4.4.2008 | 22:30
Sparsamasti vinur minn.
Hann segir sjálfur svo frá :
Spara... ég kann leiðir til þess. Ég fer alltaf með konuna og börnin með mér ef ég veit af matarkynningum í Hagkaup, Nóatúni eða öðrum búðum. Búinn að kenna krökkunum að labba alltaf einn hring og fara svo og fá sér aftur, konurnar sem eru að kynna þekkja þær hvort sem er ekki aftur. Annað sem við gripum til, til að spara, var að láta krakkana leika sér við þá vini sem matar var von hjá í kringum matmálstíma. Það hefur gefist vel. Síðan er eitt ráð alveg brilljant til að spara í mat, fyrir þá sem búa á Reykjavíkursvæðinu að fara í allar erfidrykkjur sem hægt er að komast í. Þar er alltaf flott bakkelsi og nóg af því og ef vel er borðað þarf ekkert nema ómerkilegt snarl í kvöldmatinn.
Nú, varðandi bílinn, þá seldum við hann. Höfum komist vel af með bílinn hans tengdó og annarra velviljaðra ættingja. Og það sem meira er, þú færð bílinn lánaðan með bensíni og skilar honum svo aftur tómum. Og ekki er nú bensínið ókeypis eða ég tala nú ekki um tryggingarnar. Svo til hvers að vera að eyða í svoleiðis óþarfa ef hægt er að spara sér það?
Fleiri leiðir eru til að spara en ég læt þessi ráð duga að sinni.
Hann hefur reyndar aldrei boðið mér í mat...........
Um bloggið
kona á besta aldri
32 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
úff.... hljómar skemmtilegur þessi vinur.
not.
norska mágkona.... (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 22:29
Uhumm, einmitt sem ég var að hugsa. Það er ekki sæmandi að spara á kostnað annarra, en var þetta ekki bara grínsaga???
Lilja G. Bolladóttir, 7.4.2008 kl. 10:20
Ef ég þekkti svona náunga í alvöru þá myndi ég ALDREI kalla hann vin. Hljómar samt svona eins og "neytandinn" í Spaugstofunni. Þessi "vinur" er líka bara grín ( sá þetta innlegg á spjallþræði og fannst það fyndið, fékk það "lánað" og stílfærði það aðeins )
Húsmóðir, 7.4.2008 kl. 14:23
Haha, ég er viss um að svona karakterar finnast samt sem áður!!!
Lilja G. Bolladóttir, 8.4.2008 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.