21.2.2009 | 22:07
Loksins blogg
eða hvað.
Frúin er allavega sest fyrir framan maskínuna og ætlar að sjá hvort eitthvað af viti kemur fram. Er nú ekkert viss um að svo verði. Löngunin til að blogga lætur eitthvað á sér standa. það er greinilegt að frúin er farin að eyða of miklum tíma inni á fésbókinni
Engar fréttir eru góðar fréttir segir einhvers staðar. Hef ekki haft löngun til að blogga enda ekki frá neinu að segja. Gamla settið vinnur, borðar og sefur meðan yngra settið lærir, stundar fótbolta og fimleika , borðar og sefur.
Hr Rónaldó(naggrís) er kominn með nýja konu - Birgitta (naggrís) er dáin Rónaldó var nú nokkuð sama og æstist allur upp við nýju konuna ( hana Rósu ) sem er bæði yngri og grennri en fyrrverandi. Húsbóndinn á mínu heimili gerðist því nýja mamman þeirra Rooney og Ryan Giggs ( naggrísabarna ) og stendur sig með sóma. þeir drekka mjólk úr sprautu 2-3 á dag og fá þar að auki þurrmat og grænmeti.
Bræður eru nokkuð duglegir að aðstoða við naggrísina og hafa það hlutverk að gefa grænmeti einu sinni á dag.
Bræður hafa greinilega töluverða trú á tungumálahæfileikum móður sinnar og hafa m.a. spurt hvort hún tali "ítalensku" (ítölsku) "frakklensku" (frönsku) og nú í kvöld "rússlensku" (rússnesku ) SÁ varð hálf dapur yfir því að mamma sín talaði ekki "rússlensku" því þá gætum við ekki farið til Rússlands. það glaðnaði þó yfir honum þegar ég sagði að margir sem búa í Rússlandi tali líka ensku svo að tungumálaörðugleikar ættu ekki að standa í vegi fyrir því. Reyndar veit ég ekki af hverju honum datt í hug að ferðast til Rússlands. Hef hann helst grunaðan um að langa til Moskvu með Jóhönnu Guðrúnu og horfa á Evrovision
Veðurfarið hefur verið í blautara lagi undandanfarna daga. í gær tók ég loksins Stiga-sleðana sem stóðu við húsvegginn ( við hliðina á reiðhjólunum ) og setti þá inn í bílskúr. það passar, það fer að kólna og snjóa mjög fljótlega. Eftir nokkra daga get ég örugglega skipt aftur - sett hjólin inn í bílskúr og tekið sleðana út aftur.
Bræður voru sofnaði óvenju snemma í kvöld. kannski ekki skrítið, þeir voru vaknaðir um klukkan 6, foreldrum til takmarkaðrar gleði. Svo á mánudagsmorguninn hefst svo streðið við að vekja og koma þeim á fætur. Merkilegt með foreldra samt, þeir eru aldrei ánægðir.
Fyrstu árin kvarta þeir og kveina yfir því að þurfa að fara á fætur klukkan 5 og 6 á morgnanna. Svo kemur söngurinn ( sem ég er að syngja núna ) yfir því að það sé svoooo erfitt að koma þessum krökkum á fætur í skólann. Að lokum er svo kveinað yfir unglingunum sem vaka á nóttunni og sofa á daginn.
Aukavinnan hefur tekið sinn tíma undanfarið en gengur vel. þessi tími er álagstími hjá þeim sem vinna við bókhald en ég finn hvað mig vantar sárlega tíma fyrir mig. Stunda hobbý, heimsækja vini og hreyfa mig aðeins. En - það hlýtur að koma að því. Allavega fékk ég smá tíma til að blogga núna
Bið að heilsa í bili - húsmóðirin sem bakaði bæði maltbrauð og muffins um síðustu helgi. Baka kannski meira á morgun
Um bloggið
kona á besta aldri
187 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að sjá að þú ert kominn í gang með bloggið,mamma þí bakaði 400 bollur í morgun og var búin að því fyrir hádegi. kveðja frá pabba, (og mömmu líka)
mam og pap (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 22:26
sko þíg þú getur þetta ég var farin að örvænta aðeins fyrir símtalið við þig fyrir stuttu,það er alltaf gaman að heyra í þér og lesa bloggið þitt
og kveðjur úr neðri byggð,aðeins fyrir neðan skólann,ef þú skildir leggja leið þína til mín
Anna Ágústa Bjarnadóttir, 23.2.2009 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.