27.7.2010 | 21:43
Maðurinn minn á Kærustu
Það var ást við fyrstu sýn ( frá hans hendi allavega ) frá því hann sá hana fyrst sl fimmtudag.
- Síðan þá hefur hann legið undir henni, strokið henni, nuddað og klappað og eytt nánast öllum vökutíma sínum með henni
- Hann kemur rétt heim til að borða og sofa og jafnvel þá talar hann stanslaust um hana
- Keypt ýmislegt nýtt handa henni
- Hún er 16 ára
- með fjögur hjól og stýri og í skráningarskírteininu stendur Volkswagen Golf.
Ég hef hins vegar ákveðið að kalla bílinn Kærustuna og er alvarlega að spá í að láta útbúa límmiða með nafninu KÆRASTAN og setja í afturgluggann.
Ómar Ragnarsson fór um allt land á Frúnni - Eiður getur alveg farið í skólann á Kærustunni ! Er það ekki ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.7.2010 | 19:23
Á hverju byrjar maður eftir svona langt hlé ?
Hef ekki komið nálægt bloggheimum ansi lengi - hvorki mínu eigin né annarra. Hef hvorki skrifað á mitt blogg og varla lesið annarra manna blogg. Vil þó ekki viðurkenna að ég sé forfallin fésbókarfíkill en viðurkenni þó að heimsækja fésbókina reglulega.
Heilsufar fjölskyldumeðlima er bara nokkuð gott - bóndinn losnaði við aukahlutinn úr fætinum um miðjan apríl - öllum til mikillar gleði. Við heimsóttum doktorinn í Reykjavík og vonuðumst eftir dagsetningu á hvenær mætti taka draslið úr. ( héldum að þyrfti aðgerð til ) Doktorinn var hins vegar svo ánægður með hve allt hefur gengið vel að hann skrúfaði bara dótið úr á staðnum. Bóndinn fór því heim hálfu kílói léttari.
Til að gera langa sögu stutta þá er hann laus við hækjurnar - getur svo sem flest allt sem hann ætlar sér nema beygja hnéð. Hann hefur lítið komist í sjúkraþjálfun en á að vera duglegur að hjóla og gera æfingar sjálfur. Lóðin bak við hús er komin í fínt form og bíllinn er þrifinn reglulega. Hann er þó langt frá því að vera að fullu vinnufær. Í vetur sest hann því á skólabekk, dagskóla, með öðrum unglingum í Iðnskólanum í Hafnarfirði og mun því væntanlega útskrifast með sveinspróf í pípulögnum næsta vor. Það er aldrei of seint að ná sér í menntun. ( Ef atvinnuástandið á landinu verður ekki farið að skána næsta sumar þá er hann allavega kominn með réttindi og getur fylgt í fótspor fleiri íslenskra iðnararmanna og sótt um vinnu í Noregi. )
Bræður hafa verið sprækir og ekki orðið misdægurt. Njóta þess í botn að vera í sumarfríi, vaka lengi og sofa frameftir. SÁ varð reyndar fyrir óhappi á Klaustri sl mánudag. Við vorum nýbúin að tjalda og vorum að byrja að grilla þegar strákur dettur og það brotnar upp úr báðum framtönnum. Eftir símtal við tannlækni er ákveðið að bruna á Selfoss og þangað erum við komin rúmlega 10 um kvöld. Eftir 1 og 1/2 tíma í stólnum hjá Tannlæknahjónunum stendur strákur upp með hvítt og fínt plast í tönnunum og ekki hægt að sjá hvað eru tennur og hvað eru plast.
Eftir að fjölskyldan hafði gúffað í sig bensínstöðvarsamlokum ( allir orðnir glorhungraðir ) þá var brunað á Klaustur aftur ( tjaldvagninn, sængurnar okkar og allt annað dót varð eftir þar ) reyndar með smá stoppi á Hvolsvelli í húsbílnum hjá afa og ömmu. Á Klaustur vorum við svo komin um kl hálf þrjú um nóttina. Þið getið ýmindað ykkur hvort við vorum fljót að sofna eða ekki !
Þó svo það hafi verið gaman í ferðalagi þá var líka gott að koma heim. Bæði að sofa í sínu rúmi og " gott að komast á klósettið heima hjá sér " ( JAE) Ókosturinn við að koma heim er hins vegar að skyndibitaát og gosdrykkjaþamb er að mestu bannað.
Þar sem bóndinn verður fátækur námsmaður í vetur og ég þá væntanlega fátæk námsmannafrú þá er kannski eins gott að fara dusta rykið af sparnaðarráðum hagsýnu húsmóðurinnar. Hver veit !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.3.2010 | 22:26
húsmóðurlíf og fótleggur með aukahlut
Ég er húsmóðir - hangi við tölvuna í flíspeysu og í crocks skóm með hárið út í loftið. Skil ekki að ég skuli ekki vera úthvíld og endurnærð eftir helgina, ég sem þarf ekki lengur að vakna til smábarna á nóttunni.
Hefur sennilega eitthvað með það að gera að helgin hefur að mestu leyti farið í þrif, þvott, eldamennsku og svo bakaði ég aðeins í dag. Ágætis möffins og svo orku/múslí stangir sem ég er reyndar ekki búin að smakka ennþá. Geri það kannski á eftir. Bræður eru komnir í páskafrí svo nú verða þeir þrír heima sem þurfa fóðrun. Eins gott að það verði eitthvað til. Annars virðist vera sama hversu mikinn mat ég ber í ísskápinn, það er alltaf tómahljóð í honum.
Ætla að reyna að nota páskafríið til að baka meira.
Ég fékk smá tíma frá heimilisverkunum á laugardaginn. Fjölskyldan fékk bílinn hjá afa og ömmu í rauða húsið lánaðan og lagði leið sína í hjólabúðir í Reykjavík til að skoða hjól handa bræðrum og gera verðsamanburð. Af hverju fengum við lánaðan bíl ? Meira rými í framsætinu fyrir þann stóra með aukahlutinn. Auðveldara fyrir hann að sitja og fer betur um hann. Svo er ömmubíll líka sjálfskiptur og sá stóri ákvað að nú skyldi hann prófa að keyra. Það gekk svona ljómandi vel og sá stóri var alsæll við stýrið. Við keyptum hjálma í einni búð og hjól í annarri. Sníktum kaffi á góðum stað en þá tók ég ráðin af bóndanum - sem var orðinn ansi þreyttur eftir að staulast inn og út úr búðum og bíl. Sótti töfluglasið og hann tók töflurnar sínar orðalaust. Hann sat í farþegasætinu á leiðinni heim og svaf mest alla leiðina heim. Í góðu lagi mín vegna, hann var þá ekki í hliðarsætisbílstjórahlutverkinu á meðan.
Annars er skapið orðið ansi erfitt og þráðurinn stuttur. Aðgerðar og hreyfingarleysið er farið að taka sinn toll. Hann á tíma hjá lækni eftir páska og við krossleggjum bæði fingur og tær og vonum að þá komi dagsetning ( sem fyrst ) hvenær má taka aukahlutinn úr.
Ég vorkenndi mér áðan fyrir að vera sú eina í húsinu sem þyrfti að mæta í vinnu í fyrramálið. Meðan ég setti myndirnar inn ákvað ég að hætta að vorkenna mér og vera frekar þakklát fyrir að geta mætt í vinnu í fyrramálið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.3.2010 | 23:00
þegar borðtalvan datt á eyrað á mér...........
mars mánuður hefur verið ansi viðburðaríkur og tíminn hefur hreint og beint flogið áfram. Nú er mars að verða búinn og bræður komnir í páskafrí í vikulok. Frí í skólanum , borða morgunmat fyrir framan sjónvarpið og svo páskaegg . Það hljómar afskaplega vel.
Móðir mín elskuleg fékk hringingu fyrr í þessum mánuði - " Þú átt að koma strax til Reykjavíkur og flinki læknirinn ætlar að skera í bakið á þér og laga brjósklosið þitt " Konan hlýddi strax - setti tannburstann og hreina sokka í tösku og settist upp í flugvél sem flutti hana til Reykjavíkur. Þegar hún mætti á sjúkrahúsið tók læknirinn á móti henni, skoðaði hana og potaði í hana og spurði " hvernig líður þér í dag ? " Konan vildi ekki skrökva og sagði lækninum að sér liði ekkert mjög illa í dag. " Jæja góða mín, sagði flinki læknirinn, þá er ekki ástæða til að brýna hnífinn. Kannski batnar þér bara aftur. Þú mátt fara heim aftur og í vinnuna. En ef þér líður mjög illa má mátt þú hringja í mig hvort sem það er dagur eða nótt "
Sem sagt - af því að hún vældi ekki nóg þá má þetta bíða. En það veit enginn hvað hann ætlar að gera ef hún fær enn eitt verkjakastið og getur sig varla hreyft. Kannski rölta austur á firði með skurðhnífinn í vasanum.............................. ?
Um svipað leyti ákvað tölvan mín að hætta starfsemi. Ég hef samband við tölvulækni sem segir mér að koma með gripinn svo hann geti handfjatlað hann með sínum töfrahöndum. Ég geri það og á þeirri 4 mínútna ferð sem það tók mig að fara heiman frá mér og heim til tölvulæknisins tókst mér að meiða mig heiftarlega þega talvan datt á eyrað á mér. Fyrir þá sem ekki hafa upplifað þetta þá er þetta mjög sárt Ég lagðist í sólarhringsþunglyndi þegar tölvulæknirinn sagði að allar líkur væru á að gögnin í tölvunni væru töpuð. Ég fíflið átti nefnilega engin afrit. Þunglyndið lagaðist snarlega þegar tölvulæknirinn hringdi og sagðist hafa náð öllum gögnum. Ég keypti nýjan harðan disk í tölvuna sem hefur aldrei verið sprækari.
Um þarsíðustu helgi fengum við símtal sem allir foreldrar óttast "sonur þinn varð fyrir bíl" JA var nýkomin heim af fótboltaæfingu svo við vissum strax hvor sonurinn það var. Ég þaut út í bíl og á slysstað meðan sá á hækjunum varð að sjá um að klæða sig sjálfur. Sjúkrabíll var komin á staðinn þegar ég kom og við brunuðum í Kef. Til að gera langa sögu stutta þá fór þetta allt saman á besta veg. Strákur var óbrotinn en bólginn og marinn á báðum hnjám og fótum. Smá marblettur á höfðinu en hjálmurinn bjargaði þvi að ekki fór ver.
Það er ekki ofsögum sagt að öllum hafi verið létt, ekki síst þeim ólánsama bílstjóra (og fjölskyldu hans ) sem keyrðu á stráksa. Reyndar var það strákur sem hjólaði í veg fyrir bílinn, leit ekki nógu vel í kringum sig. Sem betur fer var bíllinn á mjög hægri ferð.
Strákur hefur verið aumur og með verki í fótum en það er á undanhaldi sem betur fer. Ekki er að sjá að neinir eftirmálar verði af slysinu. Kaupa þarf nýjan hjálm og nýtt hjól. Gamla hjólið sem bæði var orðið gamalt og lúið er skakkt og handfangið bogið en verður að duga þar til keypt verður nýtt hjól. Það var reyndar á dagskránni hvort eð er en þetta óhapp flýtir þeim fyrirætlunum sennilega aðeins.
Sá á hækjunum er orðinn virkilega hundleiður á inniveru og því að vera á hækjum. Allt lítur þetta þó vel út og við liggjum á bæn um að læknaheimsókn eftir hálfan mánuð gefi dagsetningu hvenær megi taka aukahlutinn úr fætinum. Við fórum aðeins á rúntinn í dag og ekki laust við að lundin hjá hr Hækju hafi orðið örlítið léttari eftir það.
Fjölskyldan fór í Smáralindina um síðustu helgi - trilluðum um með húsbóndann í hjólastól. Honum fannst ægilega gaman - sá fólk og drakk meira að segja einn bjór, vildi helst ekki fara heim . Bræður voru ekki sammála. Þeir áttu peninga sem þeir máttu kaupa dót fyrir. Þegar því var lokið voru þeir komnir með heiftarlegt ofnæmi fyrir búðum og vildu fara heim sem fyrst.
Bræður voru á fótboltamóti um helgina - ekki riðu þeir feitum hesti frá þvi en JA var sæll og ánægður með markið sem hann skoraði. Hann má það líka.
Ég nenni ekki að fara í mína eigin skattaskýrslu - á pottþétt eftir að sækja um frest.
Bloggar | Breytt 24.3.2010 kl. 07:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2010 | 21:58
Ég er fífl
Ég er fífl sem á ekki afrit af gögnunum sem eru í tölvunni minni. En þökk sé honum TölvuBenna þá varð ég ekki að þeirri fíflategund sem tapaði öllu út úr tölvunni sinni OG ÁTTI EKKI AFRIT. TölvuBenna tókst að bjarga öllum gögnunum mínum, bæði vinnu og prívat. Og nú á ég tölvu með nýjum og stærri hörðum diski.
Á morgun ætla ég að hætta að verða fífl og taka afrit af öllum gögnunum mínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2010 | 21:18
Riffill, tætari og basúkka.
klukkan 7,50 í morgun, frammi í forstofu, ræddu bræður af miklum móð um mismunandi aðferðir við að hlaða mismunandi vopn, eins og riffil, tætara og basúkku. Umræðan tók þó endi þegar stressuð móðirin galaði eitthvað á þessa leið " eruð þið ekki ennþá búnir að klæða ykkur og við eru orðin allt sein " Það hafðist og bræður mættu í skólann á (næstum) réttum tíma.
Eins gott að það voru ekki vitni að þessum samræðum - hljómar eins og ungliðadeild Al Kaieda !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2010 | 21:32
mottur og hjúkrunarheimili með minnkandi þjónustustig
Eins og margir vita er mottumars þar sem bæði norski og hafnfirski bróðir taka þátt. Sá norski skoraði á bóndann sem ákvað fyrir stuttu að taka þátt og hamast nú við að safna í mottu. Ekki það að hann hafi neitt skárra að gera en mikið sem ég verð fegin þegar mars - tími hár og hor mottu verður liðinn. Ég hugga mig við það að hinar fjölmörgu tilraunir sem bóndinn hefur gert í gegn um tíðina til að safna einhvers konar skeggi hafa aldrei tekist. Hann hefur alltaf gefist upp og sótt hr Gillette.
Vinnufélagi minn sem er kona á besta aldri eins og ég á eiginmann sem skartar stoltur svokallaðri mottu þessa daganna, við lítinn fögnuð dætra og eiginkonu. Eiginkonan hótaði því eitt kvöldið að munda rakvélina og losa andlitið við þessa hárbrúsk einhverja nóttina. Hún dró það samt fljótlega til baka þegar eiginmaðurinn glotti og sagðist myndu borga fyrir sig með þvi að raka aðra augnabrúnina af henni einhverja nóttina á eftir. Vinnufélagi er ennþá með tvær augabrúnir og eiginmaður vinnufélaga skartar ennþá hárbrúski fyrir ofan efri vör.
Þjónustustigið við bóndann fer lækkandi. Í morgun fór ég í vinnuna án þess að skilja neitt tilbúið eftir fyrir eiginmanninn til að snæða. Skellti hníf, ostaskera og sultu á stofuborðið ásamt hrökkbrauði og flatbrauði. Hann þurfti að sækja smjör og ost í ísskápinn og smyrja sjálfur. Vonda konan ég En menn sem geta klætt sig sjálfir í skóna sína geta líka smurt brauðið sitt sjálfir ! þessi lega er að fara frekar illa með hann, hann safnar hormottu og horfir á dr Phil í sjónvarpinu eftir að hann er búinn að rífast við þingmenn á annarri sjónvarpsrás.
Það fjölgar á hjúkrunarheimilinu í vikulokin en móðir mín elskulega leggst undir hnífinn í vikunni ( brjósklos) og ætlar að vera hjá mér í einhverja daga. Þau Eiður geta allavega farið í taugarnar á hvort öðru því ekki verða þau fær um margt annað.
Bræður gátu verið á venjulegum skóm í allan dag og voru hæst ánægðir með það. Veðurspáin býður ekki upp á annað en stígvél á morgun. Það verður ekki eins mikil hamingja með það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2010 | 00:03
Mokaði ekki mikinn snjó
Þó svo snjórinn hafi sýnt sig hér á Suðurnesjunum þá verður seint sagt að ég hafi mokað mikinn snjó. Tók mig þó til í vinnunni og mokaði frá skrifstofudyrunum. Kom svo heim og mokaði bílastæðið meðan JA mokaði snjóinn frá dyrunum. Meira var ekki mokað. Enda allur snjór farinn og von á syndaflóði næstu daga.
Stóri átti dálítið bágt - sitja aleinn inni í stofu með hækjunum sínum með frúin klæddi sig í kuldagalla og mundaði snjóskófluna. Held að honum hafi þótt vegið að karlmennsku sinni Miðað við aðstæður hefur hann það ágætt, verkirnir farnir að minnka og hann getur aðeins beygt hnéð og er farinn að tylla örlítið í fótinn svo hann er ekki alveg eins "ósjálfbjarga " Er farinn að geta klætt sig sjálfur þannig að nú þarf ég ekki lengur að vekja hann og klæða áður en ég fer í vinnunna. Svo kom Bjössi "hjálpartækjasmiður" í heimsókn í vikunni - búinn að smíða þessa fínu plötu sem er sett ofan á baðkarið. Tími þvottapokans og vaskafatsins er sem sagt liðinn og bóndinn naut þess virkilega að komast loksins í sturtu.
Á síðasta föstudag las ég bókina hennar Láru Ómars sem heitir Hagsýni og Hamingja og fjallar um hvernig eigi að spara, nýta það sem maður hefur og á, og gera mikið úr litlu. Eitthvað fór bókin öfugt í mig ( ég hef kannski lesið hana afturábak ) því á sunnudeginum keyrði ég í Reykjavíkina og eyddi fullt af peningum í skó á mig. Ætlaði að skoða vetrarúlpur á bræður en keypti sumarjakka á þá í staðinn.
Er farin að hlakka mikið til að fara austur og á Hammond hátíðina - hef trú á að ég hitti slatta af brottfluttum Djúpavogsbúum þar í bland við þá sem búa þar núna. Bara gaman. Ekki spillir fyrir að báðir bræður mínir ætla að mæta þannig að foreldrar mínir verða með fullt hús í orðsins fyllstu merkingu.
Bjó til girnilega orkustangir í gær sem bræður fá með í nesti í fyrramálið. Deili kannski uppskriftinni við tækifæri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2010 | 15:28
Konudagur í dag og hvað með það
Ósköp venjulegur sunnudagur nema hvað um hádegisbilið fengum við gesti. Skemmtilegt fólks sem stendur oft upp úr sófanum og heimsækir annað fólk. Bóndinn lá ennþá í rúminu, bræður léku sér og ég var önnum kafin við að þrífa.
Skúringafötunni var snarlega skellt til hliðar, bóndinn fékk aðstoð við að klæða sig og bræður fengu leikfélaga í heimsókn. Notaleg stund að baki, bræður komnir út og við hjónin ein heima.
Sá stóri glímir við tölvuna svo hann geti séð enska boltann, ég ætla að hengja upp úr þvottavélinni og reyna svo að finna út hvað mig langar að borða í kvöld. Ég verð víst að elda það líka en það er önnur saga........................
Bóndinn fékk símhringingu í gær " til hamingju " var sagt í símann.
Bóndinn þagði smá stund og sagði svo " með hvað" ?
Viðmælandinn hinu meginn trúði varla sínum eigin eyrum " með hvað, þú fékkst dýr maður "
Þá kveikti bóndinn loksins, það var víst dregið í hreindýralottóinu og loksins fékk hann úthlutuðu dýri. Svona fer það með heilastarfsemina að vera heima í sófanum í næstum 4 vikur. En þessar fréttir ættu að virka hvetjandi fyrir þann stóra sem verður virkilega að vera duglegur í endurhæfingu og æfingum ef hann ætlar sér að fella dýrið sjálfur
Bræður horfðu með öðru auga á Gettu Betur í sjónvarpinu í gærkvöld. þar var m.a sýnt gamalt viðtal við Halldór Laxness heitinn, að sjálfsögðu í svarthvítu. Strákur horfði á þetta og sagði svo " hann hlýtur að vera fæddur 18 hundruð og eitthvað - fannst maðurinn greinilega afskaplega forneskjulegur og aldraður. Það munaði ekki miklu hjá stráksa en Halldór fæddur Guðjónsson var fæddur 23 apríl 1902.
Skítakuldi úti en fínasta gluggaveður - kemur í ljós hvort ég legg í að fara gangandi í búðina á eftir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.2.2010 | 14:44
Ef ég væri karlmaður
Hefði heimilisfólkið fengið að heyra í morgun
" Ég ætla að þvo bílinn, hann er alveg grútskítugur "
Þegar bíllinn hefði verið orðinn hreinn þá hefði komið önnur tilkynning "ég er búinn að þrífa bílinn, hann var sko virkilega óhreinn "
en þar sem ég er kvenmaður kom engin svona tilkynning. Eiginmaðurinn er búinn að svekkja sig heil ósköp á skítugum bíl síðustu tvö skiptin sem hann hefur farið út fyrir hússins dyr ( í skoðun á landspítalann í Fossvogi ) Rusl og drasl innandyra truflar hann hins vegar alls ekki - ekki einu sinni 3 sentimetra þykkt ryklagið sem var komið á hillurnar í stofunni.
En bíllinn - það er hins vegar annað mál. En þar sem þráðurinn í karli er farinn að styttast eftir næstum 4 vikna sófalegu þá var eins gott að strjúka aðeins af bílnum. Bíllinn var sem sagt þveginn í dag !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
kona á besta aldri
189 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar