ég á ekki tengdadóttur

Og finnst það bara allt í lagi enda afsprengin ekki nema rúmlega 9 ára.  Á alveg nóg með að díla við "rakspírann " og bræður sem vilja spreyja á sig í tíma og ótíma.  Annar sonurinn horfði á mig frekar undarlegu augnaráði þegar ég benti honum á það það þýddi ekki að fara í sturtu eftir körfuboltaæfingu og  spreyja á sig vellyktandi ef maður færi svo aftur í sveitta körfuboltabolinn að sturtu lokinni. GetLost    Þessar mömmur eru stundum svo glataðar.

Þó svo ég sem móðir 4 bekkinga eigi ekki tengdadóttur þá gildir það ekki um alla.   Það er sko komið kærustupar í bekkinn hans SÁ.   " og þau eiga bara einn dag eftir , þá eru þau búin að vera kærustupar í heila viku " sagði SÁ og fannst þetta frekar heimskulegt. 

Umræðan um kærustuparið tók svo undarlegan vinkil því hinn sonurinn ( sem sagði að það væri ekkert kærustupar í sínum bekk ) tilkynnti að stelpa hefði einu sinni slegið sig utan undir Whistling    Bekkjarsystur hans fannst ástæða til að slá hann utan undir í danstíma í skólanum, því hann dansaði bara alls ekki nógu vel.    Fótafimin hjá syninum hlýtur að hafa verið afar slæm því ég veit ekki betur en að umrædd bekkjarsystir sé að öllu jöfnu ljúf og teljist langt frá því að vera ofbeldishneigð. 

Frí hjá bræðrum í skólanum í dag og eftir körfuboltaæfingu fóru þeir út að renna.  Síðasti séns því samkvæmt veðurspá rignir snjónum burt á morgun.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

kona á besta aldri

220 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 1426

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband