29.3.2009 | 23:48
kreppa í Ikea ?
Ég sem ætlaði að blogga heil ósköp um skemmtilega helgi en gamalt fólk eins og ég þarf sinn svefn svo þetta verður nánast ör-blogg.
Fjölskyldan var á faraldsfæti um helgina og gisti m.a í Hafnarfirði. Á annars þéttskrifaða dagskrána kom óvænt ferði í Ikea. Það átti annars ekki að kaupa neinn óþarfa - bara glös. En um leið og við fórum fram hjá Ikea restaurant urðu allir fjölskyldumeðlimir mjög svangir og ákveðið var að fá sér að borða. Sérlega hagsýn ákvörðun þar sem matur fyrir yngri en 10 ára var ókeypis þessa helgina. Málsverður fyrir 4 ( með gosi ) kostaði 1.570 krónur og enginn fór svangur út. Gott verðlag í kreppunni enda voru nánast flest sæti upptekin og nóg að gera.
Fjölskyldan gekk hratt með húsbóndann í fararbroddi - ég dróst aðeins aftur úr - var að skoða rúm í barnadeildinni en stefnan er að bræður fái ný rúm fyrir haustið. JA sem var með mér leit á verðmiðann á einu rúminu" tuttuguogsexþúsundsjörhundruðfjörutíu" las hann nokkuð örugglega af verðmiðanum. Svo stikuðum við áfram til að ná pabba og bróður sem voru komnir nokkuð á undan. Strákur var enn með hugann við rúmið " Vá hvað þetta er dýrt sagði hann og spurði svo : kosta rúm svona mikið ?" ég hélt það nú og strákur þagnar. Rétt á eftir heyrist taut í mínum #djöfu**** kreppan "
Ég er handviss um að hann átti ekki við verðlagið á matnum !
Um bloggið
kona á besta aldri
187 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hvar hefur verð ekki hækkað síðan í haust
en maturinn í Ikea er bara nokkuð góður og ennþá á fínu verði og er eiginlega sá staður sem hægt er að bjóða fjölskyldunni út að borða og eru þeir ekki margir staðir þar sem buddunni blæðir ekki 
kv úr neðri byggð
Anna Ágústa Bjarnadóttir, 30.3.2009 kl. 15:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.