Kaupþingsmóti lokið

Bræður og mamma fóru á fótboltamót um síðustu helgi, ásamt rúmlega 30 öðrum strákum úr Grindavík, foreldrum þeirra og ca 1100 öðrum strákum + foreldrum þeirra og systkinum.    Við fórum sem sagt á Kaupþingsmótið á Akranesi.  Voða gaman og allir ánægðir með ferðina.   Í svona ferðum sofa strákarnir í skólastofum og foreldrar skiptast á að vera með strákunum þannig að foreldrarnir eiga líka stund fyrir sig.  Ég tók næturvaktir þannig að ég svaf í skólastofunni með 19 strákum og 2 mömmum.  Þetta var upplifun út af fyrir sig.

18 strákar í einni flatsæng á gólfi.  Einn svaf til fóta hjá öðrum, einn pukraðist með lítinn tuskuhund því vinirnir máttu ekki sjá að hann svæfi með "eitthvað mjúkt".  Annar lét svo illa í svefni að hann rann af dýnunni og svaf á hörðu gólfinu mest alla nóttina.  Svo voru auðvitað einhverjir sem rifu sængur af öðrum og lágu þversum á öllum dýnum.  Bara skemmtilegt.

 EFtir að hafa deilt salernum  með rúmlega 100 tippalingum ( langflestum 7-8 ára ) en einnig nokkrum stærri komst ég að því svo um munar að það er ekki bara á mínum heimili sem er pissað út fyrir.  Það er greinilega gert bæði í Grindavík og í vesturbænum en KR ingar voru í næstu stofum við okkur. 

Hitt og þetta merkilegt kom fyrir :

  • Nokkrir Grindavíkurstrákar fengu áritun hjá Eið Smára W00t  Takk Eiður Smári.
  • Fylkisstrákur sló tönn úr JA ( rak hendina í munninn á honum og hitti beint á lausu tönnina sem liggur ennþá á vellinum )  Strákur fór af velli með blóðugan munn.
  • Sáum Ingó spila á kvöldvöku.  Ingó er kúl.
  • SÁ lenti í sjónvarpsupptöku hjá Stöð2 - kemur í ljós á morgun kl 19,15 á Stöð 2 sport hvort upptakan verður sýnd.
  • JA skoraði mark út víti.

Það gengur ágætlega hjá bræðum að vera einir heima á morgnanna og þeim finnst þetta mesta sport.  Þeir fá sér að yfirleitt að borða og muna næstum alltaf eftir að ganga frá eftir sig.  Stundum er bara of spennandi að komast í tölvuna og þá er ekkert verið að eyða tíma í að borða.  Þeir eiga að búa um rúmið sitt sjálfir.  JA man það alltaf og býr mjög vel um en bróðir hans er ekki eins vandvirkur.  Í dag var sængin t.d. þversum í rúminu en búið að slétta hana og gera "fína" svo ég ákvað að það væri ekki ástæða til að gera athugasemd.

Stundum gleymist hins vegar að loka útidyrunum þegar haldið er á fótboltaæfingar og pabbi kemur heim að galopnu húsi í hádeginu.  Ekki gott.

Norski bróðir og frú eru búin að panta gistingu þegar þau koma til landsins.  Tími ekki að leyfa þeim að sofa á pallinum svo þau verða að sofa inni og í rúmi. 

Stóri var að veiða uppi á fjöllum meðan á Kaupþingsmóti stóð - í spænuroki og leiðindaveðri.  Kom heim degi fyrr en hann ætlaði ,með 4 fiska og brotna veiðistöng.    Dýr ferð en ekki eins og rjúpnaferðin á síðasta ári Tounge  Hann er nú samt að hugsa um að fara aftur að veiða um næstu helgi.  Þetta er náttúrulega bara bilun.

Litli frændi átti gullkorn um daginn þegar hann sagði, dálítið hneykslaður , að hann hefði oft farið í sund síðan hann var smábarn og hefði aldrei drukknað.  Varð dálítið móðgaður þegar móðir hans var að efast um  hæfni hans til sjósunds og kom þá með þessa gullnu setningu.

Bræður létu bíða eftir sér í kvöldmat í kvöld - komu heim klukkna rúmlega hálf níu og þá var pabbinn búinn að banka uppá í húsi þar sem bræður voru.  Skil ekki foreldra sem ekki senda gestkomandi börn heim á kvöldmatartíma Devil

Heimili mitt er hætt að líta út eins og heimili - ef það kæmu gestir myndi ég fela mig og þykjast ekki vera heima.  Ætti kannski að hringja í Skjá einn og athuga hvort það sé nokkuð að fara ný sería af Allt í drasli í gang ?    Ef ég geri það ekki þá er vitað í hvað fyrstu dagarnir í sumarfríinu fara. Whistling

Góðu veðri spáð um helgina - bóndinn má alveg fara á fjöll með veiðistöngina  mín vegna, ég ætla út á pall LoL    

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú þarft ekkert að taka til fyrir mig! mér finnst rusl og drasl huggulegt og finnst gaman að tjilla á palli! Hlakka til að sjá ykkur :)

ps.. þurfti að endurskrifa í ruslpóstreitinn...reiknaði vitlaust summuna af tuttugu og fjórum....

Norska mágkona (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 08:39

2 Smámynd: Anna Ágústa Bjarnadóttir

þér er velkomið að kíkja,hér er líka drasl en það er hægt að riðja leið í eldhúsið að borðinu og gæða sér á kaffi og nýbökuðu,er ekki sagt að börnin þrífast best í mátulegum skít og drasli eða hvernig var það nú aftur

en frábært að fara á mót,það styttist í símamótið svo er dags mót á morgun í bænum,

kveðja úr neðri byggð

Anna Ágústa Bjarnadóttir, 29.6.2009 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

188 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1589

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband