13.3.2012 | 11:48
Hammond hátíð 2012 - dagskráin komin
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2012 | 23:48
Hvað er að skera undan mamma ?
spurði sonur þar sem hann las fyrirsagnirnar á mbl.is yfir öxlina á mér um helgina ?
Ég útskýrði það fyrir honum ( og hinum syninum líka ) á eins einfaldan hátt og ég gat. Sagði þeim efni fréttarinnar í stuttu máli. Bræður hrylltu sig og þótti verknaðurinn afar ljótur, sem hann auðvitað er.
Stundum koma örstutt augnablik þar sem ég er ekkert glöð yfir að bræður séu orðnir læsir.
13 ára fangelsi fyrir að skera undan ástmanninum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2012 | 15:48
stutt og laggott
Bræður hafa haldið sig alveg á mottunni síðustu vikur og engar fréttir um óæskilega hegðun eða heimsóknir til skólastjóra.
Þeir æfa fótbolta og taekwondo af kappi - Spiluðu hér í Grindavík um síðustu helgi og spila aftur í Grindavík um næstu helgi.
Uppáhaldsfrændi spilar ekki með, hann braut á sér tána í síðustu viku. óheppinn.
Sá stóri vann ekki í hreyndýralottóinu - en það mátti nú vona.
Ég gekk í bókaspjallshóp hér í bæ í síðasta mánuði og Slysavarnardeildina í mánuðinum þar á undan. Ætla að bjóða mig fram í stjórnarsetu í einum hóp í viðbót þennan mánuðinn.
Er farin að verða forvitin hverjir spila á Hammond -
Ætla að elda grjónagraut í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2012 | 17:03
Skyldusparnaður
Stend í tiltekt, búin að henda slatta af gömlum pappírum en sumt verður maður að eiga !
Þarna var kominn hluti upp í útborgun á íbúð.
Ég var samt búin að taka út hluta af skyldusparnaðnum sem var notaður til að fjárfesta í Subaru Justy árg 1995 öðru nafni fótanuddtækið.
En nú sparar enginn neitt, tekur bara lán og meira lán.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2012 | 22:48
9 fótboltaleikir og 10. geup. gul rönd.
Sunnudagurinn var annasamur.
Mamman og bræður tóku daginn snemma, voru farin út úr húsi klukkan 8 um morguninn. Fyrst á fótboltamót í Njarðvík þar sem bræður voru búnir að spila 9 leiki klukkan rúmlega 12 á hádegi og einn leikur eftir.
Ekki gott því bræður áttu að vera mættir í annað íþróttahús klukkan 12,30 í sama bæjarfélagi til að taka fyrsta beltaprófið sitt í taekwondo. Það leit út fyrir vandamál því ef þeir hefðu yfirgefið svæðið hefði liðið verið einum færri.
Sem betur fer mætti Andri frændi snemma fyrir sinn riðil og auðvitað hljóp hann í skarðið og spilaði síðasta leikinn svo bræður gætu mætt á réttum tíma í prófið. Þarf ég að taka það fram að núna er hann uppáhaldsfrændi minn
Bræður stóðust prófið og eru með skírteini upp á það að hafa staðist próf fyrir 10 geup, gula rönd.
Pabbinn var með stjórasímann og komst ekki með. Hundsvekktur yfir því.
Þegar hann er með stjórasímann þá er hann á bakvakt og verður að vera viðbúinn að rjúka í útkall eins og skot.
Þá þýðir ekki að vera á fjölskyldubílnum á íþróttamóti eða í einhvers staðar annars staðar.
Vonandi kemst pabbi með næst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2012 | 17:21
fékk tölvupóst frá báðum kennurum
Fyrsti tölvupóstur dagsins
" XY kom 12 mín. of seint inn í dag úr einum frímínútunum. Hann verður að laga þetta. kv kennari "
Ekki í fyrsta skipti sem þessi sonur kemur of seint úr frímínútum
Annar tölvupóstur dagsins
"YX skilaði sér ekki í 5. tíma. Þegar korter var liðið af tímanum fór ég út að leita og fann hann ásamt öðrum dreng út á leikvelli bak við hjólabrettarampana. Þar voru þeir að leika sér með Ipat sem hinn drenguinn hafði komið með. Þeir fóru í viðtal til skólastjóra. " kv kennari
Bræður ásamt fleiri strákum voru saman í frímínútum. Annar slapp við að heimsækja skólastjóra, hinn ekki.
Foreldraviðtöl í næstu viku, bræður eru ekkert sérstaklega spenntir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2012 | 20:11
Starfsdagur og sjónvarp
Það hefur verið örlítið stríðsástand á heimilinu síðan um jól. Ástæðan er sjónvarpið, eða réttara sagt hversu lengi bræður mega horfa á sjónvarpið á kvöldin þegar er skóli daginn eftir.
Að sjálfsögðu þykjum við frekar ströng og steinaldarleg að ætlast til þess að bræður fari í rúmið kl 9. Sérstaklega þegar allir "skemmtilegustu" sjónvarpsþættirnir virðast byrja klukkan 9 á kvöldin. Þarf nokkuð að minnast á það að auðvitað mega "allir aðrir " vaka lengur en þeir bræður. Sá sonurinn sem telur sig sífellt vera að missa af einhverju þegar honum er skipað til sængur talar mun hærra og oftar um þetta óréttlæti. Hann er líka mun erfiðari á fætur á morgnanna. Hefur reyndar alltaf verið frekar morgunfúll ( Við skulum ekkert fara út í það hvaðan barnið hefur þetta, pabbi hans vaknar yfirleitt syngjandi )
Hingað til hefur oftast tekist að miðla málum á þann hátt að bræður geta horft þessa umræddu þætti á "vodinu" seinna. Á morgun er starfsdagur og því frí í skólanum. Bræðrum finnst það ekkert leiðinlegt. " vei, þá getum við horft á Spesíal Viktim Júnits" sagði sjónvarpssjúklingurinn og horfði storkandi augum á steinaldarforeldrana, vitandi að þátturinn byrjar kl 21,00.
Við ætlum ekki að gera mál úr því en það standa ennþá yfir samningaviðræður um hina nýju seríu af Hawaii Five - O sem bræður eru búnir að bíða spenntir eftir. Fyrsti þátturinn byrjar kl 20,55 á morgun. Ég bauð þeim um daginn að fella niður vasapeningana gegn því að fá að vaka lengur og horfa á þáttinn.
Annar horfði á mig dálítið hissa " í alvöru " - ég veit ekki hvort hann var meira hissa á því að fá ekki þvert nei eða tilboðinu sjálfu. En, hann var til í að sleppa vasapeningunum.
Hinn horfði líka hissa á mig. Ég held samt að honum hafi fundist þátturinn ansi dýr. Allavega spurði hann hvort mætti horfa á þáttinn daginn eftir, en var ekki tilbúinn að svara því hvort hann myndi fórna vasapeningunum.
Bloggar | Breytt 6.2.2012 kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2012 | 20:15
Uppáhalds norska mágkonan
á afmæli í dag, ótrúlegt að hún skuli búin að vera partur af fjölskyldunni í 15 ár eða um það bil.
En hún hefur vonandi átt góðan dag í faðmi litlu krúttilegu fjölskyldunnar sinnar ( efast ekki um það ) Knús og kramkveðjur frá Grindvíkingunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.1.2012 | 10:36
Grátt hár ?
Annar sonurinn lét mig vita ( óumbeðinn takk fyrir ) að ég væri með grátt hár.
Ég neitaði því að sjálfsögðu en hann stóð fastur á sínu og benti meira að segja á gráa hárið. Svo nú er spurningin, hvort á ég að :
hafa samband við konuna með hárlitunargræjurnar ?
eða gera hann arflausann ?
svei mér þá................
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2012 | 17:02
Snjórinn næstum farinn
Eftir bleytu og rigningu undanfarna daga sést aftur í götur og hægt að ganga um án þess að vera með X-tra túrbó plús mannbrodda. - ég á ekki svoleiðis þannig að ég hef lítið ferðast um fótgangandi.
En í dag klæddi ég mig í íþróttaskó og fór út að ganga. Dásamlegt. Heilmikið af fólki á ferðinni, bæði gangandi og hjólandi.
Bræður fóru á fótboltaæfingu í morgun. Komu heim, fengu sér að borða og fóru svo út aftur - á hlaupahjólum. mikil hamingja.
Það er svo mikil hamingja að þeir hafa ekki komið heim síðan um hádegi. Kannski er þetta ekki tóm hamingja, þeir vita nefnilega að það er stærðfræðipróf á morgun og ef maður er ekki heima þá getur maður ekki verið að læra fyrir próf. Menn vita nú sínu viti.
Búið að panta að fara aftur að renna þar sem við vorum um síðustu helgi næst þegar kemur snjór. Það er nú gott að vita að gamla settið er ekki alveg dottið úr tísku og gaman að gera eitthvað með okkur.
Var að reka augun í dagsetningu á Hammond hátíðinni á vef Djúpavogs - ég þangað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
kona á besta aldri
336 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar