2.12.2008 | 23:21
Man ekkert !
Var komin með langt og merkilegt blogg í huganum en svo þegar á að hefjast handa þá man ég ekki neitt. Er bæði gömul og gleymin.
Meðan á bloggfrí stóð er eiginmaðurinn búinn að keyra austur á firði, ganga um fjöll og fyrnindi með byssuna sína með það yfirlýsta markmið að veiða rjúpur í jólamatinn. Það er eins gott að matreiðslan klikki ekki - þriggja daga frí úr vinnu og kringum 1400 kílómetra akstur kostar sitt. Fengurinn = 3 rjúpur. Dýr yrði máltíðin öll !
Bræður eru farnir að bíða spenntir eftir jólunum. Spyrja reglulega hvað það séu margir dagar þangað til að jólin koma. Pakkadagatalið er komið upp á vegg og ég sé fram að að það verði töluvert auðveldara að koma bræðrum á fætur á morgnanna í desembermánuði heldur en í nóvember. Þeir voru allavega skotfljótir á fætur í morgun.
Fékk skothelda sönnun fyrir því um helgina að bræður eru í alvöru með ofnæmi fyrir búðum. Við vorum búin að ákveða að fara í bíó sl sunnudag. En þegar bræður komust að þvi að það þyrfti að fara í einhverjar búðir annaðhvort fyrir eða eftir bíóferð. ( Mamman ætlaði að reyna að kaupa einhverjar jólagjafir ) þá sögðu þeir "nei takk" frekar verðum við heima. Og það stóð.
Þannig að í staðinn fyrir að fara í bíó ( og búðir ) þá voru bræður heima, fóru til afa og horfðu á fótbolta, léku smástund við vin en voru annars heima að dingla sér. Ég notaði daginn til að þrífa og þvo og setti m.a upp jólagardínur i eldhúsið.
Um daginn settust bræður niður að teikna - datt svo i hug að teikna myndir til að senda ömmu fyrir austan. Gott og vel - mamman sótti umslag og bræður hófust handa. Svo var tilkynnt að listaverkin væru búin. Ég bað bræður um að merkja þau svo amma vissi frá hverjum myndirnar væru. Þegar það var búið tók ég við listaverkunum og setti þau í umslagið. Annar teiknaði mynd af einhverju ofurfarartæki með eld aftan í sér. Hinn teiknaði mynd af skammbyssu. Akkúrat myndefnið sem ömmur hafa gaman af - eða hvað ?
SÁ missti aðra framtönnina fyrir helgi. Hún var búin að vera laus nokkuð lengi og nýja framtönnin löngu byrjuð að vaxa á bak við. Samt vildi barnatönnin ekki detta. Ég var farin að halda að tönnin ætlaði ekkert að detta og hringdi í tannlækninn - hvort gæti verið að hann þyrfti að taka tönnina. Dr tannlæknir ákvað að þetta þyrfti skoðunar við og gaf okkur tíma. þegar ég sótti strák í skólagæslu sama dag brosti hann breiðu skörðóttu brosi og sýndi mér tönnina sem hann var með í vasanum. Þá hafði hann fengið högg á munnin á fótboltaæfingu með þeim árangri að tönnin fór. Daginn eftir hringdi ég í Dr tannlækni og afpantaði tímann.
Best að fara að smyrja nesti fyrir morgundaginn. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.12.2008 | 13:41
Út með kallinn og inn með koníakið ?

![]() |
Þakkaði langlífið koníaki og skírlífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2008 | 00:12
afmæli - mótmæli - fótboltamót
Húsmóðirin er nýbúin að eiga afmæli - það datt á hana eitt ár í viðbót og nú get ég sagt í rúmlega 360 daga í viðbót að ég sé á á fertugsaldri.
Dagurinn var enginn sérstakur hátíðisdagur og ekki mikið um veisluhöld, enda kannski ekki ástæða til. Eiginmaðurinn skoraði ekkert mörg stig þennan dag - mundi ekki eftir deginum um morguninn. Rúmum hálftíma eftir að ég var komin í vinnuna hringdi kauði - en ekki með hamingjuóskir heldur til að segja mér að hann komi á eftir - ætlaði að fara með bílinn í skoðun.
Bóndinn mætti á skrifstofuna - engar hamingjuóskir en hann spjallaði þeim mun meira um bílinn. Rúmum hálftíma mætti bóndinn aftur og afhenti mér hamingjusamur lyklana að nýskoðuðum bílnum. Bíllinn var honum greinilega ofarlega í huga því ennþá talaði hann meira um bílinn. Svo kvaddi bóndinn og hélt af stað. Stuttu seinna er hurðin að skrifstofunni rifin upp og bóndinn litast um skömmustulegur á svip þar til hann sér frúna og smellir á hana kossi. Þá mætti hann yfirvaldinu á mínum vinnustað á leið út sem óskaði honum til hamingju með frúna. Þá áttaði hann sig.
Vinnustaðurinn gaf blóm og bauð upp á köku - í tilefni þess að þrír starfsmenn áttu afmæli í des. Bóndinn var að vinna í Reykjavíkinni og kom heim um kvöldmatarleitið. Kallaði á bræður til sín þegar hann kom í dyrnar. Ég heyri skrjáf í sellófani og heyri svo annan soninn segja " hún er búin að fá nóg af þessu " rétt á eftir fæ ég blómvönd og rauðvínsflösku frá karlpeningnum . Greinilegt að stráksa fannst alveg nóg að sú gamla ætti einn blómvönd. Fyrst engin var kakan fannst bræðrum alveg lágmark að fá eftirrétt - það væri nú afmæli.
Í gær héldum við bræður í höfuðborgina - í örvæntingarfullri tilraun til að versla jólagjafir. Það gekk ekki - bráðaofnæmi bræðra fyrir verslunum var komið í hámark eftir 20 mínútur í Smáralindinni og við sáum okkur þann kost vænstan að koma okkur út sem fyrst. Mér dettur í hug að fara í Kolaportið eb man þá að mótmæli eru fyrirhuguð og það sé örugglega ekki bílastæði að finna. Bræður vildu fá útskýringu á því hvað mótmæli væru. Ég hiksta eitthvað á svarinu en SÁ er fljótur að fatta og spyr " er það svona burt með Davíð ? Ég ákvað að þetta væri næg skýring í bili og sagði já en spurning hvort Spaugstofan sé heppilegt sjónvarpsefni fyrir 7 ára.
Mikil spenna en fótboltamót í Keflavík eftir tvo daga. Halti haninn er allur að koma til og fær að taka þátt. Mikil hamingja með það.
P.S foreldraviðtöl í síðustu viku komu bara glimrandi vel út - bræður eru í alvöru stilltir þessa dagana
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.11.2008 | 18:46
hrakfallabálkur
Um hádegisbilið í dag var hringt í gsm símann minn " Skólinn"´. Ég fæ alltaf smá sting í magann þegar skólinn hringir, yfirleitt þýðir það annaðhvort a)veikindi eða slys b) óhlýðni. Í þetta skiptið var það a) Hrakfallabálkurinn sem eyddi allt of stórum hluta sumarsins haltrandi, annðahvort með fótinn í teygjusokk eða gifsi meidddi sig. Í sama fætinum og í sumar. Pabbi, sem var heima í hádegismat sótti stráksa en ég brunaði heim og tók að mér hjúkrunarstörf. ( Enda ekkert stress í vinnunni hjá mér og búið að gera ráð fyrir pabba í verk fyrir utan bæinn )
Stráksi tók því rólega fram eftir degi - horfði á DVD en var svo farinn að verða eirðarlaus. Leiddist og fannst skrítið að hafa bróður sinn ekki heima. Bróðir skilaði sér svo af fótboltaæfingu og eftir heimalestur og svoleiðis var stráksi orðinn nógu sprækur að haltra inn í vinsælasta herbergi hússins " eða herbergið sem PS2 leikjamaskínan er staðsett " Þegar úthlutuðum tölvutíma var lokið var ákveðið að fara á bókasafnið þar sem hr. hrakfallabálkur treysti sér til að fara " ég fer bara hægt og svo förum við í lyftuna " Að bókasafnsheimsókn lokinni vildu bræður frekar vera einir heima og horfa á barnatímann meðan mamma færi í búð. Með kveikt á sjónvarpinu, símann á borðinu og símanúmerið hennar mömmu á blaði þóttust bræður færir í flestan sjó.
5-6 mínútum eftir að ég yfirgef heimilið hringir gsm síminn " mamma, við eru báðir alveg að drepast " sagði hrakfallabálkurinn í pirringstón. " Nú" sagði ég og þóttist ekkert skilja, af hverju ? "við erum svo rosalega svangir" sagði hrakfallabálkurinn og stundi. " Ég er alveg að koma " sagði ég , enda nánast búin að finna allt sem ég ætlaði að versla. " Mamma" heyrðist hálf höstuglega í símanum, við gætum verið dánir þá ! Sonurinn treysti því greinilega að ég hefði ekki áhuga að svoleiðs aðkomu og hafði rétt fyrir sér því ég gaf eftir " ókey " þið megið fá ávexti ef þeir eru til. Allt í læ, sagði sonur og skellti á. Rúmri mínútu seinna hringdi síminn aftur. Hinn sonurinn var á línunni " mamma ég er að drepast ég er svo svangur " Ég vissi svo sem alveg hvað klukkan sló - hann varð að fá að hringja líka - og fékk nákvæmlega sama svar og bróðirinn " Ávextir ". ókey bæ sagði hinn sonur og skellti á. Þremur mínútum seinna renndi ég í hlaðið. Bræður sátu í sófanum nagandi epli , voru fegnir að sjá mig og spurðu svo " hvenær verður maturinn tilbúinn ? "
Það kemur í ljós hvort bræður lifa það af að bíða eftir matnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.11.2008 | 00:25
Versta mamma í heimi ?
Yrði ekki hissa þótt ég fengi hringingu frá annaðhvort skólayfirvöldum eða barnaverndarnefnd á morgun. Sonur minn - matargatið mikla - er afskaplega hamingjusamur með þá krepputengdu iðju móður sinnar að baka. Sú gamla er að rifja upp taktana við brauðbakstur og sætmetið fær að fylgja með.
Bræður þurfa tvö nestisbox hvor - eitt fyrir morgunnestið sem á samkvæmt skipun skólastjóra að vera hollt og heilsusamlegt - og svo annað fyrir síðdegishressingu í skólagæslunni . Bræður fá heitan mat í hádeginu 4 daga vikunnar.
En - matargatið mikla er búinn reikna það út að gómsætasta gúmmulaðið er í síðdegisnestisboxinu og hefur undanfarið stundað það að borða morgunnestið sitt í morgunkaffinu - eftir það er hann að stelast í síðdegisnestisboxið en passar sig þó að klára það ekki alveg. Ef honum líst ekki á hádegismatinn þá sleppir hann honum bara - er hvort eð er ekki mjög svangur eftir allt nestisátið Í síðdegiskaffinu klárar hann svo restina ef nestinu. EF hann hefur sleppt hádegismatnum þá fæ ég að heyra grát og hungursinfóníu í dúr og moll þegar ég sæki hann og verður að fá að borða STRAX þegar hann kemur heim. Ef hann hefur borðað í hádeginu þá getum við spjallað á heimleiðinni.
EN - til að reyna að stoppa stráksa í því að snæða úr síðdegisnestisboxinu fyrir hádegismat þá LÍMDI ég nestisboxið aftur með glæru límbandi. Er spennt að sjá hvað verður þegar ég sæki hann úr gæslu á morgun. En til að taka allan vafa af þá verður nýbakað brauð með skinku, súkkulaði eplakaka og smá biti af rúgmjölsbrauði með osti í hinu niðurlímda nestisboxi. það verður ekki tómt og ég veit að hinar góðu konur sem sjá um skólagæsluna eiga bæði hníf og skæri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2008 | 09:58
bræður í fimleikum - ekki mamman
"mamma getur þú farið í handahlaup " ? spurði annar sonur um daginn. Áður en ég gat svarað tók hinn sonurinn af mér ómakið " nei hún getur það ekki, og klappaði mér hlýlega á magann, hún er alltof feit". Ég var nú ekki alveg tilbúin að samþykkja það en viðurkenndi þó að ég gæti ekki staðið á höndum - sennilega af því ég væri allt of feit.
" mamma, hvað heitir ljósið sem kemur á eftir Neyðarljós sem er samt ekki neyðarljós " spurði annar sonur einn daginn þegar við vorum að bíða eftir að barnatíminn byrjaði ? Ég var dálitla stund að skilja spurninguna en fattaði svo allt í einu að drengurinn var að spyrja út í myndina sem kemur þegar hinn stórmerkilegi og vitsmunalegi þáttur Leiðarljós ( ekki neyðarljós ) er búinn. Ég gat upplýst soninn um að ljósið héti viti.
Bræður fá hinn fínasta vitnisburð um hegðun þessa vikuna og auðvitað er mamman hæstánægð með það. Strákar eru hinsvegar og verða strákar og einhverra hluta bíð ég alltaf að það breytist. Finnst eins og það sé lognið á undan storminum.
Bræður eru misvel staddir í lestrarkunnátttu og annar sonurinn þurft á ( og fengið ) aukakennslu í lestri. Sú kennsla hefur borið ágæstis árangur og greinileg framför hjá stráksa. Allavega er hann ( og þeir bræður báðir ) farnir að myndast við að lesa textann í sjónvarpinu. Sá tími er allavega liðinn að við foreldrarnir getum s-t-a-f-a-ð ef verið er að ræða eitthvað sem bræður eiga ekki að vita. Við erum á því stigi að nota ensku í svoleiðis leynimakk en þar sem bræður eru farnir að sletta ensku við hvert mögulegt og ómögulegt tækifæri þá þurfum við sjálfsagt að læra pólsku eða eitthvað nýtt tungumál. Nú eða þá geyma allt leynimakk fram yfir háttatíma hjá þeim bræðrum.
Snjór í gær - slabb í dag. Ætlaði á höfuðborgarsvæðið í jólagjafaleiðangur um helgina en fór sem betur fer ekki í gær, nýtt kortatímabil er komið og að sögn tengdamúttu voru engin kreppueinkenni í sjáanleg í Smáralindinni, bara allt troðið af bílum og fólki með æðisglampa í augum sem ruddist áfram af stórnlausri innkaupahvöt og straujaði kreditkortin sín í gríð og erg. Hljómar ALLS EKKI spennandi og alls ekki þegar maður þarf að hafa 2 7 ára gaura í eftirdragi sem að sögn eru með ofnæmi fyrir öllum búðum nema dótabúðum.
Ætla að fá mér fyrsta kaffibolla dagsins og búa mig undir að láta bræður fara að læra. Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2008 | 23:27
að eldast
Komst að því eftir heimspekilegar umræður í dag að aldurinn er farinn að færast yfir mann. Málið er að við háöldruðu hjónin ákváðum með 6 daga fyrirvara að bregða okkur bæjarleið á laugardagskvöldið á ákveðna samkomu hjá átthagafélagi í Reykjavíkursvæðinu. Fengum pössun fyrir erfingjana og héldum af stað. Áttum þar ánægjulega kvöldstund með góðu fólki. Skemmtuninni var lokið fyrir miðnætti og við héldum af stað heimleiðis. Vorum komin heim hálf eitt. Hljótt í húsinu þar sem erfingjarnir voru í dekri hjá afa og ömmu. Fórum snemma að sofa og vorum bæði vökuð rúmlega hálf tíu um morguninn. Bræður voru komnir heim til sín um hádegi.
- 1. Skemmtanahald ákveðið með 6 daga fyrirvara = við ákváðum að "skella okkur " út . Einhvern tímann hefði "skella sér " þýtt 2 mínútna fyrirvara.
- 2. Við vorum komin heim hálf eitt og mjög sátt við það. Langaði ekki að vera lengur.
- 3. Sofa út - maður er vaknaður hálf tíu og getur ekki sofið lengur.
Þetta hefur eitthvað með aldur að gera, ekki satt ?
Allavega einn Hafnfirðingur er búinn að setja upp á kveikja á jólaseríum - mér finnst það snemmt. kannski hefur það eitthvað með aldur að gera líka ?
Bræður eru farnir að taka eftir jólaauglýsingum i fjölmiðlum og spyrja reglulega " hvað eru margir dagar til jóla" ? 40 og eitthvað er hrikalega langt.
Er farin að eyða of miklum tíma á fésbókinni - var samt rosalega glöð að rekast á gamlan vinnufélaga sem ég hef hvorki heyrt né séð í mörg ár. Spjallaði við hana í dag.
JA tilkynnti í gær að hann væri úldnastur í fjölskyldunni. Það þýðir að hann prumpar mest og prumpulyktin hans er mest. Hann er bara nokkuð stoltur af titlinum . Ég verð alltaf jafn hissa hvað það getur komið vond lykt úr ekki stærri rassi. ( mjög þroskandi og spennandi umræðuefni )
Bakaði snúða, möffins og gulrótarbrauð á sunnudaginn. Gulrótarbrauðið er ekki að slá í gegn hjá mannfólkinu en fuglarnir eru hæstánægðir.
Er ekki byrjuð að kaupa eina einustu jólagjöf - stefni á að byrja um helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2008 | 00:25
Jarðskjálfti
Fékk sjokk um kvöldmatarleytið i dag þegar húsið hristist - snarpur skjálfti upp á 4,3 á richter. Ég var í eldhúsinu að undirbúa kvöldmatinn þegar krukkur og glermunir sem eru ofan á efri skápum fóru að hristast og nötra. Ég tók stökk fram, enda skíthrædd við svona hræringar, eiginmaðurinn sá ástæðu til að rísa upp úr sófanum og athuga hvort ekki væri í lagi með frúna ( hafði meiri áhyggjur af mér en skjálftanum ) en bræður sátu sem fastast fyrir framan leikjatölvuna. SÁ sá þó ástæðu til að snúa andlitinu frá skjánum í 2 sekúndur til að spyrja " hvað var þetta eiginlega ?" en sá ekki ástæðu til að bíða eftir svari og hélt áfram í leikjatölvunni.
Eftirskjálftar hafa ekki komið og ég búin að vera merkilega róleg en finn samt að ég er ekki tilbúin að fara að sofa ( það gætu hugsanlega komið skjálftar á meðan ) JA spurði í kvöld " hvenær getum við gist hjá ömmu í rauða húsinu ? " það er nú reyndar langt síðan bræður gistu þar ( háaldraðir og heimakærir foreldrarnir fara sjaldan að heiman ) en það er kannski spurning hvort maður leggi inn gott orð fyrir næstu helgi
Bekkjarkvöld hjá hinum syninum á morgun - spennan er öll hans megin -
Það er rúmur líter af hvítvíni í ísskápnum síðan um þarsíðustu helgi - ætla að smakka og sjá hvort það er ónýtt eða hvort það nýtist sem slökunar og svefnmeðal. Best að kíkja á stöðuna á Óbama og Makkein á meðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2008 | 23:36
Paolo Conte
Eitt af því sem ég hef ekki hlustað á í mörg ár og var búin að gleyma en hvað finnur maður ekki á youtube
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2008 | 16:56
laugardagur
Tíðindalítill laugardagur hingað til en þó ósköp ljúfur og góður.
Byrjaði á að láta bræður læra þegar barnatími sjónvarpsins var búinn. Gekk bara vel þar sem bræður voru sammála því að það væri betra að læra núna ( og á morgun ) og þurfa bara að lesa í lestrarbókinni á virkum dögum. Síðan var hin vikulega Bónusferð - úff og púff. Það hafa greinilega ekki allir farið með barnabæturnar sínar og hamstrað áfengi í Vínbúðunum í gær því slíkan fjölda og stórinnkaup sér maður varla í Bónus nema rétt fyrir jól. Klikkað að gera og allir orðnir hundpirraðir að búðarferð lokinni. Bræður og búðarferðir eiga engan veginn saman nema um sé að ræða ferðir í leikfangabúðir.
En - mamman var í stuði og ákvað að kíkja í eina búð enn, bræðrum til frekar lítillar gleði. Eitt magasínið í Reykjanesbæ hafði auglýst útsölu á fatnaði - 500 kr fyrir stykkið. þar var fátt um fína drætti og ég fór út með rándýrar heilsuvörur í staðinn fyrir ódýran fatnað. Annars er eftirtektarvert hvað fólk/konur sem ekki hefur íslensku sem móðurmál er duglegra að leita og skoða á svona útsöluborðum. Annað en íslenskar snobbhænur eins og ég
Bóndinn fór snemma í morgun í vinnu og er nú á heimleið. Ég ætla að gefa honum heilsteiktan kjúkling, hrísgrjón og salat í kvöldmatinn. Ef hann verður stilltur þá fær hann bjór með.
Fiskiaugað hans JA sem er búið að liggja í stórum glærum poka á eldhúsbekknum er komið í ruslið Strákur tók pokann upp í morgun áður en hann tók til við lærdóminn, kíkti á hann og hryllti sig " oj augað er sprungið og svo er það líka úldið, mig langar ekki að eiga það lengur " og henti pokanum í ruslið.
Ég tók smá þrifnaðarkast í eldhúsinu áðan og fór m.a. yfir niðusuðudósir og flöskur í skápnum. Henti allavega 4 dósum, sú elsta var með áletruninni " best before 31.12.2005 " Greinilegt að niðursoðnir sveppir eru ekki oft á borðum hjá okkur. Eins niðursoðinn aspargus því tvær dósir af honum voru orðnar dálítið aldraðar.
Ætla að fara að elda - laugardagur = góður matur, gos með matnum, ís í eftirmat og jafnvel eitthvað gott í sjónvarpinu. Bara helv.gott .
P.S bóndinn gaf mér blóm í gær
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
kona á besta aldri
187 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar