Hver er feitastur ?

Í góðviðrinu í dag stóð ég inni og bakaði.   Bræður ( og einn vinur ) uppgötvuðu um tvöleitið að mamma var að baka og þá var ekki hægt að leika lengur úti, tóku ekki sénsinn að missa af kaffitímanum.  Fannst mjög hentugt að leika sér inni svo þeir misstu ekki af neinu.

rúmlega klukkutíma seinna er allt tilbúið, ég geri klárt fyrir kaffitíma úti á palli og kalla á strákana sem eru sestir eins og skot.  Þeir hakka í sig tebollur og bananabrauð með bestu lyst og eru meira að segja komnir úr að ofan.   Þar sem við sitjum kemur pabbi heim í kaffi, hann sest niður og gæðir sér á kræsingunum.   SÁ vill fá meiri tebollur en þær eru búnar.  Pabbi potar í magann á honum og segir að hann sé kominn með bumbu.  JA þenur út magann á sér og segist vera lang feitastur.   Vinurinn horfir  á hann og segir svo  hissa : Neeeiiii, pabbi þinn er feitastur.  JA glottir og horfir á mig " nei mamma hún er miklu feitari !

Við feitabollurnar horfðum á hvort annað og báðum svo drengina um að tala um eitthvað annað.  Þeir gerðu það, sem betur fer.

Hafnfirski bróðir á afmæli í dag, til hamingju með það kæri bróðir.  Hann er ekki gamall, örlítið yngri en ég.  Einkennilegt samt hvað foreldrar okkar eiga gamla krakka Blush

Þar sem ég stóð fyrir framan sjóðheita eldavélina áðan þá langar mig EKKERT til að hugsa um kvöldmat.  Kemst sjálfsagt ekki hjá því, bræður verða sjálfsagt að DREPAST úr hungri eins og venjulega þegar líður að kvöldmatartíma. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

188 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1589

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband