versti dagurinn

í gær var versti dagur lífs míns sagði JA  í morgun, alvörugefinn á svip.  Ég forðaðist að horfa framan í drenginn, mömmur eiga ekki að hlægja að svona athugasemdum sem 7 ára strákar setja fram í fyllstu alvöru.  Mér fannst þetta fullmikið drama.

Seinnipartinn í gær fékk strákur nefnilega högg frá golfkylfu í andlitið Frown  Bróðir hans sem ætlaði aldeilis að sýna færni sína í golfi var svo óheppinn að slá bróður sinn í andlitið.   Betur fór en á horfðist og eftir góða kælingu virðist höggið ekki hafa önnur eftirköst en bólgna og marða kinn.  En raunum stráksa var ekki lokið.  Þegar verið var að gera sig kláran fyrir svefn kom í ljós að strákur var með flís í hendinni.  Eftir nokkrar stungur og misheppnaðar tilraunir við að ná flísinni voru tárin Cryingfarin að spýtast úr augunum á stráksa og var ákveðið að setja bara plástur á og fara að sofa.  Strákur var fljótur að samþykkja það, skreið upp í rúm og var sofnaður áður en var hægt að telja upp að tíu.  

Fyrri hluti dagsins var nú ekki svo slæmur.  Bræður horfðu á teiknimyndir fram að hádegi - klæddu sig seint og um síðir, fóru svo út og voru búnir að afreka ýmislegt fyrir óhapp, fara í fótbolta á sparkvellinum, leika við frænda og eflaust fleiri vini, príla inn í garða hjá ókunnugu fólki og upp á þak hjá Hárgreiðslufrænku og nágrönnum hennar Devil 

Bræður þurftu svo að vera einir heima fram að hádegi.  þeim fannst það ekkert leiðinlegt, voru komnir á fætur um hálf átta, sátu við að borða morgunverð þegar ég fór í vinnuna um kl átta en voru komnir í tölvuleiki fljótlega eftir það og sátu ennþá við tölvuna þegar pabbi kom heim í hádegismat.  Tóm hamingja.   

 En nú er páskafríi lokið og skóli á morgun. Bræður eru ekkert allt of ánægðir með það.  Geta þó glaðst yfir því að það eru ekki miklar líkur á að þurfa að fara aftur í stígvélum í skólann.  

Mér fannst dálítið erfitt að vakna í morgun - hef ekki sofið svona mikið síðan á síðustu öld.   Er reyndar líka búin að viðra mig og hjólið aðeins.  Meðan móðir mín elskuleg snurfusaði húsið að innan var karl faðir minn í bílskúrnum og lagfærði bæði fullorðinshjólin svo nú getur bæði yngra og eldra settið á heimilinu farið út að hjóla.  

Fékk  smá dugnaðarkast í gær, tók fram saumavélina og stytti einar strákabuxur, ætlaði að stytta aðrar en strákur gat ekki með nokkru móti staðið í þeim stórræðum að máta TVÆR buxur sem hann ætlaði sér ekki einu sinni að vera í.  Ég fæ hann vonandi til að máta þær á morgun.

Bakaði líka smávegis og ef græðgin í karlkyninu á heimilinu fer ekki á yfirsnúning þá verður eitthvað til í nestisboxin hjá bræðrum á miðvikudag.  

ætla ekki á Hammondhátíð Crying - tímasetningin ekki hentug en stefni ótrauð á næsta ár.

Sparnaðarkjötbollur í matinn á eftir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að ég sé regnbogabarn, ekki gerði pabbi við hjólið mitt og ekki snurfusaði mamma íbúðina í síðustu heimsókn.

Hnuss.

Ingþór (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 20:07

2 Smámynd: Húsmóðir

pssst - á ég að segja þér leyndó - maður fær miklu betri þjónustu eftir að barnabörnin komu á heimilið.  þetta stendur sko allt til bóta hjá þér

Húsmóðir, 14.4.2009 kl. 20:34

3 identicon

dugnaður í gangi á ég að koma með mínar buxur heheehehehh :) Adam gerir við hjólin á þessum bæ :)

hárgreiðslufrænka :) (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

187 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband