper túrbó magn af hor í nös þessa vikuna og það hefur ekki haft jákvæð áhrif á skap. En hvítlauks, engifers, pipars súpan sem ég kokkaði í gærkveldi gerði næstum því kraftaverk og ég er öll að komast í lag.
Styttist óðum í afmæli bræðra og þeir farnir að telja niður. Móðirin hefur stóra drauma varðandi veisluna og langar til að búa til vatnsslag, vatnsbyssustríð, drullukastkeppni og fleira skemmtilegt. Það er vonandi að veðurspáin verði áætlun minni hliðholl.
Sonur (sem er í tölvubanni) hringdi í mömmu þegar hann var búinn í skólanum í dag og spurði hvort hann mætti fara í tölvuna. Hann varð hinn fúlasti þegar ég minnti hann á bannið, kvartaði yfir ósanngirni og óréttlæti og skellti svo á. Ég horfði orðlaus á símann minn þegar ég uppgötvaði hvað hafði gerst. Hringdi þrisvar í hann en fékk bara talhólf. Sendi honum sms " Hringdu í mömmu strax " Hann má þó eiga það að hann hringdi strax til baka og þegar ég spurði af hverju hann hefði skellt á mig kom fýlulegt svar, " mig langaði ekkert að tala við þig " það var sko greinilegt að ég var hríðfallin af vinsældalistanum. En við ræddum þetta betur þegar ég var komin heim og hann lofaði að gera þetta aldrei aftur.
Fótboltinn er kominn í haustfrí - en fimleikaæfingar eru tvisvar í viku. Svo byrjaði annar sonurinn á "freestyle" dansnámskeiði í dag - hlakkar rosalega til að læra að dansa eins og Michael Jackson.
Stóri hamast við heimalærdóm - er í íslensku og dönsku þessa stundina og hefur meir en nóg að gera. Ég ætla ekki að segja hvað ég er stolt af karlinum mínum að drífa sig í nám á gamals aldri ( sorry honey ) en þetta er heilmikið átak að drífa sig í skóla eftir 30 ár, illa lesblindur i þokkabót.
krossbrá og pússaði gleraugun mín vel og vandlega þegar ég sá nýjustu myndir af norska bróður MEÐ ALSKEGG.
Bræður pöntuðu kvöldmatinn á morgun - annar vildi fá ávaxtasalat með súkkulaðispænum og þeyttum rjóma. Hinn vildi skyrsúpu með ávöxtum ( eins og hann gerði í heimilisfræðinni í skólanum í vikunni ) Það verður sem sagt tvíréttað á morgun, allavega.
vonandi verður næsta vika ( og bloggfærsla ) aðeins jákvæðari.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.9.2009 | 18:40
Við erum alveg eins og tvíburar
sagði annar sonur hálf glottandi þegar bræður voru á leið út, þegar í ljós kom að þeir voru nánast alveg eins klæddir, blár íþróttagalli, eins skór og samskonar svört yfirhöfn.
Mér fannst þetta fyndið þar sem því verður ekki mótmælt að bræður ERU tvíburar. Þegar þeir voru minni voru þeir reyndar mjög oft svipað eða eins klæddir. En eftir því sem þeir stækkuðu fjölgaði skiptunum sem þeir voru EKKI eins og það má segja að frá því þeir byrjuðu í skóla hafi þeir sjálfir séð um að velja sér föt og á tímabili gerðu þeir í því að vera EKKI eins.
En hún er lífsseig þessi "mýta" að tvíburar þurfi og eigi alltaf að vera eins. Ég man eftir að hafa fengið spurningu frá skólafélaga þeirra bræðra : Af hverju eru þeir ekki alltaf eins klæddir, þeir eru tvíburar ?
Tvíburar eru í fínu formi - fóru til Reykjavíkur með skólanum í vikunni. Strákur hringdi í mömmu sína þegar heim var komið úr ferðinni. Við spjölluðum um ferðina og strákur sagði mömmu frá því helsta. En hann geymdi það besta þar til síðast " mamma, veistu hvað við vorum heppnir , við fengum bæði pizzu, og og ís " Greinilega hápunktur ferðarinnar. !
Ég bakaði mjög óholla súkkulaði köku áðan, - en jemundur minn hvað hún var góð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.9.2009 | 12:45
Smá hláturskast er alltaf vel þegið
Þið óþolinmóðu - þetta fer fyrst að verða skemmtilegt þegar þrjár mínútur eru liðnar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.9.2009 | 18:40
Er sonur minn örugglega karlkyns ?
Einu sinni sem oftar hringir gsm síminn minn þegar ég er í vinnunni. Annar sonurinn greinilega kominn heim úr skólanum og þurfti ða spyrja mömmu að einhverju. Meðan hann talar heyri ég hljóð í rennandi vatni og spyr hann hvar hann sé og hvað hann sé að gera. Hann verður örlítið vandræðalegur " eeh ég er bara að pissa "
Næstum átta ára að tala í símann OG pissa !
það vita nú flestir ( allavega konur ) að karlmenn geta ekki gert tvennt í einu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.9.2009 | 19:50
óþægðar og skammartölvupóstar
fyrstu póstar þessa skólaárs eru farnir að berast úr skólanum.
Einn póstur vegna óþægra stráka á leið í íþróttir ( minn sonur einn af þeim ) Annar póstur til mömmunnar sem gleymdi að senda hinn soninn með íþróttaföt
Skólinn byrjaði í síðustu viku, hvernig verður framhaldið eiginlega
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.9.2009 | 08:52
Ég nenni ekki í skólann
sagði úrillur strákur í morgun. Nú af hverju ekki, vinur sagði mamman blíðlega ( búin að læra að reynslunni að silkihanskar eru yfirleitt það eina sem dugar á þennan strák á morgnanna )
" Bara" sagði strákur fúll og breiddi sængina upp fyrir haus. Ég skreið upp í rúm til hans og spurði " eigum við skrópa " ? Hvað er að skrópa sagði strákur og horfði hissa á mömmu sína. " Það þýðir að þú mætir ekki í skólann og ég mæti ekki í vinnuna. Við verðum bara heima, læsum húsinu og förum ekki til dyra ef einhver kemur. Ef síminn hringir þá svörum við heldur ekki.
Strákur hugsaði sig um smá stund en spurði svo , hvaða dagur er í dag ? Þegar kom í ljós að það var fimmtudagur þá brosti strákur og sagði, ég ætla að fara í skólann, kannski er grjónagrautur í matinn ? ( Alltaf grjónagrautur annan hvern fimmtudag í matnum í skólanum )
(tilhugsunin um að vera heima heilan dag, innilokaður í húsinu með mömmu var greinilega ekki mjög freistandi fyrst hann tók mögulegan grjónagraut fram yfir það.) Ég setti upp falskt bros bros og sagði " já kannski " vitandi það að það væri fiskur í matinni í skólanum í dag.
En strákur fór í skólann með bros á vör - viðbúið samt að hann brosi ekki eins breitt þegar hann sér hvað er í matinn !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2009 | 17:56
Má ég sjá
með Mækel Djakkson þar sem líður yfir allar konurnar sagði tæplega átta ára sonur í dag. Ég hélt það nú og við mæðginin horfðum saman á nokkur myndbönd með Mikka. Sonurinn er orðinn mikill aðdáandi poppgoðsins og á það til að taka nokkur dansspor, svona þegar hann heldur að enginn sjái !
En þar sem við sátum og dáðumst að dans og söngfimi poppgoðsins heyrist allt í einu í stráksa " ég vildað hann værekki dauður, þá myndi ég fara á alla tónleika meðonum " En Djakkson er dáinn þó svo hann sé ekki grafinn ennþá ( hvort skyldi hann vera geymdur í kæli eða frysti ) og útséð með það að strákur fari á tónleika með honum. Verður að láta sér nægja að horfa á hann á www.youtube.com.
Stóri sér fram á annasaman tíma, kvöldskóli í Reykjavík 2-3 í viku fram í byrjun des. Honum líst vel á námið og uppbygginguna á því en fórnarkostnaðurinn er mikill. Sleppa lax veiðiferðinni í sept og engin rjúpa fyrir austan í nóv. Helv...... hart !
Hélt að stóri yrði í Reykjavík í kvöld og sá fram á léttmeti í kvöldmat fyrir mig og bræður( við fengum öll heitan mat í hádeginu ) en nei nei. Stóri verður mættur um kvöldmat svo það er eins gott að koma sér að eldavélinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
kona á besta aldri
189 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar