önnum kafin húsmóðir í sumarfríi

Ég er í sumarfríi - bóndinn búinn að liggja veikur í lungnabólgu í meira en tvær vikur svo ekki höfum við lagt land undir fót.  Bóndinn búinn að liggja að mestu kappklæddur undir teppi og horft á sjónvarpið.  Ekki skemmtilegt þegar hitinn fer yfir 20 stig og aðrir fjölskyldumeðlimir ganga um léttklæddir og sólbrúnir.  En sem betur fer er bóndi að hressast og stefnan er að mæta í vinnu á mánudag ( hvort sem það gengur eftir eða ekki )

Bræður fara seint að sofa, sofa frameftir, mæta á fótboltaæfingar og leika við vini.  Nóg að gera.  Þeir eru líka endalaust svangir og ég upplifi sumarfríið dálítið eins og endalaust streð í eldhúsinu, taka til mat, elda mat, ganga frá mat, ákveða hvað á að vera í matinn og síðast en ekki síst að kaupa mat.    Svo hefur hirðing og umsjón nagdýranna í bílskúrnum bæst á mínar herðar meðan bóndinn hefur verið veikur.   Mikil afslöppun GetLost

Amma að austan er farin en hún var hjá okkur í viku, var sátt við veðrið og skilur afskaplega vel af hverju ég er svona ánægð með nýja pallinn Smile  Norski bróðir og frú eru komin til landsins og voru hjá okkur eina nótt.  Afskaplega gaman að sjá þau og þau ægilega glöð að vera komin til landsins.   Voru búin að drekka appelsín í gleri, borða íslenskt nammi, borða silung og fá sér SS pylsur ( eða pulsur, er ekki viss ) og skola þeim niður með kókómjólk áður en þau yfirgáfu Suðurnesin.  Svo heimsótti norski bróðir sundlaugina og heita pottinn.  Hann lét nú reyndar ekkert of vel af heita pottinum, sagðist hafa hrökklast upp úr pottinum með eyrnaverk þar sem hávaðasöm frú lét gamminn geysa.  Á leiðinni heim úr sundi reyndi svo önnur frú að keyra hann niður þar sem hann gekk í rólegheitum yfir götu með græna karlinn brosandi á móti sér.  Norski bróðir og grindvískar frúr virðast ekki eiga samleið.Blush

Naggrísum fækkaði stórlega þegar ung og falleg stúlka af höfuðborgarsvæðinu sótti sexburana og fór með þá.  Ég var ægilega ánægð  og verð ennþá ánægðari ef ég losna við fleiri. Er með tvö fullorðin karlkyns dýr og tvo unga ( kk og kvk ) sem þurfa nýtt heimili. 

Keyrði ömmu að austan til Reykjavíkur í gær, við fórum í nokkrar búðir en heimsóttum svo mægður kenndar við Holt og áttum góða stund með þeim úti í garði.  Það er sko ekki bara ég sem á nýjan pall. 

Jæja, ætli ég verði ekki að fara í búð og sækja eitthvað matarkyns áður en afleggjararnir koma heim af fótboltaæfingu.  Viðbúið að þeir verði að drepast úr hungri.  

kv húsmóðir í sumarfríi


Ættfræði ?

 " er amma að austan tengdaamma okkar " ?   Nei, ekki vildi ég nú kannast við það, hún væri bara venjulega amma.  Veit svo sem ekki hvað blessað barnið var að spá en hún amma að austan er tengdamamma hans pabba svo það er kannski ekki skrítið að barnið ruglist í þessu...........

En hann var ekki hættur að hugsa um ættfræðina.  " Mamma, eigum við ekki frænku í ríkisstjórninni" ?  Jú, hún var í ríkisstjórninni en hún er veik núna.   " já alveg rétt, Jóhanna Guðrún er það ekki" ?    Neeeeei, ( ég barðist við að vera alvarleg )  hún heitir Ingibjörg Sólrún.   " já Ingibjörg Sólrún Gísladóttir " sagði strákur og var þar með hættur að spá í ættfræðina.   

 


Fá afrit af Eið Smára ?

Eins og fram hefur komið á þessu bloggi fengu bræður eiginhandaráritun hjá Eið Smára á fótboltamóti á Akranesi fyrir skemmstu.  Stuttu seinna komu þeir félagar Eiður Smári, Sveppi og Auddi með smá sprell eða styrktarhátíð á fótboltavellinum hér í Grindavík.  Þar kræktu nokkrir séðir krakkar sér í áritun líka.  En síðan þá hefur bræðrum dreymt um að fá afrit ( á blað ) af Eið Smára, Ronaldo, Torres og fleiri góðum mönnum.  Pabba líst bara vel á þetta og sér fram á fullt af peningum þegar hann kemur "afritunum" í verð.

Um kvöldmatarleytið var ég spurð hvort það væri hægt að rísa upp frá dauðum og hvað það væri eiginlega.  Ég ákvað að svara neitandi en var í huganum farin að rifja upp kristinfræðina þegar sonurinn bætti við spurninguna: ekki heldur Mækel Djakksson ?  Ég svaraði áfram neitandi ( og hætti hið snarast að hugsa um kristinfræðina ) og stráksi var sáttur við svarið.  Hlakkaði til að fara út eftir matinn og segja vinkonunni að Mækel Djakksson væri örugglega dáinn og gæti alls ekki risið upp frá dauðum.

Þurfum að vakna sérlega snemma á morgun og vera mætt í Reykjavíkina - Amman að austan er nefnilega búin að tilkynna komu sína og kemur með flugi í fyrramálið.   Ætla að nota ferðina og fara í matvörubúð, það er nánast búið að sleikja innan úr ísskápnum, hann er svo tómur.

Kláraði síðasta bakkelsið úr frystinum í dag, gaf 5 strákum köku úti á palli í dag.  Neyðist greinilega til að baka eitthvað fljótlega. GetLost

 


loksins út á pall

Eyddi föstudeginum að mestu leyti úti á palli, fyrir utan að þvo þvott og hengja út, brjóta saman, elda mat og ganga frá, fara í búðina og versla, gefa nokkrum krökkum að drekka ( úti á palli reyndar ) og ganga frá eftir það, skipta á öllum rúmum, þrífa baðherbergið og bera nokkuð margar fötur af vatni út, en bræður og vinir eru í óða önn að búa til stökkpalla og gryfjur úti.  Fór líka og horfði á fótboltaæfingu hjá bræðrum.   Fékk reyndar vinkonu í heimsókn fyrir hádegi Smile og við áttum notalega stund - úti á palli nema hvað.  Ekki ónýtt að fá góða gesti sem þar að auki koma með glænýtt, volgt heimabakað bakkelsi með sér.  Takk mín kæra.

Segið svo að það sé ekki ljúft að vera í fríi og afslöppun úti á palli Whistling

Bræður hafa að einhverju leyti fyrirgefið mömmu að hún skuli vera í fríi, það er gott að fá mat í hádeginu og svo hefur sú gamla stundum leyft þeim að fara í tölvuna.    Bræður fengu nýjar gerfigrasbuxur í síðustu viku og nú í vikunni fengu þeir nýja skó.  Allt keypt í sömu búð, í Reykjavík en þar fær Grindavíkurliðið afslátt.  Skóinnkaupaferðin gekk reyndar dálítð brösótt  -   við vorum einni götu frá áfangastað þegar einkenni koma úr aftursætinu um að strákur þurfi að gubba.  Ég beygi inn á næsta bílastæði og þá kemur gusa Sick  Ég stoppa og segi við strák " opnaðu hurðina " og næsta gusa lendir bæði á hurðinni og bílastæðinu.  Bræður fara út úr bílnum og SÁ situr fölur og ræfilslegur á gangstéttinni meðan ég hreinsa það sem hægt er að hreinsa.   " Mjólkurvörur" stynur stráksi svo upp og það passar.  Bræður höfðu borðað dísæta bónus súrmjólk í hádeginu og það var nóg.  Reynslan hefur kennt okkur það að sætar mjólkurvörur og bílferð endar undanatekningalaust með því að einhver gubbar.   Við ljúkum erindum okkar í Reykjavík og höldum heim á leið.  Þegar ca 7-8 kílómetrar eru eftir heim gubbar strákur aftur og aftur.  Sick  Lyktin í bílnum var ekki góð og hinn bróðir átti í mestu vandræðum með að gubba EKKI, bróður sínum til samlætis.   En þetta jafnaðist fljótt þegar heim var komið og bræður vildu endilega fara út í nýju skónum sem þeir voru hæstánægðir með.   Bíllinn var þrifinn og töframeðal sem bóndinn lumaði á losaði alla gubbulykt úr bílnum.

Sætar mjólkurvörur:  leyfði bræðrum í gær að fá eftirmat, jógúrt að eigin vali, ( grillaðir hamborgarar í hádeginu ) og þeir völdu sér hrísmjólk með karmellusósu.   Eftir hálfa dós vildu þeir ekki meira.  Fannst þetta greinilega allt of sætt.    Dísætar íslenskar mjólkurvörur er hins vegar efni í annað blogg og bíður betri tíma.

Annars hefur þessi vika verið dálítið blaut - en á maður ekki að vera jákvæður og hugsa um hvað það er gott fyrir gróðurinnWoundering

Bóndinn er búinn að vera lasinn í fjóra daga - svitnar og skelfur á víxl, fyrir utan að ónýtur skrokkurinn þolir illa að liggja mikið fyrir.  Hann þóttist hressari í gærmorgun, dreif fjölskylduna í sund ( sennilega í þriðja skiptið á sjö árum sem hann fer í sund í sínum heimabæ ) og við dressuðum okkur upp seinnipartinn fyrir brúðkaupsveislu í Reykjavík.  Bræður voru í góðum höndum hjá Gumma frænda á meðan sem leyfði þeim að horfa á ótrúlega skemmtilega mynd á meðan.  Svo býr hann til miklu betri pizzu en mamma.  Wink   Í nótt er bóndinn svo búinn að vera sárlasinn og þegar ég er farin að finna til með honum þá hlýtur hann að eiga dálítið bágt.

Nú er naggrísirnir orðnir 14 - tveir bættust við í gær.  ég veit ekki hvar þetta endar.

Pallurinn er blautur - rigning í nótt.  Ekki útlit fyrir letidag á pallinum í dag Crying, kannski ég baki eitthvað í staðinn.  Lofa samt engu.


Eins og talað út úr mínu hjarta

Rakst á þessa grein á Vísir.is og finnst hún eiga erindi við flesta.  Ekki veitir af.


Setja karlinn í bann ?

Er í alvöru að spá í að setja bóndann í bann.  Veiðibann.  Úr síðustu veiðiferð kom bíllinn heim síðustu veiðiferð kom bíllinn heim með bilaðan vatnskassa.   ( og nokkrir fiskar )  Úr þar síðustu veiðiferð kom brotin veiðistöng og örfáir fiskar.   Þetta fer að verða dálítið dýrt sport Angry

En það er öruggt að norski bróðir og frú geti smakkað á silungi þegar þau mæta á svæðið.    Ég ákvað að gera tilraun til að búa til góða sjávarréttasúpu, hirti bein og afskurð af silungnum sem eiginmaður gerði að og flakaði.  Hreinsaði afskurðinn upp og sauð ásamt grænmeti og kryddi, síaði soðið sérstaklega vel og nú bíður heimalagað fiskisoð eftir að verða uppistaðan í gómsætri fiskisúpu.  

Bræður eru að verða unglingar.  Vilja ekki fara að sofa og sofa svo fram eftir öllu.  Druslast á fætur, seint og síðar meir og finnst sjálfsagt að leggjast fyrir framan sjónvarp eða blessaða leikjatölvuna.   Hver nennir svo sem út um hádegi þegar sólin skín á glugganum Errm  Svo tilkynntu þeir mér áðan að þeir væru að fara í partý.  og ekki nóg með það, það áttu allir að koma með eitthvað með sér.............................................................................................. að borða, fékk ég svo staðfest.  Ekki laust við að ég andaði örlítið léttar.   Partýið á reyndar ekki að vera í heimahúsi heldur út á róló.  Fullorðnir eru samt ekki boðnir og mega ekki koma.  Bara krakkar.  Þetta fékk ég staðfest hjá ungu (næstum átta ára ) dömunni sem stendur fyrir partýinu. Whistling

Þarf að skjótast í vinnuna fyrir hádegi á morgun.  Bræður hafa þá tölvutíma í friði EF þeir koma sér á fætur á skikkanlegum tíma.

Húsmóðir með frjóofnæmi


ég er dottin úr tísku

Tilkynnti bræðrum í kvöld að nú þyrfti mamma bara að vinna einn dag í viðbót og þá væri hún komin í sumarfrí.  Fagnaðarlætin yfir fréttinni létu hins vegar á sér standa.

" Eruð þið ekkert glaðir yfir því að mamma fari í sumarfrí "   Nei - bræður voru ekkert glaðir yfir því.

" af hverju " ? spurði mamman  - Nú þá fáum við ekki að fara lengur í tölvuna á morgnanna upplýstu bræður frekar súrir.   Fannst greinilega algjör óþarfi af mér að ætla að vera bara heima og hindra tölvunotkunina.   Ég gæti bara haldið áfram að vinna.

Fórum til afa og ömmu í kvöld og horfðum á þátt um Kaupþingsmótið.  SÁ lenti í viðtali og sýndi um leið hvernig ætti að gera teygjuæfingar.  Alveg grútfeiminn og gat varla talað.  Ekki líkt honum.   Hlakka gífurlega til þess að sóla mig á pallinum um helgina Smile


Kaupþingsmóti lokið

Bræður og mamma fóru á fótboltamót um síðustu helgi, ásamt rúmlega 30 öðrum strákum úr Grindavík, foreldrum þeirra og ca 1100 öðrum strákum + foreldrum þeirra og systkinum.    Við fórum sem sagt á Kaupþingsmótið á Akranesi.  Voða gaman og allir ánægðir með ferðina.   Í svona ferðum sofa strákarnir í skólastofum og foreldrar skiptast á að vera með strákunum þannig að foreldrarnir eiga líka stund fyrir sig.  Ég tók næturvaktir þannig að ég svaf í skólastofunni með 19 strákum og 2 mömmum.  Þetta var upplifun út af fyrir sig.

18 strákar í einni flatsæng á gólfi.  Einn svaf til fóta hjá öðrum, einn pukraðist með lítinn tuskuhund því vinirnir máttu ekki sjá að hann svæfi með "eitthvað mjúkt".  Annar lét svo illa í svefni að hann rann af dýnunni og svaf á hörðu gólfinu mest alla nóttina.  Svo voru auðvitað einhverjir sem rifu sængur af öðrum og lágu þversum á öllum dýnum.  Bara skemmtilegt.

 EFtir að hafa deilt salernum  með rúmlega 100 tippalingum ( langflestum 7-8 ára ) en einnig nokkrum stærri komst ég að því svo um munar að það er ekki bara á mínum heimili sem er pissað út fyrir.  Það er greinilega gert bæði í Grindavík og í vesturbænum en KR ingar voru í næstu stofum við okkur. 

Hitt og þetta merkilegt kom fyrir :

  • Nokkrir Grindavíkurstrákar fengu áritun hjá Eið Smára W00t  Takk Eiður Smári.
  • Fylkisstrákur sló tönn úr JA ( rak hendina í munninn á honum og hitti beint á lausu tönnina sem liggur ennþá á vellinum )  Strákur fór af velli með blóðugan munn.
  • Sáum Ingó spila á kvöldvöku.  Ingó er kúl.
  • SÁ lenti í sjónvarpsupptöku hjá Stöð2 - kemur í ljós á morgun kl 19,15 á Stöð 2 sport hvort upptakan verður sýnd.
  • JA skoraði mark út víti.

Það gengur ágætlega hjá bræðum að vera einir heima á morgnanna og þeim finnst þetta mesta sport.  Þeir fá sér að yfirleitt að borða og muna næstum alltaf eftir að ganga frá eftir sig.  Stundum er bara of spennandi að komast í tölvuna og þá er ekkert verið að eyða tíma í að borða.  Þeir eiga að búa um rúmið sitt sjálfir.  JA man það alltaf og býr mjög vel um en bróðir hans er ekki eins vandvirkur.  Í dag var sængin t.d. þversum í rúminu en búið að slétta hana og gera "fína" svo ég ákvað að það væri ekki ástæða til að gera athugasemd.

Stundum gleymist hins vegar að loka útidyrunum þegar haldið er á fótboltaæfingar og pabbi kemur heim að galopnu húsi í hádeginu.  Ekki gott.

Norski bróðir og frú eru búin að panta gistingu þegar þau koma til landsins.  Tími ekki að leyfa þeim að sofa á pallinum svo þau verða að sofa inni og í rúmi. 

Stóri var að veiða uppi á fjöllum meðan á Kaupþingsmóti stóð - í spænuroki og leiðindaveðri.  Kom heim degi fyrr en hann ætlaði ,með 4 fiska og brotna veiðistöng.    Dýr ferð en ekki eins og rjúpnaferðin á síðasta ári Tounge  Hann er nú samt að hugsa um að fara aftur að veiða um næstu helgi.  Þetta er náttúrulega bara bilun.

Litli frændi átti gullkorn um daginn þegar hann sagði, dálítið hneykslaður , að hann hefði oft farið í sund síðan hann var smábarn og hefði aldrei drukknað.  Varð dálítið móðgaður þegar móðir hans var að efast um  hæfni hans til sjósunds og kom þá með þessa gullnu setningu.

Bræður létu bíða eftir sér í kvöldmat í kvöld - komu heim klukkna rúmlega hálf níu og þá var pabbinn búinn að banka uppá í húsi þar sem bræður voru.  Skil ekki foreldra sem ekki senda gestkomandi börn heim á kvöldmatartíma Devil

Heimili mitt er hætt að líta út eins og heimili - ef það kæmu gestir myndi ég fela mig og þykjast ekki vera heima.  Ætti kannski að hringja í Skjá einn og athuga hvort það sé nokkuð að fara ný sería af Allt í drasli í gang ?    Ef ég geri það ekki þá er vitað í hvað fyrstu dagarnir í sumarfríinu fara. Whistling

Góðu veðri spáð um helgina - bóndinn má alveg fara á fjöll með veiðistöngina  mín vegna, ég ætla út á pall LoL    

 


Bara að láta ykkur vita

að ég er að fara út á pall með kaffibollann minn að njóta góða veðursins :-)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

188 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1589

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband