Það eru 68 dagar

til jóla.  Eru það ellimerki að finnast tíminn fljúga áfram - alltaf föstudagur í vinnunni og maður er varla búin að ganga frá jólaskrautinu frá þvi í fyrra þegar er kominn tíma til að hengja það upp aftur. 

Bræður voru í pössun í gær/nótt.  Afi og amma bjarga málunum eins og yfirleitt þegar við ákveðum að vera ekki sófakartöflur um helgar.  Fórum með 30 manna hóp, virðulega hjónafólki í súpu og brauð og sáum svo BuddyHolly  Fínasta skemmtun og tónlistaratriðin vel heppnuð.  Hefði viljað sjá meira af "Díana Lind Monzon"  en ég heillaðist alveg af flutningi hennar á lagi Aretu Franklin.

Vorum komin heim,  í náttföt og fyrir framan sjónvarpið rúmlega hálf tólf.  Ekki er skemmtanaúthaldið nú mikið.  Erum reyndar ósköp fegin bæði tvö að glíma ekki við heimatilbúin heilsufarsvandamál í dag. 

Sæluviku stráka lokið.  Afmæli - vetrarfrí og svo þriggja daga þemavika í skólanum og enginn heimalærdómur.   Bóndinn á svo afmæli í næstu viku.  Er búin að ákveða hvað ég gef honum í afmælisgjöf - á bara eftir að kaupa það

 

 


Afmælisveislan búin

og eins og venjulega er ég voðalega fegin að það eru svona um það vil 360 dagar í þá næstu.  Annars var þetta fínasti dagur og bræður og veislugestir ánægðir.  Reyndar voru afföll  - einhverjir veikir og einhverjir sem létu ekkert vita Devil .  Þótt svo allir hefðu mætt OG einhverjir tekið með sér gesti þá hefði verið meira en nóg af veitingum.  Ég  setti slatta í frystinn aftur, henti einhverju og allir komnir með ógeð á bananabrauði því það var í matinn næstu tvo daga á eftir.

Þarf greinilega að fara á námskeið í " hvernig á að áætla veitingar í veislu " .  Bæði kjúklingavængirnir á ættarmótinu og afgangurinn eftir þessa afmælisveisluna sanna það.  Ég er greinilega dálítið illa haldin af " það verður að vera nóg til " syndrominu Blush

Bræður fengu nýja síma í afmælisgjöf frá okkur foreldrunum og eru hæst ánægðir með þá.  Annar sonurinn  er kominn í kvöldsímabann en hann er búinn að spila leiki á símanum undir sæng undanfarin kvöld fram eftir öllu.  Skapið á morgnanna hefur líka verið eftir því.  Angry 

Unglingaeinkennin verða meira og meira áberandi.   Nú eru derhúfur t.d. ekki lengur derhúfur.  Bræður eru að byrja að elta tískuna og langar báðum í ákveðna týpu af derhúfum.  Þær eru "með beinu deri og ekki svona opnar að aftan "  Hvar skyldu svo þessar óskaderhúfur fást ?  "Æi eitthvað Brim " sagði SÁ sem þóttist afar vel að sér í derhúfumálum.

Það er sem sagt viðkoma í brettabúðum næst þegar við förum í höfuðborgina.   Ég hlýt að hafa misst af einhverju, það er agalega stutt síðan ég verslaði í barnafatabúðum.  Er ekki alveg tilbúin að samþykkja að það sé komið að unglingabúðum.

Það eru 71 dagur til jóla.  Er búin að kaupa 1,5 jólagjöf  - en þú ?

 


Innfæddir og utanbæjarmenn

hlaut að vera að þetta væri aðkomumaður - heimamenn gera að sjálfsögðu ekki svona..............


mbl.is Kúreki festist í fatasöfnunargámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóri dagurinn er á morgun

og spennan kraumar undir niðri.  Bræður verða þó forframaðri með hverju árinu og gengur betur að hafa hemil á spennunni.  Spyrja þó reglulega hvort við séum ekki búin að kaupa afmælisgjöf og hvort þeir fái ekki örugglega pakka.  Þeir vita að það er kominn pakki frá afa og ömmu að austan og fannst frekar fúlt að mamman skyldi setja hann strax inn í skáp. Devil    Svo komu góðir gestir í dag, hafnfirski bróðir og mágkona með glaðning - gjafabréf í bíó og pening.    Þetta er svo spennandi.

 Annars er ég

  • Búin að baka slatta, krossa fingur og vona að kræsingarnar dugi.
  • Tveir búnir að afboða sig og því ekki nema 18 gestir væntanlegir.
  • Veðurspáin lofar góðu

Hins vegar kom babb í bátinn og við þurfum að skila rútunni fyrr en áætlað var svo tíminn í skóginum er styttri en stóð í boðskortinu.  Frown  En það hlýtur að bjargast.  Í versta falli fæ ég 18 kraftmikla gaura í sykursjokki inn til mín.    Sumum (nefni engin hafnfirsk nöfn)  finnst þetta rosalega "2007" að leigja rútu fyrir barnaafmæli.     Betra er seint en aldrei að taka þátt í bruðlinu, ég keypti ekki einu sinni flatskjá. GetLost

Bræður eru orðnir afar spenntir og hlakka mikið til.  Þeir fá óvæntan ( sem þýðir óhollan ) morgunverð í fyrramálið, mega horfa á sjónvarpið meðan þeir borða og síðan mega þeir nánast hafa þetta eins og þeir vilja.  Það þýðir "non stop" tölvutími þar til annaðhvort foreldrið rennir í hlaðið og eyðileggur allt.

Það er nefnilega frí í skólanum hjá bræðrum Wizard  pabbinn er búinn um hádegi og mamman fær frí um hádegið líka.   Þá tekur fjörið við.  

 

Haldið þið ekki að sá stóri hafi staðið upp úr sófanum á laugardaginn og klætt sig í skó þegar ég sagðist ætla út að ganga.  Bara ánægð með kallinn !

 

 


Nú verð ég vond eiginkona

og geri grín að karlinum mínum. Shocking

Undanfarnar vikur hef ég gefið mér tíma nokkrum sinnum í viku til að fara út að ganga enda veðrið búið að vera með besta móti.  Þetta hefur ekki gert mér neitt nema gott. 

 Á sunnudag fór elskulegur eiginmaðurinn að nefna gönguferðir " hvort við ættum að fara að ganga aðeins "  Við hefðum bæði aldeilis gott af því, ekki síst hann sjálfur sem brúkar Kærustuna alveg óspart.  Ég hélt það nú, og hélt yfir honum frekar leiðinlega ræðu um að hann ætti að fara oftar - og þá styttra í einu,  ná upp styrk og þoli og bla bla bla bla.........  En af stað fórum við og gengum rösklega í rúmar 40 mínútur.  Vorum hress og spræk.

Á mánudeginum ( en þá er stuttur skóli og eiginmaðurinn kominn heim um hádegi ) var bóndinn ennþá jákvæður og til í göngur.   Ég skellti í þvottavél og gerði einhver fáein heimilisverk , klæddí mig í viðeigandi skó og af stað fórum við.  Fyrirlesturinn leiðinlegi frá deginum áður hafði greinilega ekki síast inn í kollinn á bóndanum því hann fékk að ráða gönguleiðinni og nú tók gönguferðin rúman klukkutíma.

Þriðjudagar eru langir dagar hjá skólakarlinum því hann er í skólanum til að verða 6.  Ég reiknaði því ekki með samfylgd á þriðjudeginum en þegar ég renndi í hlaðið að mínum vinnudegi loknum um hálf fjögur,  varð ég hissa að sjá Kærustuna í hlaðinu.   Ég varð líka hissa að sjá göngugarpinn frá deginum áður sofandi undir teppi í sófanum.  Sleeping    Þemadagar í skólanum var ástæðan fyrir stuttum skóladegi og að einhverju leyti ástæðan fyrir þreyttum eiginmanni sem afþakkaði að koma með mér í gönguferð og steinsvaf í undir teppinu næstu tvo tímana.    Ég leyfði honum að sofa og fór sjálf út að ganga.  

Miðvikudagurinn var svipaður- stuttur skóladagur - hundleiðinlegir þemadagar og ganga með hinum unglingunum í skólanum sáu til þess að eftirmiðdeginum var eytt í hægindastólnum.   Getið þið hvað ég gerði.

Fimmtudagar eru afar stuttir skóladagar og stundum þarf hann ekki einu sinni að mæta á fimmtudögum.  Hins vegar var hann afar duglegur heima fyrir, skúraði, þvoði þvott og undirbjó kvöldmat.  Seinni partinn var fjölskyldan svo búin að ákveða að skoða Sólbrekkuskóg og það gerðum við í hlýju og blautu veðri.  Fengum smá hreyfingu þar.  Þemadagar voru búnir svo það var sennilegasta skýringin á því að bóndinn eyddi ekki eftirmiðdeginu í sófanum eða hægindastólnum. GetLost

Föstudagur í dag - frí fyrir hádegi og bóndinn sat yfir bókum fyrir hádegi og barðist við excel töflur og teikningar þegar hann kom heim úr skólanum.  útréttingar og stúss á mér svo það var engin ganga í dag.

Laugardagur á morgun og engin afsökun fyrir bóndann að fara út að ganga.   Skyldi hann gera sér grein fyrir því að það eru bara 18 dagar þar til rjúpnaveiðitímabilið hefst.  Ekki fer hann á Kærustunni að veiða rjúpur..............

Undirbúningur fyrir mánudaginn er hafinn - búið að útvega rútu og bakstur framundan á morgun.  Veðurspáin lofar góðu og ekki ónýtt að geta haldið útiafmæli í október Smile

 

 


spennan magnast

það er nefnilega vitað mál að "afmælið" er á mánudaginn.  Bræður hafa tékkað á dagatalinu undanfarna viku og telja nú spenntir niður.

Til að kóróna spenninginn þá kom pakki í póstinum í gær sem var svo sóttur í dag.  Úff það var svo erfitt að mega ekki opna hann strax.

Líkur eru á að afmælið verði haldið utan dyra í ár - við fórum í dag að skoða aðstæður og líst vel á.  Ef við fáum faratæki sem getur ferjað alla boðsgesti í einu og ef veðurspáin tekur ekki stórvægilegum breytingum þá verður þetta útiafmæli.  Annar sonurinn var ekki alveg sáttur í byrjun - fannst ómögulegt að það yrði ekki kaka. GetLost   ég bauð honum köku í morgunmat í staðinn.  Hann var sáttur við það.

Það verður samt bakstur um helgina þó svo það verði ekki afmæliskökubakstur !


ég er besta mamma í heimi

 " mamma " getum við haft pizzu í matinn ?   sagði sonur við mig um klukkan hálf sjö ( á föstudagskvöldi )

" kannski " sagði mamman, sem var búin að panta pizzu því hún nennti ekki að elda Blush

" og getum við þá pantað hana ?" sagði sonurinn sem finnst heimabökuðu pizzurnar mínar ekkert sérstakar .

" kannski " sagði mamman bara og beið eftir að klukkan yrði nógu margt svo hún gæti sótt pizzuna.

" ef þú gerir það þá ertu besta mamma í heimi " sagði sonurinn og gaf mömmu sinni koss á kinnina. InLove

Þegar ég kom svo heim með pizzuna var hinn sonurinn kominn heim og vinur hans með honum.    Ég var ekki komin úr skónum og stóð með pizzukassann í hendinni þegar bæði sonurinn og vinurinn þutu á móti mér til að láta mig vita hvað vinurinn hefði verið svakalega óheppinn.  Hann fékk sko bara súrmjólk með banana í kvöldmatinn.  

Auðvitað er ekki hægt annað en að vorkenna svona óheppnum dreng og að sjálfsögðu var honum boðið að fá sér pizzu, gos og franskar með okkur.   Nema hvað !

Æfingamót í körfubolta hjá syninum sem er búinn að æfa körfubolta í 4 vikur.  Mæting í Vesturbæinn klukkan hálf níu í fyrramálið .  En morgunstund gefur gull í mund svo það verður ekki vandamál Sleeping 

Norski bróðir skrifaði smá pistil um lata bloggara - ég tók það til mín og er sem sagt búin að bæta úr því.

Sat með kökk í hálsinum um daginn en jafnframt ótrúlega stolt af vinum mínum þegar ég horfði á þennan þátt    Það sem fallega vinkona mín og fjölskylda hennar hefur gengið í gegn um  þessi 13 ár síðan slysið varð er bæði margt og mikið.  Og því er ekki lokið enn.  Að geta lifað lífinu áfram með bjartsýnina og jákvæðnina að leiðarljósi  er ekki sjálfsagt.  Það þarf styrk til.  

 

 


í fimmta bekk

yfir kvöldmáltíðinni fræddi annar sonurinn hina fjölskyldumeðlimina á því að þegar maður fer í fimmta bekk ( bræður eru að byrja í fjórða ) þá  þarf  maður að fara á ball og bjóða stelpum upp að dansa.  

Við foreldrarnir horfðum hvort á annað ( mundum hvorugt eftir 5 bekkjar ballferðum ) en mamman ákvað að spyrja " og hvaða stelpu á maður að bjóða upp " ? 

  • Þeirri sem dansar best ?
  • skemmtilegustu stelpunni ?
  • sætustu stelpunni ?
  • eða bara vinkonu sinni og hafa gaman ?

Sonurinn horfði á mig með augnaráði sem lýsti því mjög greinilega hvað honum fannst þetta miður gáfuleg spurning.    " ég veit það ekkert, ég hef aldrei farið á ball "  

mamman átti stefnumót við konuna sem gerir hana fallega í dag.  Kom heim nýklippt og fín með vandlega litaðar og plokkaðar augabrúnir.

" mamma hvað er þetta svarta á þér " sagði sonur og benti með fingrinum á augabrúnina á sjálfum sér.   " bara svona svartur litur sem var verið að setja á mig "   " Jaaaaaá -  þú ert nú eiginlega dálítið grimm svona "  Devil

 

Kærastan er komin með nýja framrúðu ( sem ég þurfti að borga og bláan skoðunarmiða.  Það er erfitt líf að vera eiginkona Whistling

 


ég er montin

og yfir mig ánægð með annan soninn sem spurði þegar búið var að taka til í herbergi þeirra bræðra í dag.  " má ég ryksuga og svo skúra "?

Að sjálfsögðu fékk drengurinn að ryksuga og svo skúra og að þvi loknu mikið hrós frá mömmu og pabba fyrir dugnaðinn Happy

Getið bara hvað hinn sonurinn fær að læra í næstu viku Whistling  Er ekki viss um að það verði nein sérstök hamingja með það.................


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

189 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband