Strákur ennþá veikur

SÁ er ennþá veikur - held þó að hann sé að komast yfir þetta en hann fer ekki í skólann, fjórða daginn í röð.  Hann er búinn að vera mjög slappur þó svo hái hitinn hafi ekki verið nema í rúman sólarhring.   Slappur, orkulaus og ekki einu sinni haft matarlyst.  Og þá er eitthvað að þegar þessi drengur vill ekki borða.  En sem betur fer er þetta allt á réttri leið.

Annars hefur heilsufarið verið nokkuð gott á heimilinu sl 2 vetur.  Það er helst sá stærsti og elsti sem hefur verið duglegur við að sníkja sér hinar og þessar pestir.  Ég þurfti allavega að leita töluvert áður en ég fann hitamælinn og það segir manni að hann hafi ekki verið mikið notaður undanfarið.

J.A finnst frekar skrítið að fara "bara einn" í skólann og hefur verið hálf vængbrotinn þessa vikuna, ekki viljað vera úti, ekki leika sér við neinn.  Bara verið heima.  Samt eru þeir bræður ekki mikið saman í skólanum og leika sér "næstum aldrei " saman í frímínútum.   En honum finnst greinilega eitthvað óöryggi í því að hafa bróður sinn ekki á svæðinu. 

Þarf að hitta kennarann hans SÁ á morgun - sjá til þess að sá stutti fá nú heimalærdóm fyrir helgina.  Honum finnst það nú algjör óþarfi GetLost

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ágústa Bjarnadóttir

blessuð,

ætli þetta óöryggi fylgir mörgum tvíburum,krílin okkar finna fyrir óöryggi þegar annað þeirra er ekki með,  t.d. á leikskólann svo við höfum þau oft saman heima en annað gildir á leikskólanum,þau geta alveg verið í sinn hvorum hópnum ekkert mál en vilja vita hvort af öðru,það ríkir sem sagt á milli þeirra

 kv úr neðri byggð

Anna Ágústa Bjarnadóttir, 30.4.2009 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

188 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1589

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband