3.5.2009 | 23:00
Er kreppan bśin ?
Spurši JA ķ gęr žegar 10 manna hópur var į leiš į veitingastaš og fyrir lį aš panta žyrfti leigubil. Ég rak upp stór augu og skyldi ekki alveg samhengiš. Jį žaš er svo dżrt aš fara ķ leigubķl sagši sį stutti. Ég fullvissaši hann um aš leigubķlar vęru ekki svo dżrir og žar aš auki myndum viš heldur ekki keyra neitt mjög langt.
Strįkur įkvaš aš hafa ekki įhyggjur af kreppu ķ bili og fannst bara gaman aš fara ķ leigubķl į veitingastašinn žar sem halda įtti upp į stórafmęli afans frį Djśpavogi. Žegar žangaš kom var okkur vķsaš til sętis og allir fengu matsešla. "ég skil ekkert ķ žessu" kvaš viš hjį bręšrum žegar žeir reyndu aš lesa matsešilinn en žegar bśiš aš aš fletta fram hjį vķnsešlinum fóru žeir aš skilja eitt og annaš. Bręšur stautušu sig nokkuš örugglega ķ gegn um forréttasešilinn og mömmuhjartaš bólgnaši af stolti yfir žvķ hvaš žeim gengi vel aš lesa, sérstaklega žeim syninum sem hefur žurft į aukatķmum aš halda. Stoltiš hvarf žó all snarlega žegar sį sami fór aš skoša ašalréttina og žar sem hann er mun öruggari į tölunum en bókstöfunum žį fannst honum veršlagiš fyrir nešan allar hellur.
" VĮ mamma - ef mašur fęr sér svona žį kostar žaš 3900 " śff hvaš žetta er dżrt " žessi skošun strįksa fór enn fram hjį neinum žar sem honum lį ekki lįgt rómur. ég reynda aš sussa į strįk en hann hélt įfram " og ef mašur fęr sér svona žį kostar žaš 3080 krónur " Ég var farin aš rošna og sussa enn hęrra į strįk sem var ķ essinu sķnu " en hér er eitt sem kostar bara 900 hundruš " en žį greip amman fram ķ og sagši strįksa aš hann žyrfti ekkert aš spį ķ hvaš maturinn kostaši žvķ hśn ętlaši aš borga allt saman. Og žar sem bręšur eru handvissir um aš amma į Djśpavogi eigi nęstum eins mikla peninga og Jóakim Ašalönd žį lokaši strįkur matsešlinum og hafši ekki meiri įhyggjur af veršlaginu og boršaši mat og drakk gos meš bestu lyst žaš sem eftir var kvölds.
Eftir gott kvöld, gistingu hjį afa og ömmu, śtréttingar ķ Reykjavķkinni var kominn tķmi til aš halda heim į leiš. Viš stoppušum ķ Hafnarfirši og tókum bensķn. Mešan pabbi var aš dęla las SĮ į skilti : L Ę K J A R S K Ó L I stofnašur 1877. " mamma varst žś til žį ? spurši sonurinn svo . NEI - svo gömul er ég ekki. Žaš voru heldur ekki til risaešlur 1877 og ekki heldur žegar ég var lķtil.
Viš keyptum ekki takkaskó ķ dag en eigum erindi ķ höfušborgina į žrišjudag - ętlum aš kaupa takkaskó žį
Um bloggiš
kona á besta aldri
188 dagar til jóla
Mįl dagsins
Fęrsluflokkar
Tenglar
Žetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg śr żmsum įttum
- Flott og gott Skemmtileg sķša sem ég rakst į fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleišingar um mat śr żmsum įttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Ķ dag (19.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frį upphafi: 1589
Annaš
- Innlit ķ dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir ķ dag: 1
- IP-tölur ķ dag: 1
Uppfęrt į 3 mķn. fresti.
Skżringar
Athugasemdir
žaš er bara hęgt aš
af strįkunum,ef börn eru ekki hreinskilin hvaš žį,
kv śr nešri byggš
Anna Įgśsta Bjarnadóttir, 6.5.2009 kl. 21:33
Ella fręnka (IP-tala skrįš) 9.5.2009 kl. 11:54
Bęta viš athugasemd [Innskrįning]
Ekki er lengur hęgt aš skrifa athugasemdir viš fęrsluna, žar sem tķmamörk į athugasemdir eru lišin.