Höfuðverkur

JA á það til að fá höfuðverk.  Þótt það séu heilmikil "dramadrottningargen" í honum þá er ég nú á varðbergi gagnvart þessu, var sjálf örugglega með snert af barnamígreni sem barn þó svo það hafi aldrei verið skoðað.

Eftir heimalestur í dag, sem gekk ekki alveg hnökralaust ( m.a út af höfuðverk  Woundering ) vildi strákur fara út og leika við einhvern vin.  Allt í lagi með það en um hálftíma seinna kemur strákur aftur, frekar stúrinn þar sem enginn gat leikið við.  Þar með var lífið bara ekki nógu gott.  Enginn til að leika við, bróðir ekki einu sinni heima og svo var hann með höfuðverk í þokkabót. 

" Svo er svo vont að vera með höfuðverk í vindi ( það var strekkingsvindur úti )  rokið fer allt inn um eyrun og alveg upp í heila og blæs þar um allt svo ég verð alveg ruglaður og veit ekki neitt "   EFtir að mamman  hafði nú vorkennt honum dálítið ákváðum við að kveikja á sjónvarpinu og kúrðum saman í sófanum í smá stund.   Lífið varð aðeins betra eftir það, allavega kvartaði hann hvorki um höfuðverk né rok í hausnum eftir það.

Þessi sonur hélt sig á mottunni í skólanum í dag Smile  

Sama verður nú ekki sagt um hinn  Blush


Bræður eru óþægir

Það streyma inn tölvupóstar frá kennurum um óæskilega hegðun bræðra - og það á fjórðu viku skólaársins Blush  hvar endar þetta ?  Annar hlýðir ekki, hinn neitar að vinna í skólanum, einn kastar grjóti og þar fram eftir götum.    Myndi láta þá labba í skólann á morgun ef ekki væri stormur og ausandi vatnsveður.   Hef ekki samvisku í það.  Pinch  Svo kvarta og kveina bræður hér heima yfir ósanngjörnum og illa innrættum kennurum og starfsfóli skólans sem láta þá hlýða og "leyfa þeim aldrei að gera neitt skemmtilegt "    Huh - erfitt líf.

Til að vega óþægðina aðeins upp þá hafa bræður staðið sig vel í lestri ( átak í gangi í skólanum ) og sérstaklega JA tekið framförum.  Þeir hafa verið duglegir að lesa heima og gengið vel.

Bræður mínir gera það víðreist, eftir því sem ég get lesið á netinu.  Norski bróðir er í Englandi þessa dagana, milli þess sem hann borðar myglaðan morgunmat og vondan USA kjúkling er hann að kynna sér hvað hann þarf að gera og kunna í nýju vinnunni sinni.  Hafnfirski bróðir stefndi til Frakklands las ég á Feisbúkk en hvað hann var að gera veit ég ekki - annaðhvort " Bissness eða plesjure "  Frétti það vonandi einhvern tíma seinna.

Jarðskjálfti í morgun - ég stóð í eldhúsinu og var að skammta hafragraut á disk þegar Guðrún Gunnars missir út úr sér í morgunútvarpinu " funduð þið einhvern titring "  Enginn kannaðist við það nema tæknimaðurinn.    5 Mínútum seinna var fréttayfirlit : snarpur jarðskjálfti varð úpp á 3,6 ár Richter varð á Reykjanesi.   Guðrún fann skjálftann í Reykjavík en ég fann hann ekki hjá mér.  Sem betur fer kannski, er skíthrædd við svona jarðhræringar.

Tengdapabbi gisti á spítala síðustu nótt en er kominn heim og líður mun betur.  Gallsteinum er kennt um en það kemur væntanlega í ljós eftir myndatöku á morgun.

Gleymdi að spyrja norska bróður hvort það séu gólfteppi á salernum í landi Tjallana -  geri það kannski á morgun.   


Úps - I did it again !

Maður hefði nú haldið að eftir 18 stykki myndi konan vita bæði hvernig börnin verða til og líka hvernig þau verða ekki til !

En þetta kallar maður nú frjósemi

 


mbl.is Nítjánda barnið kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótbolti

Sá sonur sem hefur ekki komist á fótboltaæfingar í næstum tvo mánuði í sumar er að verða efnilegur  "glápari"  - pabbanum er meira að segja farið að þykja nóg um.

Hann kom heim um hádegið hálfsúr - vinur gat ekki leikið þar sem hann var að horfa á Manstester - Liverpúl heima hjá einhverjum strák.  " á Stöð 2 plús meira að segja.  Strákur ætlaði nú að horfa á leikinn hér heima en það var ekki hægt" ofurnísk" húsmóðirin tímir ekki að borga fyrir það  Pouty

Það glaðnaði þó yfir stráksa þegar ég sagði honum að hann gæti farið til afa - afi væri örugglega að horfa á leikinn.  " get ég farið núna strax ?" var spurt og þegar svarið var játandi sá undir iljarnar á honum og nánast reykspólað af stað á hjólinu. 

Strákur kom ekki heim alveg strax eftir leik en það fréttist að hann hefði yfirgefið afahús frekar svekktur - Manstester tapaði Angry    Strákur kom svo heim stuttu fyrir 4 og spurði pabba sinn hvort þeir ættu ekki að fara á völlinn  Grindavík  - Fylkir.   pabbi stóð upp og feðgar klæddu sig vel því veðrið var kalt.  Heimamenn áttu ekki góðan dag á vellinum og pabbinn vildi yfirgefa leikinn um 20 mínútur fyrir leikslok.  " Nei" sagði strákur gallharður - ég vil horfa á allan leikinn.  um 15 mín seinna ( 5 mínútum fyrir leikslok ) ýtrekaði pabbinn aftur að að fara - leikurinn væri að verða búinn .  " Nei" sagði strákur og sat sem fastast.  Hann stóð þó upp þegar flautað var til leiksloka.  Tilkynnti mér þegar heim kom að Grindvíkingar hefðu verið öööööömurlegir ! 

Hinn sonurinn hefur engan áhuga á að horfa á leiki - vill bara sparka boltanum sjálfur en ekki horfa á aðra gera það. 


föstudagur í gær

  • Þá fékk ég skyr í hádeginu - venjulegt hrært skyr með rjómablandi.
  • Eldaði saltfisk og kartöflur í kvöldmat
  • fór EKKI í bónus
  • Keypti bensín fyrir 157 kr líterinn Smile
  • fékk tölvupóst frá bókasafninu og borgaði 540 kr í sekt Blush
  • gladdist yfir því a ÚTSVAR væri byrjað aftur á RÚV
  • Sofnaði samt sem áður yfir Útsvari í sjónvarpinu og veit ekki hvort liðið vann.Sleeping

Annars var þetta ósköp venjulegur dagur að öðru leyti - bræður fá ný heimaverkefni með sér heim á föstudögum og um leið fá foreldrar svokallaða samskiptabók þar sem "hrós eða last" vikunnar kemur fram.  Bræður fengu báðir ágætis vitnisburð þessa vikuna sem eru framfarir frá síðustu viku.

Er vel útsofin húsmóðir í dag og vonandi skilar það sér í þrifum, þvotti, tiltekt og bakstri......

Eigið öll góðan dag.


allt og ekkert

 Loksins hef ég smá tíma til að blogga á kristilegum tíma en er þá alveg tóm - það er kannski bara svona gott að vera einn heima að heilastarfsemin næstum lamast.  það gerist ekki oft að ég sé ein heima og ég nýt þess að hafa ró í húsinu og eiga smá tíma með sjálfri mér.

 Bræður eru úti - búnir að læra fyrir morgundaginn og fóru svo í sitthvora áttina.   Þeir hafa gert frekar mikið af því í sumar. - fara ekki saman út og leika við sitthvora félagana.  Veit ekki hvort þetta er einhver sjálfstæðisbarátta eða hvort þetta sé ein mynd samkeppninnar sem hefur verið við lýði hjá þeim síðan þeir fæddust.  Hún birtist í ýmsum myndum - það var lengi sorg yfir því að annar bróðir væri stærri en hinn -  minni bróðir fékk þó uppreisn æru þegar hann fann það út að hann væri með fleiri stafi í nafninu sínu og svo má lengi telja.

Það er nákvæmt bókhald yfir það hver fær að velja kvöldsöguna, hver fær að fara á undan í tölvuna og hver þurfti að fara fyrst í sturtu síðast þegar var farið í sturtu. Pouty  Eins gott að hafa þetta á hreinu.   JA passar samt best upp á mömmu sína og finnst miklu meira en nóg að deila henni með einum bróður og einum pabba.  Fyrir nokkrum árum lýsti hann því yfir að það væri ósanngjarnt að tveir fullorðnir mætti sofa saman í einu rúmi en hann ( og bróðir ) væru litlir og þyrftu að sofa "aleinir" í sínu herbergi.  Ef hann mætti ráða svæfi hann hjá mömmu, bróðir í sínu herbergi og pabbi gæti bara sofið inni í stofu.

Við fórum í fjölskylduferð í sumarbústað um helgina.  Tengdó bauð börnum og barnabörnum í bústað.  Húsbóndinn hóstandi eins og gamall traktor en ganghljóðið lagaðist þó eftir gufubaðsferð og slurk af víski.  Hann var allavega vel gangfær yfir helgina en þó virtist eins og bakslag væri að koma í hann í gærkvöldi. Undecided  Bræður voru alsælir og skemmtu sér hið besta þó svo þeim fullorðnu þætti stundum nóg um hamaganginn.  SÁ datt á "veika" fótinn og ekki laust við að skjálfti færi um foreldrana sem í smá stund sáu fyrir sér að strákur þyrfti aftur í gifs.  Betur fór þó en á horfðist og strákur fór í "sprækur" í skólann í morgun.    

Jæja - friðurinn úti, einn sonur kominn heim og sjálfsagt kominn tími fyrir matreiðslumaskínu heimilisins að taka til starfa

 

 


Einbeittur brotavilji ?

Bræður og fleiri strákar á þessum aldri safna spilum - fótboltaspilum og einhverju sem heitir "júgíó".    Spilin eiga að vera heima þegar bræður fara í skólann en þeim þykja það mjög ósanngjarnar reglur og nota hvert tækifæri til að óhlýðnast þeim.  JA er eiginlega hættur að nenna að standa í þessu - "vopnaleitin" sem grimm móðirin er farin að framkvæma á hverjum morgni á buxna og peysuvösum kemur í veg fyrir að spilin fari með. 

En SÁ gefst ekki upp.  Stundum heppnast þetta og stundum ekki.  Í vikunni var mamman á góðri leið á háa cið  - " flýta sér, drífa sig og við erum orðin of sein " hljómaði um húsið.  Strákur er kominn í utanyfirpeysu og er á leið í skó þegar mamman rekur augun í stórt gat á hælnum á öðrum sokknum.   Strákur er skrýtinn á svipinn og  tregur til að skipta um sokka, segist alveg geta farið svona.   Mamman heldur nú ekki, mætir með nýja sokka og byrjar að klæða stráksa úr götóttum sokkunum.    þá skildi hún tregðu stráksa sem var með spilastokkinn vandlega falinn ofan í sokkunum .

Ég get ekki útskýrt þetta nema á einn hátt - einbeittur brotavilji Halo


er ég asni, gamaldags eða bara tæknifötluð ?

  • Ég veit ekki hver munurinn á Ipod og mp3 spilara er
  • Ég veit ekki hvernig maður sækir tónlist til að setja inn á Ipod
  • ég kann ekki heldur að setja tónlist inn á ipod
  • er hægt að setja sögur og leikrit inn á ipod ? hvar fær maður svoleiðis ?
  • ég kann ekki að sækja hringitón á netið í gsm síma.
  • ég veit ekki hvernig lófatölva lítur út.
  • ég er ekki með myspace síðu ( veit þó að myspace er til ) Blush

Þessi játning er í boði frúar á fertugsaldri

 


skólinn kominn í gang aftur og strákur laus við gifsið.

4 heilir skóladagar á þessu skólaári eru að baki hjá bræðrum.  Fyrsti dagurinn var dálítið spennandi þó svo að það hefði verið erfitt að vakna.  Það tókst nú samt sem áður og bræður mættu galvaskir í nýjum úlpum með skólatöskurnar á bakinu.

hafragrautur er vetrar og skólamorgunmatur.  Við skiptum hafragrautnum út fyrir Serios og " just right" í sumar en nú er hafragrauturinn kominn á matseðilinn aftur.  Grauturinn er góður, hann er hollur og seðjandi.  Samt greinilega ekki nógu seðjandi fyrir matargatið mikla ( SÁ ) sem kom heim með miða á öðrum skóladegi :  " virðist þurfa meira nesti ".   Ég er búin að troða vel í nestisboxið hans síðan.

Strákur er laus við gifsið Grin og mikil hamingja með það.  Fóturinn var reyndar dálítið óþægur fyrst og lét illa að stjórn en þetta er allt að koma.  Strákur hleypur reyndar ekki um ennþá en það verður varla langt í það.  Hann hlakkar allaveg til að mæta í næsta leikfimistíma. 

Það er sem sagt komin rútína á heimilið aftur eftir sumarið og mamman nýtur þess að hafa hljóð og ró á kvöldin þar sem svefn - og fótaferðartími bræðra hefur færst fram um nokkra klukkutíma.  Hins vegar finnur mamman vel fyrir þvi að það þarf að halda vel á spöðunum til þess að dagurinn gangi stórslysalaust fyrir sig.  Hér er dæmi um dag í lífi útivinnadi (hús)móður í úthverfi.

Vakna 6,50 - klæða sjálfa sig og snyrta - setja hafragraut í örbylgjuna - vekja bræður - láta bræður klæða sig - gefa að borða, setja nesti í skólatösku  - taka útiföt til - láta bræður tannbursta sig,  koma sér í úlpur og út í bíl á réttum tíma.  Er yfirleitt búin að stilla am.k einu sinni til friðar, reka nokkrum sinnum á eftir  þeim og fara 1-2 ferðir með töskur og föt út í bíl. 

7,45-755 - keyri bræðrum í skólann og fer svo sjálf í vinnuna.

8,30-15,00 / 15,30  Er í vinnunni - fer beint úr vinnu til að sækja bræður í gæslu.

16,00 - 19,00 - Komum heim - bera töskur, poka og föt inn úr bílnum - ganga frá því - taka 4 nestisbox úr skólatöskum, tæma þau og hreinsa.  Taka úr uppþvottavél, setja í uppþvottavél.  Setja/taka úr þvottavél og /eða ganga frá þvotti.  Ýmislegt "húsmóðurstöff" sem enginn tekur eftir NEMA það sé EKKI gert.  Láta bræður læra - elda mat - leggja á borð.

19,00 - 21,00 Borða og ganga frá í eldhúsi eftir mat - gera nesti fyrir bræður.  ( Það getur nú tekið tíma ef maður ætlar að bjóða upp á þokkalega heilsusamlegt og fjölbreytt nesti )    Hátta bræður , tannbursta þá og koma þeim í rúmið.  Lesa sögu.

21,00 - 22,00 Einhvern tímann á þessu bili tekur aukavinnan við  - oftast í 1-2 tíma.  Þá á eftir að finna föt á bræður og mömmu til að hafa tilbúin fyrir morgundaginn.  Undirbúa hafragrautnn fyrir morgundaginn - setja skálar og skeiðar á borð.

Háttatími milli 24,00 - 01,00

Þarna er ekki talinn með sá tími sem fer í að sinna þeim skiptum sem er kallað "mammmmmmaaaaa" og svo kemur eitthvað erindi þar á eftir.  Í gær þurfti t.d. að raða fótboltamyndum inni í ramma og hengja hann upp á vegg.  Ef bræður fara ekki að leika við vini ( eða vinir koma í heimsókn ) eru það ótal erindi og umræður sem þarf að svara og sinna.

Ef ég væri ofurhúsmóðir myndi ég einnig hafa haft tíma til að stunda líkamsrækt, sinna einhverju áhugamáli, hefði að sjálfsögðu þurrkað ryk og skúrað gólf fyrir utan að þrífa baðherbergi og láta forstofuna líta út eins og forstofu en ekki ruslakompu fyrir skó, reiðhjólahjálma og útiföt.  Nágrannakona eða vinkona hefði komið í heimsókn og hefði að sjálfsögðu fengið heimabakað  heilsubrauð með sérmöluðu kaffinu.  Þegar svefntíminn nálgaðist myndi ég að sjálfsögðu tæla bóndann inn í rúm og við stunda heitt ***líf fram eftir nóttu.

En - þar sem ég er ekki ofurhúsmóðir, heldur bara (hús)móðir í úthverfi, úfin um hárið og í ljótum teygðum bol merktum Byko.  : Elsku eiginmaður, þú sem ert búinn að sofa fyrir framan sjónvarpið síðan klukkan átta í kvöld  - því miður verður ekki dagskrá ofurhúsmóður í kvöld -ég er of þreytt InLove.

 

 


Skóli á morgun

Það kom að því að skólinn byrjaði aftur.  Skólasetning búin og bræður búnir að hitta bæði kennara og bekkjarsystkini aftur.  Smile  Þótt því væri neitað næstum fram á síðasta dag þá kom það nú í ljós að það var dálítið gaman að fara aftur í skólann.

Bræður fá að hafa sömu kennara aftur - en eru báðir komnir í svokallaðar útistofur.  Þeim finnst það bara "kúlt" en mamman er ekki eins ánægð með það.  Verður bara að koma í ljós hvernig gengur.

Tilraunir til að koma bræðrum fyrr í rúmið og fyrr á fætur undanfarið hafa ekki gengið neitt sérlega vel.  SÁ vaknaði þó nógu snemma í morgun til að horfa á handboltann en bróðir hans sá enga ástæðu til að koma  sér á fætur fyrr en í hálfleik.  Hefði eflaust sofið lengur hefði hann fengið frið til þess.

Sæludögunum " aleinir heima " er því formlega lokið - í bili allavega.  Bræður voru afskaplega fámálir um síðustu dagana heima - sögðust ekkert hafa farið í tölvuna, ekkert hafa meira hringt og ekki gert neitt " nema bara dunda sér eitthvað "   Jahá - hljómar ekki traustvekjandi hjá næstum 7 ára orkuboltum sem vita varla hvað það er að "dunda sér "   Foreldrar eru nokkuð vissir um að bræður hafi hvorki stundað fjárhættuspil á netinu né haldið partý heima.  Við bíðum bara eftir að fá næstu síma og kreditkortareikninga til að sjá hvort þar sé einhver " glaðningur"

Fórum í afmæliskaffi til frænda sem er orðinn 12 ára.  Hann ber aldurinn vel, er fallegur eins og frænka sín.  Shocking  

Fótboltamót hjá bræðrum á þriðjudag.  SÁ ætlar lætur sig ekki vanta - vill fá búning eins og hinir þó svo hann sé í gifsi og geti ekki leikið.  Hann er ennþá í liðinu og ætlar að vera á bekknum og hvetja sína menn.  Ekki spillir fyrir að það er pizza í boði að móti loknu.

Á miðvikudaginn er svo stóri dagurinn  -  Gifsið burt.  Strákur telur niður og getur varla beðið.  Við eigum pantaðan tíma hjá bæklunarlækni á miðvikudaginn og vonandi kemur myndatakan vel út.  Strákur er búinn að vera fótlama í 5 vikur og þar af 2 í gifsi.  

Best að koma sér í rúmið - mér veitir ekki af allri minni orku til að koma bræðrum á fætur i fyrramálið. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

186 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband