Að eiga síma

Bræður eru nú búnir að eiga síma í nokkrar vikur.  Fyrstu vikuna spiluðu þeir leikina á símanum af miklum móð - það var sko mun meira spennandi en að hringja.  Þeir afþökkuðu lestur á kvöldin því það var svo gaman að spila "símaleik "  Þeir eru sem betur fer farnir að róast í leikjunum enda þótti okkur foreldrum afpsyrnuleiðinlegt að hlusta á píp og bíb og óhljóð úr bræðraherbergi á kvöldin.

Yfirleitt finnst þeim alveg nauðsynlegt að hafa símann meðferðis þegar þeir fara út að leika og ég viðurkenni alveg að mér þykir það alveg ágætt.  það er afar þægilegt að geta hringt og sagt " þú átt að koma heim núna" 

Þeir eru ekkert sérstaklega mikið að hringja en stundum þarf að hringja oftar en annars :  Þegar bræður voru búnir á fótboltaæfingu í dag og komnir heim var hringt Þ

" mamma, megum við fá jólaöl "  ( greinilega verið að snuðra í ísskápnum og fundið eina gula dós sem á stóð páskaöl eða eitthvað álíka )  Já - bræður máttu fá jólaöl.

þremur mínútum seinna var hringt aftur " mamma megum við fara í tölvuna "   Nei - bræður máttu ekki fara í tölvuna.  " andvarp og mæðulegt ohhhhh heyrðist áður en var skellt á "

Ekki var liðin mínúta þegar hringt var í þriðja sinn " en mamma, megum við kveikja á sjónvarpinu ?"  Já það mátti kveikja á sjónvarpinu en það átti að slökkva strax og mamma kæmi heim.   Bræður voru sáttir við það.

Þegar ég kom heim úr vinnunni, ca 20 mínútum eftir síðastu símhringingu lágu bræður í makindum fyrir framan sjónvarpið.  Eldhúsið leit hins vegar svona út :

 

KIF_1697

Bræður voru m.a. búnir að prófa að hita muffins í örbylgjunni - stilltu hitann allt of lengi svo út komu grjótharðar kökur, til að bragðbæta það aðeins prófaði JA að setja salt út á.    Ekki bætti það úr skák og ekki voru þær kökur borðaðar.

Það er víst hellings vinna eftir í uppeldinu Blush

Góða nótt allir saman - húsmóðirin sem bakaði eplaköku í dag , gleymdi reyndar að setja lyftiduft í hana svo kakan er í þynnra lagi - en bragðast vel :-) 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held að þú hafir bara sloppið vel ef eldhúsið er aldrei verra en þetta þegar þeir hafa verið gera tilraunir.

Ella frænka (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 12:35

2 Smámynd: Anna Ágústa Bjarnadóttir

tilraunir hér heima hjá eldri dótturinni með mat og alskonar krydd var sem betur fer gert í vaskinum en ýmislegt fór í ruslið sem hefði betur verið varið í matseldina og bakstur

kv úr neðri byggð

Anna Ágústa Bjarnadóttir, 24.4.2009 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

187 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband