22.1.2012 | 22:04
Að renna sér á sleða og skíðum
Fjölskyldan var ansi nálægt því að gerast letidýr á heimsklassa í dag, horfandi á dr Phil og Rachel Ray klukkan 14,00 í dag. Veðrið með fallegast móti, snjór og sól og algjör stilla.
Við hituðum kakó og settum á brúsa, sóttum sleða og pabbinn ákvað að draga fram skíðin sem voru upp á geymslulofti í bílskúrnum. Þau voru keypt kringum 1990 og "eitís" litirnir allsráðandi. Skíðin voru vel rykfallin enda voru síðast notuð fyrir 12-13 árum.
Pabbinn var nokkuð ánægður þegar kom í ljós að skíðabuxurnar sem voru líka notaðar síðast fyrir 12-13 árum smellpössuðu ennþá.
Þegar annar sonurinn vissi hvað buxurnar voru gamlar spurði hann : Eru þær ekkert þröngar ?
Pabbinn : "nehei, ekki neitt " ( ennþá ánægður með sig )
Sonur : " það hlýtur að vera teygjuefni í þeim" og ekki laust við kaldhæðni í röddinni.
Pabbinn varð næstum móðgaður en ákvað að svara þessu ekki enda ekkert teygjuefni í skíðabuxunum sem voru keyptar í H&M Rowells á sínum tíma.
Skíðabuxurnar reyndust vel sem og "eitís" skíðin og ekkert hlegið að pabba gamla sem tókst að renna sér nokkrar ferðir alveg áfallalaust.
Ég fór nokkar ferðir á þotu, í glænýjum flís utanyfirbuxum sem ég keypti í Boston í nóv 2011. Hæstánægð með daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2012 | 22:17
Með fullri reisn
Átti samtal við bræðum yfir kakói og köku um hvernig væri hægt að svifta af sér buxum með einu handtaki. Datt þá i hug lokaatriði úr bíómynd sem var ansi vinsæl á sínum tíma og þar sem allt finnst á jútúb þá var atriðið að sjálfsögðu þar.
Annars eru allir sprækir, bóndadagur nálgast og ég ætla að gerast svo óforskömmuð að vera ekki heima annað kvöld. Verð nú samt búin að græja þorramat og bjór fyrir herra hússins eins og venjulega á þessum degi. Ætlaði að gera eitthvað fyrir bræður í tilefni dagsins en þeim er boðið í afmæli og verða ekki heima um kvöldmatarleytið. Minni fyrirhöfn fyrir mig.
Annars voru þeir í afmæli í gær, miðvikudag, fara aftur á morgun, föstudag og svo kom boðskort áðan í afmæli á laugardaginn. Brjálað að gera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2012 | 15:21
litli (norski) bróðir á afmæli í dag
ótrúlegt en satt þá er krakkadýrið orðið 39 ára gamalt.
Held að hann sé löngu hættur að fela sig inni á klósetti til að losna við uppvaskið ! Eða hvað ?Upplýsingar óskast.
Svona í minningunni er þetta hans eini galli, að öðru leiti var hann fullkominn. Annars látum við myndirnar tala sínu máli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.12.2011 | 17:52
Þú veist að barnið þitt er orðið unglingur
þegar það má horfa á frítt efni á "vodinu" eða "leigunni" í sjónvarpinu og það velur þátt af CSI Miami. !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2011 | 15:25
Gyða og Gísli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2011 | 20:31
Hinn íslenski veruleiki ?
Feðgar spila "Monopoly" af kappi, byrjuðu í gærkvöldi og héldu áfram eftir kvöldmat í kvöld. Sá stóri fer mikinn og græðir á tá og fingri.
Synir eru ekki alveg sáttir, kalla hann gráðugan gamlingja og útrásarvíking. Þeim stóra er alveg sama, er ýmist tekinn fyrir ölvunarakstur eða borgar sektir vegna hraðaksturs og á sinn þátt í að annar sonur er orðinn gjaldþrota og varð að hætt að spila. Gjaldþrota sonur er samt ekki hættur afskiptum af spilinu því hann var gerður að bankastjóra.
Það styttist sennilega í því að spilinu ljúki, hinn sonurinn er ýmist búinn að veðsetja eða selja eignir sínar til að standa gráðuga gamlingjanum skil á okurleigunni.
Grænmetissúpa í matinn og gróft heimabakað brauð í matinn. Voða gott.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2011 | 22:28
jólablogg
Gleðilega jólahátíð allir saman.
Ég hef verið afskaplega afslöppuð fyrir og um jólin með blogg. Langaði stundum til að blogga en hreinlega nennti því ekki.
Jólaundirbúningur var afslappaður, kannski full afslappaður því síðustu jólagjafir voru keyptar á þorláksmessu og pakkað inn á aðfangadag. Einnig voru afskaplega fáir sem fengu jólakort. Þið fenguð öll hugskeyti og hlýjar kveðjur hinsvegar en spurning hvort það komst til skila.
Jólin komu hins vegar í okkar hús þrátt fyrir að ekki væri búið að gera þetta "allt" fyrir jólin og við höfum átt afslöppuð, hátíðleg og notaleg jól.
4 dögum fyrir jól héldum við að ísskápurinn okkar væri að gefa upp öndina. Bóndinn fór í vinnuna vitandi það að nánast engin kæling væri á ísskápnum. Hringdi í hina og þessa rafmagnskalla í bæjarfélaginu , einn vildi ekki koma því ísskápurinn deyjandi var ekki af réttu merki, annar gat ekki komið en sá þriðji sagðist ætla reyna að koma fyrir hádegið. Hann er nú ekki kominn blessaður en ísskápurinn var tæmdur, hreinsaður þveginn og afþýddur og stóð gljáandi hreinn og hljóður þegar bóndinn kom heim. Bóndanum datt í hug að skrúfa sundur klóna á ísskápnum og viti menn - einn laus vír sem þurfti að skrúfa fastan. Bingo og skápurinn fór að mala eins og ánægður köttur. Við vorum líka ánægð og það tók ekki langan tíma að raða aftur inn í hreinan og fínan skápinn. Ég get sagt með góðri samvisku að ég hafi tekið ísskápinn í gegn fyrir jólin.
Bræður eru í sykursjokki eftir nammi og kökuát undanfarna daga. Eru hins vegar búnir með nammið sem þeir fengu í jólagjöf svo það verða fráhvörf á morgun. Þeir eru þó aðeins farnir að sofa lengur frameftir en fyrir jól. Mamman er fljót að gleyma og heldur alltaf að bræður komi til með að sofa lengur þegar jólafrí í skólanum byrjar. En það er sama sagan á hverju ári - litla pakkadagatalið og skógjafir jólasveinana ásamt tilhlökkun og spenningi sér til þess að bræður sofa ekkert of lengi. Á aðfangadagsmorgun voru bræður klæddir, búnir að skoða húfurnar sem Kertasníkir kom með og setja þær upp - ásamt því að snæða morgunverð og kveikja á sjónvarpinu - klukkan 07.11. Þá fór ég fram úfin og mygluð með þau skilaboð að gólandi strákar skyldu gjöra svo vel að hafa lágt, aldraðir foreldrarnir hefðu farið seint að sofa og þyrftu meiri svefn.
Sá stóri mætir í vinnu í fyrramálið og hlakkar ekkert sérstaklega til. ( Er bara latur og langar meira til að flatmaga í sófanum í nýjum náttbuxum ) Hann var í fríi á Þorláksmessu en um það leyti sem við vorum að gera okkur klár til að leggja af stað í hafnfirskan möndlugraut var vinnuútkall ( í Hafnarfjörð reyndar ) Sem betur fer tók það ekki langan tíma og bóndinn kom á hárréttum tíma í grautinn.
Möndlugjöfin varð eftir í Hafnarfirðinum. Bræður hefðu alveg viljað fá hana með sér en vonandi fáum við hana einhvern tímann lánaða. ( Naked Gunn myndirnar 3 )
Ætla að elda fisk á morgun og grænmeti ( eða súpu ). - Er komin með kjötsvima að ég held. Samt hefur át verið í hófi og enginn borðað sér til óbóta. Er bara farin að hlusta betur á líkamann hvað hann þolir og þolir ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2011 | 15:11
Mér finnst tilheyra að hlusta og horfa á þessa auglýsingu fyrir jólin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2011 | 10:30
Hvað ætli næturklúbburinn sé miklu eldri en hin nýbakaða móðir ?
" Faðir barnsins er eigandi næturklúbbs sen er miklu eldri en hún "
Smámunasemi eða ekki, útúrsnúningur eða ekki ?
Ég geri fastlega ráð fyrir að þessi setning eigi að fjalla um að hinn nýbakaði faðir sé miklu eldri en móðirin eins og kemur fram seinna í fréttinni.
Eignaðist barn með eiganda næturklúbbs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2011 | 00:02
Hvar er Nigella ?
Sorg á heimilinu í kvöld.
Feðgarnir þrír voru búnir að koma sér vel fyrir framan sjónvarpið, tilbúnir að dásama (eldamennsku?) Nigellu með tilheyrandi stunum og nautnahljóðum.
En hvað gerðist, Nigella hætt að birtast á sjónvarpsskjánum í bili og einhver "kall" farinn að elda í staðinn. ( Sveinn Kjartansson og nýr þáttur - allt á einn disk )
Sá stóri fór út að moka snjó og bræður ákváðu að fara að sofa, frekar spældir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
kona á besta aldri
336 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar