Enginn bloggandi á þessu heimili

Bloggandinn liggur í dvala - myndi kannski vakna ef hægt væri að fara með tölvuna út á pall.  Tek það til athugunar fljótlega.

í Fréttum er þetta helst :

Fórum ekki út úr bænum um hvítasunnuhelgina, skruppum eina ferð í Húsasmiðjuna í Keflavík og fjárfestum í birkiplöntum.  Bóndinn fer hamförum í garðyrkjunni þessa dagana, búinn að gróðursetja sumarblóm, birkiplöntur og smíða blómakassa.  Þar fyrir utan skipuleggur hann síðustu fermetrana af garðinum á milli þess sem hann skreppur í veiðiferðir, þrífur bílinn og viðrar tjaldvagninn.  Nýtt grill lenti á pallinum á föstudag og bóndinn grillar af miklum móð.

Bræður sparka bolta af miklum móð, sérstaklega SÁ.  Ef hann hverfur að heiman þá er nánast hægt að ganga að honum vísum á Sparkvellinum við skólann.   Langþráð skólaslit eru á morgun og framundan er skemmtilegt líf án skólatösku og kennslustunda.  Bræður fara á fótboltaæfingar og að öllum líkindum í Fótboltaskóla Lýsis og Grindavíkur sem byrjar á morgun.  Nóg að gera.

Mamman er búin að þvo og þurrka óhemju magn af þvotti , sitja á pallinum, þrífa húsið fyrir utan að skreppa í nokkrar hjólaferðir.  Einnig hefur þurft að fara í matvörubúðina því góða veðrið hefur gífurlega lystaukandi áhrif og bræður eru sísvangir.  Ég leitaði að bökunarandanum í dag en hann lét ekkert á sér kræla.  Óska hér með eftir góðum baksturshugmyndum.  Ekki verra ef uppskriftir fylgja með.

Jarðskjálftahrina sá um að valda smá taugaspennu hjá mér en aðrir fjölskyldumeðlimir voru pollrólegir yfir þessu.   Kjörið tækifæri að biðja um " einn hristan - ekki hrærðan " á barnum um helgina.

Neikvæðu fréttir vikunnar eru helsta að hlaupahjólinu hans JÁ var stolið um helgina og að ég fékk uppsagnarbréf í vinnunni ( eins og allt annað starfsfólk )  -  Svona er að vinna á útboðsmarkaði börnin góð.  Það kemur vonandi í ljós fyrir næstu mánaðamót hvort uppsagnabréfin fara í tætarann eða ekki.   Nenni ekki að stressa mig yfir því - veðrið er allt of gott til þess og svo verður Sjóarinn Síkáti um næstu helgi og glimrandi stemming fram undan.  Dagskráin lofar allavega góðu og góð stemming er í bænum. 

legg drög að því að tölvutengja pallinn - þá verð ég kannski duglegri að blogga í sumar Smile 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

188 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1589

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband