óábyrg móðir

Síðan skólinn byrjaði aftur hefur veðrið verið upp á sitt besta.  Bræður hafa látið sig hafa það að lesa heima strax eftir að heim er komið og fengið að vera úti smá stund eftir kvöldmat í staðinn.  það skilja það allir að það er langskemmtilegasta að vera úti eftir kvöldmat.

Við reynum yfirleitt að borða kvöldmat snemma á þessu heimili, ekki verra ef hægt að ná kvöldfréttunum á Ríkissjónvarpinu.  Stundum tekst það, stundum ekki.   Í kvöld fór pabbi á (veiði)fund þannig að hann var ekki heima á kvöldmatartíma.  Ég og bræður borðum snemma og bræður eru komnir út um klukkan 19,30 og fá leyfi til að fara út.  Ég sest inn í stofu, horfi á sjónvarpið og hvað gerist ?  Ég sofna Blush  Vanka þegar klukkan er 21,10 og hvorki tangur né tetur af bræðrum.   Ég rýk út ( örugglega með hárið allt út í loftið ) á inniskónum og að leiksvæðinu í enda götunnar.  Engin börn þar.  Ég rýk heim aftur, finn bíllyklana og er á leið út í bíl þegar ég sé annan soninn við enda götunnar.  Fæ þær fréttir að hinn sonurinn sé á heimleið líka og hann birtist stuttu seinna.  klukkan 21,30 á fimmtudagskvöldi  eru 7 ára bræður sem eiga að mæta í skólann klukkna 08,00 í fyrramálið komnir upp í rúm.   Það verður ekkert áhlaupaverk að koma þeim á fætur í fyrramálið.  Kannski bara gott á mig FootinMouth

Er farin að hlakka til að fá sumarfrí - hvenær sem það verður.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

187 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband