Af hverju ?

Ég fékk góða gesti í heimsókn í vikunni - vinkona og 7 ára dóttir sem búa á höfuðborgarsvæðinu.  Mæðgur settust inn í eldhús en sú yngri var dálítið óörugg með sig og fór ekki langt frá mömmu sinni.   Eins og barna er siður þá varð hún nú fljótlega svöng, svona fyrst hún var í annarra manna eldhúsi.  Whistling   Ástandið í ísskápnum var frekar fátæklegt, við nýkomin úr útilegu og ekki búið að fara í búð.  Þeirri stuttu leist nú ekki allt of vel á það sem ég bauð henni, vildi ekki ávexti, ekki saltstangir og ekki hrökkbrauð.  Meðan ég leita betur í skápum segir hún í hneykslunartón við mömmu sína " Ég hélt nú að það væri allavega hægt að fá brauðsneið með osti hérna "

Að sjálfsögðu snaraði ég fram brauðsneið með osti og mjólkurglas sem sú stutta sporðrenndi með bestu lyst og allir ánægðir á eftir.

Seinna settumst við inni í stofu.  Sú stutta búin að horfa á DVD og teikna eina mynd þegar hún rekur augun í teikningar og för á sjónvarpsskjánum.  

 Af hverju er svona mikið ryk á sjónvarpinu ?  spurði hún hissa ( mamma hennar greinilega snyrtilegri en ég )   Mamman roðnaði og sussaði á þá stuttu.   Fannst greinilega eitthvað skorta á háttvísina.  Ég sagði þeirri stuttu eins og var, að mér þætti hundleiðinlegt að þurrka ryk og nennti því  ekki alveg núna .  Ég myndi samt gera það seinna.  Hún var sátt við útskýringarnar og fannst ekki ástæða til að ræða þetta meira.

Ég er ekki ennþá búin að sækja tuskuna og þurrka rykið að hillusamstæðunni og í kring um sjónvarpið.  Sjónvarpsskjárinn er þó orðinn hreinn. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ágústa Bjarnadóttir

já þú meinar allt rikið sem hefur safnast saman,sko eldri dóttirin tók sig til um daginn og blöskraði allt rikið og tók sér tusku í hönd og spreybrúsa og fór hamförum um stofuna,það hafði safnast svo mikið fyrir að það tók dágóða stund að hennar mati,en skildi vel útskýringar móður sinnar að útiveran hafði heillað hana meira en verk sem ekki voru bráðnauðsinleg á heimilinu

Anna Ágústa Bjarnadóttir, 9.8.2009 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

188 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1589

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband