21.2.2009 | 22:07
Loksins blogg
eða hvað.
Frúin er allavega sest fyrir framan maskínuna og ætlar að sjá hvort eitthvað af viti kemur fram. Er nú ekkert viss um að svo verði. Löngunin til að blogga lætur eitthvað á sér standa. það er greinilegt að frúin er farin að eyða of miklum tíma inni á fésbókinni
Engar fréttir eru góðar fréttir segir einhvers staðar. Hef ekki haft löngun til að blogga enda ekki frá neinu að segja. Gamla settið vinnur, borðar og sefur meðan yngra settið lærir, stundar fótbolta og fimleika , borðar og sefur.
Hr Rónaldó(naggrís) er kominn með nýja konu - Birgitta (naggrís) er dáin Rónaldó var nú nokkuð sama og æstist allur upp við nýju konuna ( hana Rósu ) sem er bæði yngri og grennri en fyrrverandi. Húsbóndinn á mínu heimili gerðist því nýja mamman þeirra Rooney og Ryan Giggs ( naggrísabarna ) og stendur sig með sóma. þeir drekka mjólk úr sprautu 2-3 á dag og fá þar að auki þurrmat og grænmeti.
Bræður eru nokkuð duglegir að aðstoða við naggrísina og hafa það hlutverk að gefa grænmeti einu sinni á dag.
Bræður hafa greinilega töluverða trú á tungumálahæfileikum móður sinnar og hafa m.a. spurt hvort hún tali "ítalensku" (ítölsku) "frakklensku" (frönsku) og nú í kvöld "rússlensku" (rússnesku ) SÁ varð hálf dapur yfir því að mamma sín talaði ekki "rússlensku" því þá gætum við ekki farið til Rússlands. það glaðnaði þó yfir honum þegar ég sagði að margir sem búa í Rússlandi tali líka ensku svo að tungumálaörðugleikar ættu ekki að standa í vegi fyrir því. Reyndar veit ég ekki af hverju honum datt í hug að ferðast til Rússlands. Hef hann helst grunaðan um að langa til Moskvu með Jóhönnu Guðrúnu og horfa á Evrovision
Veðurfarið hefur verið í blautara lagi undandanfarna daga. í gær tók ég loksins Stiga-sleðana sem stóðu við húsvegginn ( við hliðina á reiðhjólunum ) og setti þá inn í bílskúr. það passar, það fer að kólna og snjóa mjög fljótlega. Eftir nokkra daga get ég örugglega skipt aftur - sett hjólin inn í bílskúr og tekið sleðana út aftur.
Bræður voru sofnaði óvenju snemma í kvöld. kannski ekki skrítið, þeir voru vaknaðir um klukkan 6, foreldrum til takmarkaðrar gleði. Svo á mánudagsmorguninn hefst svo streðið við að vekja og koma þeim á fætur. Merkilegt með foreldra samt, þeir eru aldrei ánægðir.
Fyrstu árin kvarta þeir og kveina yfir því að þurfa að fara á fætur klukkan 5 og 6 á morgnanna. Svo kemur söngurinn ( sem ég er að syngja núna ) yfir því að það sé svoooo erfitt að koma þessum krökkum á fætur í skólann. Að lokum er svo kveinað yfir unglingunum sem vaka á nóttunni og sofa á daginn.
Aukavinnan hefur tekið sinn tíma undanfarið en gengur vel. þessi tími er álagstími hjá þeim sem vinna við bókhald en ég finn hvað mig vantar sárlega tíma fyrir mig. Stunda hobbý, heimsækja vini og hreyfa mig aðeins. En - það hlýtur að koma að því. Allavega fékk ég smá tíma til að blogga núna
Bið að heilsa í bili - húsmóðirin sem bakaði bæði maltbrauð og muffins um síðustu helgi. Baka kannski meira á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.2.2009 | 16:05
Fyrir hagsýnar húsmæður og aðra nískupúka
Ekki taka þessu bókstaflega samt !
"Mæta í mat til mömmu og láta hana passa meðan þú ferð í bíó-sem þú nota bene lætur hana borga líka....
Stela glösum af fólki á skemmtistöðum í staðinn fyrir að kaupa þér þitt eigið bús.
Gramsa í tunnuni hjá nágrönnunum.
Stela klósettpappír á almenningssalernum og fara með heim.
Fylla á sápubrúsann í sturtunni í sundlauginni/líkamsræktinni.
Stela blómum æi garðinum hjá nágrönnunum þegar þú þarft að fara í boð og færa einhverjum blóm.
Hringja í fólk og skella á áður en það svara-það hringir svo í þig tilbaka þar sem flestir eru með númerabirtir.
Falsa skiptimiðann í strætó(eru ekki ennþá skiptimiðar annars-svo langt síðan ég hef farið í strætó...)
Sofa allan daginn-þá borðar maður ekkert á meðan.
Skeina sér á fréttablaðinu þar sem það er ókeypis. Líka hægt að notast við einhverjar leiðinlegar bækur sem þú hefur lesið eða nennir ekki að lesa.
Þetta er svona það fyrsta sem mér dettur í hug-er annars ekkert góð í að spara...sorrí... "
"Spara... ég kann leiðir til þess. Ég fer alltaf með konuna og börnin með mér ef ég veit af matarkynningum í Hagkaup, Nóatúni eða öðrum búðum. Búinn að kenna stelpunum að labba alltaf einn hring og fara svo og fá sér aftur, konurnar sem eru að kynna þekkja þær hvort sem er ekki aftur. Annað sem við gripum til, til að spara, var að láta stelpurnar leika sér við þá vini sem matar var von hjá í kringum matmálstíma. Það hefur gefist vel. Síðan er eitt ráð alveg brilljant til að spara í mat, fyrir þá sem búa á Reykjavíkursvæðinu að fara í allar erfidrykkjur sem hægt er að komast í. Þar er alltaf flott bakkelsi og nóg af því og ef vel er borðað þarf ekkert nema ómerkilegt snarl í kvöldmatinn.
Nú, varðandi bílinn, þá seldum við hann. Höfum komist vel af með bílinn hans tengdó og annarra velviljaðra ættingja. Og það sem meira er, þú færð bílinn lánaðan með bensíni og skilar honum svo aftur tómum. Og ekki er nú bensínið ókeypis eða ég tala nú ekki um tryggingarnar. Svo til hvers að vera að eyða í svoleiðis óþarfa ef hægt er að spara sér það?
Fleiri leiðir eru til að spara en ég læt þessi ráð duga að sinni."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2009 | 21:31
Þá fer ég að heiman
lýsti SÁ yfir í frekar höstugum fýlutón við kvöldmatarborðið þegar hann fékk því ekki að ráða því hvað yrði í kvöldmatinn annað kvöld. Móðirin hafði sett fram tvo kosti og JA valdi annan þeirra en bróðir hans vildi fá eitthvað annað.
Móðirin er frekar kaldlynd og lét sér ekki bregða við fréttirnar, brá ekki einu sinni svip þegar sonurinn endurtók fréttirnar um að hann færi að heiman OG tæki PS2 leikina með sér.
Eftir litla stund ákvað strákur að taka sönsum, hætti við að fara að heiman og var sáttur við að mega ráða hvað yrði á matseðlinum á föstudagskvöldið.
Fimmtudagskvöld : skyr með rjómablandi
Föstudagskvöld : súpa með beikonbitum
Er að hugsa um að bjóða pabbanum að ráða laugardagskvöldinu, reyndar með því skilyrði að hann eldi líka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2009 | 18:45
Uppáhalds norska mágkona
á afmæli í dag.
Til hamingju með daginn mín kæra.
kveðja frá átvöglum, vettlinganögurum og naggrísum í Grindavík
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.2.2009 | 21:25
Ronaldo orðinn pabbi
Í dag, þriðjudaginn 03 febrúar varð Ronaldo stoltur faðir. Félagi hans, Birgitta, eignaðist tvo unga. þeir eru báðir sprækir og með rauð augu. Ekki er vitað hvers kyns ungarnir eru en þeir hafa þegar verið nefndir, Rooney og Ryan Giggs. Þeim verður endanlega gefið nafn þegar kynið kemur í ljós.
P.S Umrædd Ronaldo og Birgitta eru naggrísir. Ungarnir að sjálfsögðu líka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.1.2009 | 22:57
að fá það óþvegið
JA ákvað að hann langaði aftur að æfa fimleika. Við kíktum við hjá þjálfaranum í gær og strákur mátti byrja strax. Mamman ákvað að sitja og horfa á tímann.
Þetta er blandaður hópur, strákar og stelpur saman. Börnin voru að gera kollhnís þegar ein daman snýr sér að mömmunni og segir í stríðnistón " far þú kollhnís núna " ég ætla að fara opna munninn og stynja upp einhverri afsökun þegar sonurinn grípur framm í " hún getur það ekkert, hún er svo spikfeit " Þá var það útrætt og sú stutta kom ekki fram með frekari kröfur. ( Þó svo ég sé vissulega í yfirvigt og geti hvorki farið í splitt né spígat þá get ég vel farið í kollhnís )
Í kvöld stóð svo pabbinn uppi í stofusófanum ( var að loka glugganum ) og ákvað að hafa smá sýningu í leiðinni, enda var Eurovision undankeppnin í gangi. Þá heyrist úr hinum stofusófanum ( JA ) " hætt essu pabbi, þú getur brotið sófann " Ha sagði pabbinn, hvað meinarðu ( grunaði svo sem hvað kæmi næst ) Já þú ert allt of feitur, sófinn gæti brotnað !
Við hjónin erum sem sagt búin að fá það óþvegið um helgina - og allur sunnudagurinn eftir
P.S ætli ég verði ekki að baka eitthvað á morgun svo vesalings barnið hafi geti tekið nesti með sér í skólann og þurfi ekki að naga vettlingana sína meir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.1.2009 | 23:36
kreppa ?
Annar sonurinn hefur tekið upp á þeim leiða ósið að naga gat á vettlingana sína. Frá áramótum eru allavega tvenn pör orðin útnöguð og götótt
Sami sonur er heldur ekkert sérlega passasamur á fötin sín og 2-4 sinnum í viku fer ég inn í anddyrið á stofunni hans til að sækja vettlinga og húfur. ( og allt annað sem hann skilur eftir ) Í morgun verð ég samferða stráksa inn í stofu, hann fer að klæða sig úr og ég að leita í óskilamunum. Hef eitt par af vettlingum upp úr krafsinu, útnagað.
kennarinn sem er þarna staddur spyr " eru þetta ekki nýir vettlingar " ? Ég jánkaði því og bætti við að þetta væri annað parið síðan um áramót sem hefði fengið svona "nagað útlit "
Þá heyrist í stráksa, sem er að hengja upp úlpuna sína, með hneykslun í röddinni : " já ég fæ alltaf svo lítið nesti með mér "
Vesalings barnið sem fær ekki nóg að borða og þarf að naga vettlingana sína
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2009 | 21:22
íslensk tunga lærist víða
Ég sem mikill bókaormur hef gert töluvert af því að lesa fyrir bræður og flest kvöld vikunnar er lesin saga fyrir svefninn. Notaleg stund fyrir alla. JA hefur alltaf verið duglegur að spyrja þegar hann heyrir orð sem hann ekki skilur. í fyrradag var t.d. spurt, hvað er kúbein ?
Hinn sonurinn hefur aldrei spurt.
Bræður fengu mp3 spilara í jólagjöf og er óhætt að segja að spilararnir séu mikið notaðir, bæði til að hlusta á tónlist, leikrit og sögur. Bara hamingja og allir ánægðir. það er greinilegt að eitthvað síast inn því hinn sonurinn er nú farinn að spyrja, "mamma hvað er kvalinn ? eða " hvað er að svífa " ? Þetta er hið besta mál.
íEn það er ekki allur fróðleikur jafn skemmtilegur : JA sönglar hina ýmsustu lagstúfa þessa dagana og sá sem heyrist oftast er svona :
" stubbarnir syngja og dansa makarena, þúúúú ert belja með spena " Ekki mjög skemmtilegt en þetta rímar Annars ætla ég ekki að voga mér að segja eitt styggðaryrði um þennan lagstúf. Sonurinn söng nefnilega "fullorðins" útgáfu af þekktri barnagælu í kvöld.
" afi minn og amma mín
út á bakka búa
afi girðir niður um sig
og amma ................... a "
Ég vil helst ekki heyra fleiri svona útgáfur
JA var boðið í afmæli til bekkjarfélaga en SÁ var heima. fékk að fara í PS2 tölvuna á meðan. Svo kom JA heim úr afmælinu og bræður fóru að bera saman bækur sínar
"mér finnst óréttlátt að hann fékk kökur, nammi og kók meðan ég fékk ekki neitt "
" mér finnst óréttlátt að hann fékk að fara í PS2 tölvuna en ekki ég "
Það er stundum erfitt að vera til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.1.2009 | 17:15
Er hér ennþá
hef samt enga sérstaka löngun til að blogga - kannski því mér finnst ekkert fréttnæmt í mínu lífi þessa stundina.
Slæmar fréttir um mótmælim, kreppu og illvíg veikindi allsráðandi í fjölmiðlum. Finn að þetta dregur mann niður. Held þó alveg haus en veit ekki um neinn sem þetta hefur ekki einhver áhrif á. Við erum öll mannleg.
Janúar hefur haft frekar stífa dagskrá hjá mér, hin daglega vinna og umsjón með heimili og börnum tekur sinn tíma . Svo þegar bræður eru komnir í rúm þá tekur heimavinnan ( bókhald sem ég færi heima ) við fram undir miðnætti. Þetta er dáltítið stíft og í dag ákvað ég að gera ekki neitt. Það þýðir akkúrat það. Enda sést það á heimilinu. Meðan ég rembist við samviskubitið yfir því að gera ekki neitt reyni ég að hvíla mig. Myndu karlmenn hugsa svona ? nei - aldrei. Ætli ég verði því ekki á harðaspani á morgun við þrif og tiltekt ? ekki ólíklegt.
Bræður eru í fínu formi - gengur vel í skólanum og sækja fótboltaæfingar samviskusamlega. Hinir vikulegu vitnisburði kennara eru með mestu ágætum og sá sonurinn sem sækir aukatíma í lestri sýnir framfarir í hverri viku.
Skólalóðin er að sögn bræðra harður heimur og öðru hvoru fæ ég að heyra sögur af illa innrættum krökkum sem hrinda, kasta snjóboltum og slá " bara út af engu ". En að sögn eru bræður með geislabaug og dytti ekki í hug að gera slíkt hið sama. JA lenti í hremmingum í vikunni þegar "einhver stelpa hrinti honum og ætlað að kýla hann á einkastaðinn, í sprellann á mér " Ég fór að spyrja hann nánar út í þetta og hvort þetta hefði verið stór stelpa ? " nei , lítil, einhver fyrsti bekklingur " svaraði strákur, frekar móðgaður yfir þessu virðingarleysi við ´hæstvirtan annars bekkjar nema.
Bræður fóru í 2 afmæli í vikunni, fyrst hjá einum varð 7 ára í desemberlok en heldur veislu fyrir vinina í janúar. Svo daginn eftir var annar að halda upp á 8 ára afmælið sitt. þetta var bara fjör, eina sem var svekkjandi var að þurfa að fara í betri föt. OG að mamman skyldi skikka þá til að fara í sturtu á föstudeginum fyrir afmælið þá.
Fésbókin er tímaþjófur, vitið þið það ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2009 | 23:53
Bloggleti og önnur leti
Nenni ekki að blogga - ætti kannski að eyða minni tíma á félbókinni
Nennti ekki að taka niður jólaskrautið fyrr en á föstudagskvöldið og jólatréð var ekki tekið niður fyrr en í gær . Útiserían er ennþá uppi. EN - til að draga aðeins úr þá eru kassarnir með jólaskrautinu OG jólatrénu komnir á sinn geymslustað úti í skúr.
Sé fram á mikla vinnu á næstunni - alltaf nóg að gera hjá bókurum eftir áramót. Þá dugar engin leti.
Bræður eru hundlatir þessa dagana - nenna ekki að vera byrjaðir í skólanum, nenna ekki að læra, nenna ekki að leika sér úti og nenna alls ekki að koma sér í rúmið á skikkanlegum tíma. Ég var ekki í uppáhaldi hjá bræðrum í gær þegar kom að fyrsta heimalærdómnum á nýju ári.
SÁ skrapp til vinar síns í gær, sem býr í þarnæstu götu. Hann átti að vera komin heim klukkan sex. Hann nennti ekki að muna það. " æ mamma, getur þú ekki látið mig fá síma og hringt svo bara þegar ég á að koma heim " Ég hélt nú ekki. Klukkan 18,40 bankaði ég upp á hjá vininum og sótti kauða. Auðvitað mundi hann ekki / eða nennti ekki að muna að hann ætti að koma heim.
Hef ekki farið út fyrir hússins dyr í dag - hef þó fylgst með veðurspá og horft út. Það verður kalt á morgun og hált að keyra. Nenni ekki að blogga meira. Góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
kona á besta aldri
187 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar