5.7.2009 | 13:05
loksins út á pall
Eyddi föstudeginum að mestu leyti úti á palli, fyrir utan að þvo þvott og hengja út, brjóta saman, elda mat og ganga frá, fara í búðina og versla, gefa nokkrum krökkum að drekka ( úti á palli reyndar ) og ganga frá eftir það, skipta á öllum rúmum, þrífa baðherbergið og bera nokkuð margar fötur af vatni út, en bræður og vinir eru í óða önn að búa til stökkpalla og gryfjur úti. Fór líka og horfði á fótboltaæfingu hjá bræðrum. Fékk reyndar vinkonu í heimsókn fyrir hádegi og við áttum notalega stund - úti á palli nema hvað. Ekki ónýtt að fá góða gesti sem þar að auki koma með glænýtt, volgt heimabakað bakkelsi með sér. Takk mín kæra.
Segið svo að það sé ekki ljúft að vera í fríi og afslöppun úti á palli
Bræður hafa að einhverju leyti fyrirgefið mömmu að hún skuli vera í fríi, það er gott að fá mat í hádeginu og svo hefur sú gamla stundum leyft þeim að fara í tölvuna. Bræður fengu nýjar gerfigrasbuxur í síðustu viku og nú í vikunni fengu þeir nýja skó. Allt keypt í sömu búð, í Reykjavík en þar fær Grindavíkurliðið afslátt. Skóinnkaupaferðin gekk reyndar dálítð brösótt - við vorum einni götu frá áfangastað þegar einkenni koma úr aftursætinu um að strákur þurfi að gubba. Ég beygi inn á næsta bílastæði og þá kemur gusa Ég stoppa og segi við strák " opnaðu hurðina " og næsta gusa lendir bæði á hurðinni og bílastæðinu. Bræður fara út úr bílnum og SÁ situr fölur og ræfilslegur á gangstéttinni meðan ég hreinsa það sem hægt er að hreinsa. " Mjólkurvörur" stynur stráksi svo upp og það passar. Bræður höfðu borðað dísæta bónus súrmjólk í hádeginu og það var nóg. Reynslan hefur kennt okkur það að sætar mjólkurvörur og bílferð endar undanatekningalaust með því að einhver gubbar. Við ljúkum erindum okkar í Reykjavík og höldum heim á leið. Þegar ca 7-8 kílómetrar eru eftir heim gubbar strákur aftur og aftur.
Lyktin í bílnum var ekki góð og hinn bróðir átti í mestu vandræðum með að gubba EKKI, bróður sínum til samlætis. En þetta jafnaðist fljótt þegar heim var komið og bræður vildu endilega fara út í nýju skónum sem þeir voru hæstánægðir með. Bíllinn var þrifinn og töframeðal sem bóndinn lumaði á losaði alla gubbulykt úr bílnum.
Sætar mjólkurvörur: leyfði bræðrum í gær að fá eftirmat, jógúrt að eigin vali, ( grillaðir hamborgarar í hádeginu ) og þeir völdu sér hrísmjólk með karmellusósu. Eftir hálfa dós vildu þeir ekki meira. Fannst þetta greinilega allt of sætt. Dísætar íslenskar mjólkurvörur er hins vegar efni í annað blogg og bíður betri tíma.
Annars hefur þessi vika verið dálítið blaut - en á maður ekki að vera jákvæður og hugsa um hvað það er gott fyrir gróðurinn
Bóndinn er búinn að vera lasinn í fjóra daga - svitnar og skelfur á víxl, fyrir utan að ónýtur skrokkurinn þolir illa að liggja mikið fyrir. Hann þóttist hressari í gærmorgun, dreif fjölskylduna í sund ( sennilega í þriðja skiptið á sjö árum sem hann fer í sund í sínum heimabæ ) og við dressuðum okkur upp seinnipartinn fyrir brúðkaupsveislu í Reykjavík. Bræður voru í góðum höndum hjá Gumma frænda á meðan sem leyfði þeim að horfa á ótrúlega skemmtilega mynd á meðan. Svo býr hann til miklu betri pizzu en mamma. Í nótt er bóndinn svo búinn að vera sárlasinn og þegar ég er farin að finna til með honum þá hlýtur hann að eiga dálítið bágt.
Nú er naggrísirnir orðnir 14 - tveir bættust við í gær. ég veit ekki hvar þetta endar.
Pallurinn er blautur - rigning í nótt. Ekki útlit fyrir letidag á pallinum í dag , kannski ég baki eitthvað í staðinn. Lofa samt engu.
Um bloggið
kona á besta aldri
188 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1589
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fáum við að koma á pallinn þegar að við komum ?
Ingþór Sigurðarson (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 19:12
Auðvitað, ekki spurning. Ég kem til með að nota tækifærið að monta mig af pallinum á pallinum. Ekki leiðinlegt
Húsmóðir, 5.7.2009 kl. 21:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.