31.10.2008 | 21:47
Hverju svarar maður
þegar 7 ára sonur spyr alveg upp úr þurru við kvöldmatarborðið " hefur þú verið rekin úr vinnu ?"
Ég gat nú fullvissað þann stutta um að ég hefði aldrei verið rekin úr vinnu en var jafnframt óskaplega forvitin af hverju þessi spurning hefði komið. Ekki fékkst svar við því og sá eini sem strákur vissi um að hefði verið rekinn úr vinnu var Davíð ( sjá myndina um Alvin og íkornanna )
SÁ fór ekki í skólann í dag - var með hita í gær en búinn að vera eldhress í dag. Ha ha - hann sleppur ekki við að læra á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.10.2008 | 23:00
Lífið að komast í réttar skorður
Bræður loksins að komast á rétt ról aftur eftir partýstand liðinnar helgar, bæði lærdómslega og svefnlega séð. S.Á er reyndar orðinn lasinn, með hósta og hita og fer ekki í skólann á morgun. Það verður ekki partý þessa helgina - bara rólegheit og bræður þurfa að viðra skólabækurnar en næsta vika ætti þá að verða léttari hjá þeim bræðrum í staðinn.
Mér finnst reyndar alveg ótækt að það skuli taka 5-6 daga fyrir heimilið að komast í réttar skorður þó svo maður haldi eina veislu. Tvennt er í stöðunni - halda oftar veislur svo bræður venjist smá óreglu EÐA það verða ekki haldnar fleiri veislur fyrr en bræður verða fluttir að heiman !
Námsefnið í skólanum hefur snúist um hafið undanfarið og ýmislegt því tengt. J.A kom heim með auga úr fiski í glærum plastpoka um í gær. Hann er voða rogginn með þetta en er ekki alveg búinn að ákveða hvar hann ætlar að geyma það. Þessa stundina liggur augað í glæra plastpokanum á eldhúsbekknum og starir á móti mér. Ég skal viðurkenna að ég veit ekki alveg hvernig ég á að snúa mér í þessu - strákur var eitthvað að tala um að hengja augað upp á vegg. Mér líst ekki alveg nógu vel á það.
um það bil 57 dagar til jóla og jólaauglýsingarnar strax farnar að gera sig breiðar í fjölmiðlum - bömmer.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2008 | 22:16
Finn ekki bloggandann
Hef gert nokkrar tilraunir til að blogga undanfarið en ekki gengið. Stundum er maður upplagður og stundum ekki.
Þó svo ég hafi ekki bloggað þá hef ég ekki setið auðum höndum - undirbjó og hélt matarboð í tilefni 1/2 níræðis afmælis elsku eiginmannsins. Voða gaman og ágætis matur þó ég segi sjálf frá. Bræðrum fannst tilstandið spennandi og skemmtu sér vel. SÁ fannst þó mest gaman eftir miðnætti þegar yngsta kynslóðin hafði yfirgefið svæðið því þá fengu þeir bræður að hátta sig í stóra rúmið og horfa á DVD inni í mömmu og pabba herbergi. Þetta gat kennarinn hans upplýst mig um á mánudaginn . Mig langar ekki að vita hvað hann hefur sagt henni meira.
Þó svo að undirbúningur og veislan hafi heppnast vel þá hefur vikan verið dálítið erfið. Heimalærdómur og námsbækur voru ekki á dagskrá um helgina eins og venjan er og bræður hafa ekki enn náð að vinna upp þann svefn sem þeir misstu um helgina. Þeir hafa því verið frekar úrillir og þreyttir að skóla loknum og EKKI tilbúnir í heimavinnu. Það var því frekar aumingjaleg móðir sem sendi tölvupóst á kennara og útskýrði að partýstand helgarinnar hefði komið frekar harkalega niður á heimalærdómi bræðra - hvort við fengjum frest á skilum á heimavinnu.
það styttist í jólin - og jólainnkaup - og jólagjafir og svo allt hitt jóla eitthvað...............
Þó svo við höfum sjaldnast farið offari í jólagjöfum og reynt að sníða okkur stakk eftir vexti í því þá ætlast ég til þess af mínum nánustu og sjálfum mér að það verði aðeins staldrað við. Gjöf þarf ekki að vera stór eða kosta mikið. Ég vil ekki fá gjöf inn á mitt heimili ef hún kostar það að gefandinn er að setja sig í skuldir eða verður með kvíðahnút í maganum eftir jólin. Ég ætla ekki að gera það. Svo ég noti orð norsku mágkonu þá verða þær jólagjafir sem ég gef í ár " sérstaklega nískulegar og kreppulegar " !
En þær verða gefnar af góðum hug og þeir sem ekki kunna að meta það - ja, það er bara þeirra mál. -
Eldaði naglasúpu fyrir mig og bræður í kvöld ( hinn 1/2 níræði var búinn að lofa sér í aukavinnu og kom ekki í mat ) - hún var góð og hún var ódýr. Við "unglingarnir" á heimilinu fáum öll heitan mat í hádeginu og kvöldmaturinn þarf því ekki að vera merkilegur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2008 | 21:33
Horsprey
" mamma ég hef ekki fengið neitt horsprey í dag " sagði JA
Horsprey ? sagði mamman skilningssljó
Æ þetta þarna í bláa og hvíta brúsanum sagði strákur og benti á Sterimar saltvatnsspreyið sem er ætlað til að losa um stífluð nef .
Að sjálfsögðu fékk drengurinn horsprey.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.10.2008 | 17:17
Ég bara verð ( verðbréfadrengurinn )
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.10.2008 | 22:09
Bakaði ekki í dag
Þurfti áfallahjálp í morgun og baksturstolt mitt sem var ansi sperrt í gær, hjaðnaði eins og blásin blaðra. Ég opnaði örbylgjuofninn í morgun og þá blasti við með bolli af smjöri sem ég hafði sett í örbylgjuofninn í GÆR. Var smástund að fatta í hvað bráðna smjörið átti að fara en nú sit ég allavega uppi með tvöfalda uppskrift af mjög þurrum möffins. Það dugar ekki einu sinni að gefa krökkum þær ( nema matargatinu mínu sem borðar allt ) 7 ára vinur sem kom í heimsókn í dag beit í eina köku, sagði svo að honum fyndist þær ekki góðar og spurði hvort hann mætti fá brauð með osti í staðinn
Annars er frí í skólanum á morgun og stuttur vinnudagur hjá mér - ég kannski baka á morgun !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2008 | 00:21
Stutt og laggott
Bræður eru búnir að fá hlaupahjól og mikil hamingja með það Ég og bræður renndum í Reykjavíkina í morgun og keyptum hlaupahjól. Bræður þurftu að borga alla peningana sem þeir fengu í afmælisgjöf og svo bættu foreldrarnir við því sem upp á vantaði. Er viss um að þeir eiga eftir að nota hlaupahjólin - næsta sumar allavega. Hringdi nokkur símtöl á föstudaginn til að athuga hvar væri hægt að kaupa hlaupahjól. Skil ekki að það skuli ekki allir selja hlaupahjól í október........................
Fékk kreppukast og bakaði þegar við komum heim úr höfuðborginni - verð að vekja hagsýna húsmóðurgenið úr dvalanum. Fór meira að segja á bókasafnið í vikunni og fékk " Stóru bakstursbókina" lánaða. Þurfti svo að hlaupa í bakaríið rétt fyrir fjögur og kaupa rándýr egg því ég gleymdi að kaupa egg í Bónus. Bakaði eplaköku og bláberjaköku og nokkrar muffins. Bræður fá því eitthvað góðgæti í nestisboxin sín í næstu viku.
EF ég verð dugleg á morgun þá baka ég bollur eða brauð. Ætla svo að baka í vikunni - verðum með fólk í mat um næstu helgi og ef eldamennskan misheppnast þá er allavega hægt að borða brauð !
Fengum heimsókn í kvöld - skemmtilegt fólk sem nennir ekki að vera sófakartöflur á laugardagskvöldi heldur drífur sig út og heimsækir fólk. Ég vildi að ég væri svona dugleg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.10.2008 | 23:09
ýmsar vangaveltur
Það er ýmislegt sem veltist um í 7 ára heilabúum.
" mamma , ef þú og pabbi eruð orðin 100 ára og eignist lítið barn þá verður þú kannski dauð, eða þá verðið þið orðin svo gömul að þið getið ekki hugsað um það " "Þá þarf ég að gera það og ég nenni því ekki "
Sjálfsagt eitthvað til í þessu og ágætt að vara mig við ef mér dytti það í hug síðustu árin að fjölga mannkyninu. En einhverra hluta vegna fannst mér þetta ekki vera rétta augnablikið og stráksi ekki tilbúinn að meðtaka fræðslu um frjósemi kvenna.
" mamma, þegar ég verð stór þá langar mig ekkert að eiga konu, ég vil bara vera einn "
Stráksi varð rólegri þegar ég sagði að hann þyrfti ekki að hugsa um þetta fyrr en eftir mörg ár og ef honum langaði ekki að eiga konu þá væri það bara allt í lagi.
Strákur gerði heiðarlega tilraun til að bróka pabba sinn í kvöld, hafði ekki árangur sem erfiði, enda pabbinn allavega 80 kílóum þyngri og 80 sentimetrum stærri. Gengur bara betur næst.
Stefnan tekin á Reykjavíkina á laugardaginn - þ.e.a.s ef það er einhvers staðar er hægt að kaupa hlaupahjól í október.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2008 | 22:38
Dr Gunni
Mér finnst hann fyndinn !
Annars allt og ekkert að frétta - bræður fengu tölvuleiki í afmælisgjöf og biðja um að fá að spila "plei" i tíma og ótíma. Heimalærdómurinn rokgengur þessa dagana - bræður vita að það má fara í tölvuna þegar er búið að læra og yfirleitt er mamman ennþá í forstofunni að klæða sig úr úlpu og útiskóm þegar bræður eru sestir við eldhúsborðið og búnir að taka lestrarbækurnar upp úr skólatöskunni þegar það heyrist með óþolinmæði í röddinni " ertekkiaðkomamamma" ? Ég þarf að grenja út tíma til að fá mér eins og einn kaffibolla áður en lærdómurinn byrjar !
Það er að komin kreppa - veturinn að nálgast og svo tveir starfsdagar í skólanum í næstu viku. Lífið gengur sem sagt allt sinn vanagang !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2008 | 21:52
að njóta ekki tilhlýðilegrar virðingar
" mamma, Hann Kristan ( sem heitir reyndar Tristan og er með þeim í gæslu eftir skóla) hann rífur bara kjaft við mann "
" það er alveg sama hvað við segjum, hann rífur samt bara kjaft, þó svo að hann sé bara í fyrsta bekk. Við eru samt búnir að segja að hann eigi ekki að rífa kjaft við þá sem eru eldri "
Bræður voru sármóðgaðir yfir því að njóta ekki tilhlýðilegrar virðingar sem virðulegir annars bekkingar.
Annan föstudginn í röð sofna bræður í stuttermabol og stuttbuxum, skítugir í framan, og án þess að tannbursta sig. Mamman er of upptekin við að horfa á Útsvar og má ekkert vera að því að sinna bræðrum.
Spennan í hámarki - afmælið ER á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
kona á besta aldri
187 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar