15.2.2010 | 21:53
geturu geft mér
14 þúsund krónur þegar ég á afmæli sagði 8 ára strákur í kvöld en hann var í afmælisveislu hjá bekkjarsystur sinni og orðinn dálítið ör.
til hvers þarft þú 14 þúsund krónur sagði mamman hin rólegasta. Sko mig vantar að kaupa svona kall ( og svo kom lýsing á þessu ákveðna leikfangi ) puttahjól og puttabretti og annað puttabretti og eitt svona hjól í viðbót. Strákur var handviss um að þetta allt kostaði 14 þúsund krónur. Ekki seinna vænna en að leggja inn óskalistann fyrir afmælið í október.
En strákur var ekki alveg hættur að tala - hann fékk sko að leika með puttahjól í afmælinu og hann gerði " þrísixtý - bekkflip og slædaði " Ég þorðii ekki fyrir mitt litla líf að biðja um nánari útskýringu á þessu, nógu hallærislegur og gamaldags er maður er nú þegar. Ég hef samt grun um að þetta séu ákveðnar listir sem snillingar á jútúb framkvæma á bmx hjólum
Það er aldrei of seint að læra eitthvað nýtt - hin 40 ára gamla húsfreyja ákvað að árið 2010 yrði árið sem hún bakaði alvöru vatnsdeigsbollur í fyrsta skiptið á æfinni. Og það gerði hún . Þessar guðgómlega góðu og glæsilegu vatnsdeigsbollur með sultu, rjóma og súkkulaðibráð ofan á. " bestu bollur sem ég hef smakkað " sagði saddur og sæll strákur með súkkulaði á nefi og kinnum.
Ég ætla að sjóða saltket fyrir manninn í sófanum á morgun en sníkja mér súpu í vinnunni. Það verður örugglega tvíréttað hér annað kvöld þar sem ég og bræður fáum Sprengidagsmatinn í hádeginu. Ég er meira að segja að hugsa um að taka með mér nesti í vinnuna ( í stóreldhúsið sjálft ) - mér finnst saltket og baunir afskaplega lítið spennandi matur !
Um bloggið
kona á besta aldri
28 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
er ekki til málsháttur sem segir,,allt er fertugum fært
Anna Ágústa Bjarnadóttir, 18.2.2010 kl. 14:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.