Kung-fú eða tófú ?

 JA að horfa á teiknimyndina Kung-fú panda.

" mamma, hvað er tó fú , er það eitthvað svipað og kung-fú " ?

 


Helvítis fokking fokk

Horfðum á endursýninguna á áramótaskaupinu og þetta er eina atriðið sem bræður mundu eftir.    Þeim finnst þetta skelfilega fyndið og þurfa að rifja þetta upp öðru hvoru. 

Annars langar mig að helst að segja þetta líka - upphátt.  Bræður eru nefnilega ekki sofnaðir ennþá.  Ég vakti þá klukkan níu í morgun og þurfti að hafa fyrir því.   Ætla að vekja þá klukkan átta í fyrramálið og vona að þeir nái að sofna eitthvað fyrr annað kvöld.  Skóli samkvæmt stundaskrá byrjar klukkan átta á mánudagsmorguninn Pinch  Mig hlakkar ekkert sérstaklega til að vekja þá bræður á mánudagsmorguninn , sérstaklega þar sem þeir finnst ekkert tilhlökkunarefni að byrja aftur í skólanum.

Ég verð fegin þegar dagleg rútína kemst á aftur.  Verð fegin þegar ró kemst á bræður og þeir fara að fá útrás í íþróttum, verð fegin þegar stórsteikurnar víkja fyrir léttara fæði.   Mig hlakkar hins vegar ekki til að fara að smyrja nesti aftur. Whistling

Bakaði gasalega girnilegt maltbrauð í dag og smákökur (orkubombur) sem ég ætla að leggja fram á fjölskyldukaffiborð á morgun.   Þarf sennilega á róandi að halda eftir hádegi, er nefnilega búin að lofa öðrum syninum að fara í Smáralind og kaupa skyrtu.  Og útsölurnar nýbyrjaðar - úff það verður fjör.

 

 


Einn vinnudagur og svo helgarfrí

Er bara dúndurgott - það var erfitt að fara að sofa í gær og ennþá erfiðara að vakna.  En það hafðist.

Hringdi heim, í heimasímann, rúmlega hálf tíu í morgun þar sem feðgar sváfu allir á sínu græna.   Sá stóri kom í símann, svefndrukkinn " af hverju hringdir þú ekki gemsann " ?

Ég " ertu ekki með hann á náttborðinu þínu ?"

Hann, í örlitlum pirringstón  " jú "

Ég  " akkúrat, þess vegna hringdi ég í heimasímann, svo þú þyrftir að standa upp "  Skal viðurkenna að það hlakkaði örlítið í mér.

Hann : " ok, ég skil sneiðina " og hló enda vissi hann upp á sig sökina. Finnst allt of gott að slökkva á klukkunni og halda áfram að sofa.  Sleeping 

Bræður sofnuðu ekki fyrr en um miðnætti í gær -  eins gott að þeir sofni aðeins fyrr í kvöld enda ætla ég að vekja þá fyrir níu í fyrramálið.  Ég verð örugglega vöknuð nógu snemma.  Bóndinn var nefnilega kallaður í vinnu og verður sóttur klukkan 8 í fyrramálið Devil   Ég verð örugglega sofnuð snemma, fór á fætur um miðja nótt ( eða þannig ) klukkan hálf átta í morgun.

Verð að baka á morgun - ætla að baka maltbrauð ( hrikalega gott ) og svo er fjölskylduboð á sunnudag þar sem allir eiga að koma með veitingar.  Ég verð sjálfsagt ekki í vandræðum með það Wink

Eigið góða helgi.

 


afeitrun framundan

Því verður ekki neitað, búið að borða alltof mikið konfekt og sætindi, reyktu og steiktu keti, rjómasósum, snakki og öðru sukki.   Of mikið kaffi og of mikið gos hefur einnig verið innbyrt.  Ég er reyndar handviss um að vera ekki ein um þessa líðan. 

Ég er búin að borða of mikið og of oft af of óhollu fæði undanfarið og líður eins og ég sé með grjót í maganum.  Búin að sofa of mikið og hreyfa mig (allt of ) lítið undanfarið.  Ofát í einu orði sagt.

En jólafríið er búið að vera ljúft.  Bræður hafa notið þess í botn að vera í jólafríi.  Spennustigið á heimilinu var orðið ansi hátt síðustu dagana fyrir jól, bræður vöknuðu eldsnemma þrátt fyrir að vera í jólafríi,  hver getur svo sem eytt tímanum í svefn þegar jólasveinnin er á ferðinni og setur einhverja gjöf í skóinn.  Svo var líka pakkadagatal frammi í eldhúsi sem var afar spennandi að sjá hvað væri í.  Bræður áttu líka manchester súkkulaðidagatal en voru svo óskaplega svangir fyrsta daginn í jólafríinu að þeir kláruðu allt súkkulaðið Blush   Þá þurfti ekki að hafa meiri áhyggjur af því.

Mamman fékk óvænt frí á þorláksmessu og var alsæl með vinnuveitendurna  þannig að fjölskyldan tók því bara eins rólega og hægt var með sjö ára stráka sem áttu erfitt að hemja sig af spenningi.  En þetta hafðist allt og fjölskyldan snæddi villibráð (hreindýr og rjúpu ) í rólegheitum, heimalagaði ísinn hann pabba var reyndar afþakkaður ( nei við erum svo saddir, okkur langar ekki í ís........................og getum við nú farið að taka upp pakkana ?)

Spennustigið á heimilinu snarféll eftir að jólasveinarnir voru farnir upp í fjöll og bræður fóru að sofa lengur en til sjö á morgnanna.  Núna eru þeir ekki sofnaðir ennþá klukkan 23,30. Pinch  og verða sjálfsagt ekki kátir í fyrramálið þegar þeir verða vaktir.  Bræður þurfa að mæta í skólann á mánudag og foreldrarnir telja ekki þörf á að byrja að vinda ofan af sólarhringnum og snúa honum á rétt ról.

Gamlárskvöld var með rólegra móti - mikið borðað, lítið drukkið, og minna skotið upp en á að venjast.   Bæði af tengdapabba hinum skotglaða og eins í sveitarfélaginu öllu.   Greinilegt að efnahagsástandið hefur haft áhrif á flugeldakaup bæjarbúa.  Svo var heilsufar ekki alveg upp á sitt besta - einn var sárkvalinn af tannpínu - annar var langt frá sínu besta og svo voru einhverjir sem borðuðu yfir sig og uppskáru samkvæmt því.

Börnin voru í fínu formi, úðuðu í sig snakki og gúmmulaði á milli þess sem var hlaupið út og skotið upp froskum og kínverjum.  Hjartað var nú ekki stórt í sumum sem voru hæstánægðir með að fá stjörnuljós.   Mínum drengjum fannst nóg um hávaðann þegar bæjarbúar fóru að skjóta upp stuttu fyrri tólf og fögnuðu nýja árinu innandyra.  Sú níu ára hélt þeim félagsskap inni við.  Sú yngsta ætlaði sér sko ekki að missa af neinu og lagðist á bakið á bílaplaninu svo hún sæi allt.  Litli frændi hringsnerist hins vegar um og reyndi að horfa í allar áttir í einu.  Þessi tvö voru einna síðust inn.

Kíktum í heimsókn í dag og heimsóttum bæði norska og hafnfirska bróður + hinar gullfallegu og yndisfríðu mágkonur.  Þær voru langflottastar í rauðu náttfötunum sínum InLove  Norski bróðir sem er óumdeilt tölvuséní fjölskyldunnar hjálpaði aðeins við fartölvuna og setti svo fullt af tónlist og sögum inn á mp3 spilara þeirra bræðra.  Það heyrðist ekki múkk úr aftursætinu á leiðinni heim.  

Ég þarf að mæta í vinnu í fyrramálið Frown   Svo kannski ætti ég að fara að hugsa um að koma mér í rúmið.


og ég hélt að mínir strákar væru ólíkir ;-)

 

Og ég sem hélt að mínir (tvíbura)strákar væru ólíkir, einn ljóshærður og bláeygur og annar með brúnt hár og brún augu. 


mbl.is Eins ólíkar og svart og hvítt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvernig á maður að túlka það

Þegar 7 ára sonur, sem er að setja óhreinu fötin sín í óhreinatausdallinn, lítur á nánast fullan dallinn og segir svo í vandlætingartón " það mætti nú alveg fara að þvo "  !

Er ekki orðið tímabært að kenna kauða á þvottavélina ?

 


Stekkjastaur, Giljagaur og nú Stúfur

Bræður eru með þetta allt á hreinu - og það er Stúfur sem kemur í nótt.  Stúfur er lítill en eftir að JA var fullvissaður um að Stúfur myndi örugglega ná upp í gluggakistuna þá gat hann farið að sofa. 

Það gengur mjög vel að fá bræður til að fara snemma í háttinn og að sama skapi eru þeir vaknaðir eldsnemma á morgnanna.   JA staulaðist inn í herbergi til mín rúmlega eitt í nótt með krumpað blað " mamma hvað stendur á þessu ? "   Samviskusamlega las ég stórkarlalega og stórgerða skriftina  " Þ A Ð  E R  I N N I  Í  Í S S K Á P H A N D A   Þ É R - K V E Ð J A G I L J A G A U R.   Strákur hverfur og ég heyri að ísskápshurðin er opnuð en lokað strax aftur.  Strákur fer aftur inn í sitt herbergi en kemur svo stuttu seinna og segist ekki geta sofnað.  Hann kúrir í mömmmu rúmi góða stund en ákveður svo að sofa í sínu rúmi.  

Um klukkan 7 vakna ég við umgang frammi og stuttu seinna koma bræður klístraðir og alsælir inn í rúm til okkar.    Þá hafði Giljagaur sett kókómjólk og súkkulaðibúðing inn í ísskáp fyrir bræður og þeir að sjálfsögðu búnir að gæða sér á kræsingunum.   Mamma skilur ekkert í Giljagaur að koma með svona óhollustu í morgunverð,Wink en bræður voru alsælir.   Spurning hvort Stúfur er eitthvað heilsusamlegar sinnaður en bróðir hans !

Gamla settið ( við hjónin ) fékk að geyma bræður hjá afa og ömmu í rauða húsinu meðan við fórum í innkaupaferð.  Vorum hörkudugleg og kláruðum að kaupa flestar jólagjafirnar.    -  töluverðu stressi aflétt.   Annars er ég ekkert stressuð yfir þessu - jólin koma hvort sem ég geri þetta "allt" sem virðist eiga að gera fyrir jól eða ekki.   Bræður voru alsælir yfir því að þurfa ekki að fara í búðir og létu dekra við sig í ömmuhúsi á meðan.

Ætli sé ekki réttast að koma sér í rúmið - ekki miklar líkur á því að maður fái að sofa út í fyrramálið

P.S  Fjölskyldan hefur stækkað  - tvö fósturbörn af Naggrísakyni hafa bæst við.  Bræður komu glottandi úr bílskúrnum í morgun þar sem Naggrísirnir hafa tímabundið aðsetur.  " Mamma við erum búnir að skíra naggrísina, þeir heita "Kristían Rónaldó og Birgitta "   Ekki dónalegt !

     


Skórinn út í glugga

Loksins rann upp dagurinn sem mátti setja skóinn út í glugga -  Bræður drifu sig í verkið um leið og þeir komu heim úr skóla ( rétt rúmlega fjögur í dag )  Um að gera að drífa verkið af svo það gleymdist ekki. 

Einnig má taka það fram að bræður voru fljótir að koma sér í rúmið og fljótir að sofna í kvöld.

Eitt kuldastígvél og einn takkaskór bíða í gluggakistunni eftir því að Stekkjarstaur líti við.  Bræður höfðu smá áhyggjur af vondu veðri en eftir smá umræðu þóttust bræður vissir um að Stekkjarstaur hefði þetta nú alveg af - hann væri örugglega ýmsu vanur.

Kennarinn hans SÁ hefur haft það fyrir reglu að fara í "ferð" eða "heimsókn" með bekkinn á föstudögum.   það verður söngstund á sal á morgun svo það verður engin ferð.  Stráksi er með tillögu að næstu ferð sem hann ætlar að bera upp við kennarann.   Hann vill fara og mótmæla, kasta eggjum og kalla " burt með Davíð "    

Ég bíð spennt eftir því hverju kennarinn svarar Wink


Veit ekki hvort reiðin eða sorgin verður yfirsterkari

þegar ég les svona fréttir.  Ég get ekki samþykkt að það sé í lagi að 70 ára kona fæði barn.  Hvað eftir 2 ár, eða 5 ár eða 10 ár ?  hver á þá að hugsa um barnið ?  Mér finnst þetta ekki rétt.  

 

 


mbl.is Sjötug frumbyrja á Indlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að taka egg með ?

spurði SÁ, þegar hann var hættur að vera í fýlu yfir því að þurfa að fara á stórborgarsvæðið, og var að gera sig kláran til að fara inn í bíl.  Mamman hváði við, skildi þetta ekki alveg.

Já, eigum við að fara að mótmæla, kasta eggjum og hrópa " burt með Davíð" sagði strákur og glotti við tönn !

Það er kannski eins gott að það er bara einn Spaugstofuþáttur eftir fram að jólum - drengurinn hefur ekki alveg rökrétta mynd af því hvað mótmæli eru. 

Við slepptum því að mótmæla og taka egg með, kíktum í staðinn á nýjan markað í Hafnarfirði sem ber nafnið Fjarðarport.  Kolaportið er fyrirmyndin og þetta er fyrsta helgin sem er opið.  Það voru ekki eins margir og í Kolaportinu ( sem við heimsóttum líka ) en gott rými og fín aðstaða.  Tveir brottfluttir Djúpavogsbúar voru þar með sölubása og annar þeirra hló og sagði : hvernig finnst þér að geta komið aftur í BH búðina !  ( Ekki er ætlast til að aðrir en brottfluttir Djúpavogsbúar skilji þetta )  - ég var hæst ánægð með mína tvo rennilása sem ég keypti þar - af réttri stærð og á sérdeilis fínu verði.

Bræður eru nokkuð ánægðir með lífið - búið er að hengja upp pakkadagatal og svo kom pabbi heim um daginn með Manschester súkkulaðidagatal. Happy Happy  Nú er farið að telja dagana þar til jólasveinninn kemur og hin daglega spurning : hvað eru margir dagar þangað til jólin koma ?

Bræður hlakka til að fá gjafir og óskalistinn er nokkuð svipaður :  " PS2 talva  og sjónvarp til að hafa inni í herbergi og svo venjuleg tölva.  JA langar í öðruvísi Indiana Jones tölvuleik og skrifborð til að hafa venjulegu tölvuna á inni í sínu herbergi.   SÁ langar í FIFA fótboltaleik og MAnchester þetta og Manchester hitt.    Hógværðin er svo sem ekkert að fara með þá Blush 

JA er hættur í fimleikum - veit ekki alveg hvers vegna en ég er allavega búin að gefast upp á að reyna að pína hann.  Honum finnst hins vegar mjög gaman í fótboltanum og var svo stálheppinn að vinna mætingarbikarinn  fyrir nóv.  Sumir voru sko montnari en aðrir en bróður fannst þetta dáltíð súrt og reyndi að sannfæra vinningsbróður um að þeir ættu að hafa bikarinn saman " við erum bræður  "     SÁ finnst hins vegar mjög gaman í fimleikum og hlakkar til hverrar æfingar.  

Ég hef oftar en einu sinni minnst á það að JA finnst meira en feikinóg að eiga einn bróður,  hann hefur aldrei sýnt áhuga á að eignast lítið systkini og fundið því allt til foráttu.  Helst vill hann eiga mömmu sína einn og vill enga óþarfa samkeppni um athygli hennar.  Þess vegna urðum við foreldrarnir dálítið hissa um daginn þegar hann fór að tala um hvað lítið barn í sjónvarpsauglýsingu ( BYR) væri krúttilegt.   Mömmunni fannst eitthvað breyttur tónn í syninum hvað varðaði smábörn og þar sem það er útséð um að frekari fjölgun á þessu heimili þá væri of seint fyrir stráksa að leggja inn pöntun fyrir systkini núna.   Sókn væri því besta vörnin.

"Heldur þú að það væri gaman að eiga svona lítið barn, það skælir bæði á daginn og á nóttunni,  svo þegar það fer að skríða þá fer það inn í herberg ykkar bræðra og rótar í dótinu ykkar "   Stráksi hugsði sig um smá stund  " svo setur litla barnið allt legóið upp í sig og þá deyr það "  !!!!!!! mamma varð kjaftstopp og umræðan um lítið barn á heimilið var snarlega kveðin niður.

Bræður eru farnir að biðja um piparkökur og piparkökuhús - ekki sem maður kaupir heldur sem maður bakar sjálfur.  Hjálpi mér - ég er að verða fertug og hef aldrei bakað piparkökur.  En einhvern tímann verður allt fyrst og kannski fer ég í bakstursgír í vikunni, ótrúlegri hlutir hafa nú gerst.   Auglýsi hér með eftir piparkökuuppskrift fyrir byrjendur!

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

187 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband