29.6.2009 | 19:48
Setja karlinn í bann ?
Er í alvöru að spá í að setja bóndann í bann. Veiðibann. Úr síðustu veiðiferð kom bíllinn heim síðustu veiðiferð kom bíllinn heim með bilaðan vatnskassa. ( og nokkrir fiskar ) Úr þar síðustu veiðiferð kom brotin veiðistöng og örfáir fiskar. Þetta fer að verða dálítið dýrt sport
En það er öruggt að norski bróðir og frú geti smakkað á silungi þegar þau mæta á svæðið. Ég ákvað að gera tilraun til að búa til góða sjávarréttasúpu, hirti bein og afskurð af silungnum sem eiginmaður gerði að og flakaði. Hreinsaði afskurðinn upp og sauð ásamt grænmeti og kryddi, síaði soðið sérstaklega vel og nú bíður heimalagað fiskisoð eftir að verða uppistaðan í gómsætri fiskisúpu.
Bræður eru að verða unglingar. Vilja ekki fara að sofa og sofa svo fram eftir öllu. Druslast á fætur, seint og síðar meir og finnst sjálfsagt að leggjast fyrir framan sjónvarp eða blessaða leikjatölvuna. Hver nennir svo sem út um hádegi þegar sólin skín á glugganum Svo tilkynntu þeir mér áðan að þeir væru að fara í partý. og ekki nóg með það, það áttu allir að koma með eitthvað með sér.............................................................................................. að borða, fékk ég svo staðfest. Ekki laust við að ég andaði örlítið léttar. Partýið á reyndar ekki að vera í heimahúsi heldur út á róló. Fullorðnir eru samt ekki boðnir og mega ekki koma. Bara krakkar. Þetta fékk ég staðfest hjá ungu (næstum átta ára ) dömunni sem stendur fyrir partýinu.
Þarf að skjótast í vinnuna fyrir hádegi á morgun. Bræður hafa þá tölvutíma í friði EF þeir koma sér á fætur á skikkanlegum tíma.
Húsmóðir með frjóofnæmi
Um bloggið
kona á besta aldri
188 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1589
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ekkert hvítt hveiti(baraheilhveiti) ekki ger 1tsk lyftiduft á móti bolla af hveiti gengur líka í pizzubotna og ekki hvítan sykur .ÞRTTA Á AÐ gangafyrirbokr ÖLL
mamma (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 22:36
Mamma er ekki að predika bara að gefa góð ráð kveðja til Eiðs
mamma (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.