Tónlistarleg fullnæging

Dagurinn sem þú ert búin að bíða eftir í nokkrar vikur er handan við hornið og ekki laust við að það sé farin að byggjast upp spenna.  Þú veist að það er eitthvað kunnuglegt og afskaplega gott í vændum.  Hvað það er nákvæmlega veist þú ekki, það á eftir að koma í ljós.

Það er búið að fá frí í skóla og vinnu fyrir heimilisfólkið og þér finnst ekkert svo mikið að eiga eftir að keyra 600 kílómetra.  Þú ert glöð og spennt, þú ert á leiðinni á Hammond hátíð á Djúpavogi.  Við mikla hamingju bræðra fá þeir frí í síðasta tíma í skólanum og vel nestuð leggur famelían af stað.  Við erum komin á áfangastað á fimmtudagskveldi og förum snemma í háttinn.

Föstudagurinn þrettándi maí rennur upp og spennan heldur áfram að byggjast upp,  Þú lætur bræður læra, þú ferð með fjölskyldunni í sund, þú sérð mörg kunnugleg andlit í þorpinu, skoðar ljósmyndasýningu frá fyrri Hammond hátíðum og tilhlökkunin kraumar.  Þegar líður á daginn ferð þú að gera þig klára, klæðist betri fötum en venjulega og setur hrukkusparsl í andlitið.  Eftir að búið er að næra sig, setja erfingjunum, sem áttu að vera einir heima og ætluðu að vera lengi í tölvunni,  lífsreglurnar  var kominn tími til að halda af stað.  Við hjónakornin röltum af stað og plöntuðum okkur við borð framarlega í salnum, fengum okkur kaffi, víski og koníak og vorum þar með tilbúin að meðtaka alla þá tóna sem Landsliðinu og Páli Rósinkranz þóknaðist að töfra fram þetta kvöld. 

Og þá kom að því : Halldór Bragason, Guðmundur Pétursson, Róbert Þórhallsson, Jóhann Hjörleifsson og nýgræðingurinn í hópnum Tómas Jónsson sáu til þess að þú sast með gæsahúð og nánast nötraðir af nautn.  Þú gleymdir tímanum, umhverfinu og fólkinu í kringum þig.  Þú gleymdir öllu nema tónlistinni sem þessir menn leyfðu þér að njóta og sveifst um í sæluvímu.

Skyndilega dró ský fyrir sólu(sælu)  það var tilkynnt um hlé.  Þú komst smá saman til meðvitundar og ákvaðst að nota þetta óvelkomna hlé til að heimsækja salerni og bar.  Það gerðir þú og mundir svo að það vantaði einn mann á sviðið.  Hvernig er hægt að gleyma einu stykki Páli Rósinkranz ?

Þegar tónleikarnir hófust aftur og sjötti liðsmaðurinn var kominn í hópinn þá var ekki langt í að gæsahúð og sæluvíma yrði að  hreinum unaði og alsælu sem  varði samfellt þar til tónleikum lauk.  Þú varst alls ekki tilbúin að láta sælunni lokið og klappaðir svo hraustlega í uppklappinu að þú fékkst blöðru í lófann.   En ekkert varir endalaust og tónlistarmennirnir yfirgáfu sviðið.

Þú mættir aftur á tónleikastað kvöldið eftir.   Kjötsúpa, Júróvision og Baggalútur er góð blanda sem lætur mann líða vel.  Vellíðanin og hamingja var allsráðandi og kvöldið var ljúft.  Góður félagsskapur spillti heldur ekki fyrir.  Baggalútsmenn eru alltaf skemmtilegir en það kom mér þægilega á óvart hvað Karl Sigurðsson og Guðmundur Pálsson eru góðir söngvarar.

Morguninn eftir þegar búið er að pakka bónda, börnum og farangri  í bílinn er tímabært að leggja  í  kílómetrana 600 til baka.  Tekur ekki svo langan tíma.  Þú ert þægilega dösuð og þreytt en um leið ánægð með upplifunina um helgina og veist fyrir víst að stefnan er tekin á Hammond hátíðina 2012

 

 

 

 


Unglingar - ó já

9 - 10 - 11 ára unglingar eru dálítið fyndnir.  Um daginn kom félagi í heimsókn sem er eldri en unglingarnir á þessu heimili.  Hann var töffari - fannst honum Whistling  Ég sneri mér undan og hló í laumi.  Maður hlær nefnilega ekki að töffurum.

Töffarar herma eftir eldri töffurum og vilja hafa buxurnar á mjöðmunum.  Það gekk erfiðlega hjá þessum töffara - buxurnar hans voru mest á hælunum.  Þennan dag var hann í marglitum boxer nærbuxum.  ( þar áður voru þær hvítar með blárri teygju ) Ég sá þær oftar en ég kærði mig um þegar töffarinn gleymdi að ganga eins og hann væri með stóran bolta milli hnjánna og missti buxurnar niður á hæla.   Hann gafst upp á að spila körfubolta, það gekk frekar illa þar sem önnur hendin var alltaf upptekin við að halda buxunum uppi Blush 

Unglingarnir á þessu heimili eru í fínu formi.  Eyða miklum tíma í að greiða sér,  horfa á þætti eins og One Tree Hill, 90210 og Royal Pains og slást um að lesa fréttablaðið fyrst á morgnanna.  Eru löngu hættir að hlusta á Prumpulagið og Strumpana en kunna flest það sem Steindi, Friðrik Dór, Eminem og Emmsje Gauti senda frá sér.  Svo ekki sé minnst á Akon.  Þó ég sé búin að hlusta á þetta lag í ýmsum tóntegundum síðustu vikurnar þá get ég ekki vanist því að heyra næstum 10 ára unglingana söngla þetta   " I just had sex and it felt so good "

Sjóarinn síkáti handan við hornið og við vorum fyrst í götunni til að skreyta. Wizard


4 bekk lokið

Skólaslit í dag - fjórði bekkur að baki og sumarfrí formlega hafið.

1 mamma + bræður + 1 vinur fórum í Bláa Lónið i dag ( í rigningarsudda og kulda ) til að fagna þeim áfanga.  Ég og næstum 10 ára strákar hafa frekar ólikar hugmyndir um hvernig eigi að eyða tímanum í bláa lóninu

ég :  finna sér extra heitan stað þar sem hægt er að liggja í rólegheitum, slaka á og horfa upp í skýin. 

Næstum 10 ára strákar :  Fara út um ALLT í lóninu, passa sig að fara ekki á of djúpa staði, reyna á upphandleggsvöðvana undir göngubrúnum, fela sig fyrir mömmunni ( sem sér ekki of vel gleraugnalaus ) og láta sem flesta gesti lónsins vita " að hér sé ógisslega mikil leðja " með háum, frekar skrækum öskrum.

En þetta var nú samt gaman og strákar voru sælir og sáttir eftir að hafa snætt grillaða samloku, gos og ís á eftir.  Ekki öfunda ég þá af því að fara svo beint á fótboltaæfingu.

Bræður fengu fínustu einkunnir og góða vitnisburði svo foreldrarnir eru afar stoltir af afkvæmunum.  Afkvæmin eru nokkuð sátt líka.

Styttist í sjóarann síkáta og fjör um helgina.  Bara gaman.


brilljantín eða vaselín ?

Ég hef stundum sagt að bræður séu bráðþroska unglingar.  Kannski hefur það eitthvað með að gera að mér finnst þeir stækka allt of fljótt Blush

En móðir og unglingar fóru í klippingu um daginn.  Nú er ekki lengur hægt að tala um sumarklippingu sem þýðir að hárgreiðslufrænka er hætt að draga fram rafmagnsklippurnar og snoða strákahausana.  Nú skal klippingin vera hipp og kúl með síðan topp, stutt að aftan og ekki klippa of mikið í hliðum.   En þó klippingin sé fín þá haldast hárin nú ekki alveg eins og þau eiga að vera. 

Bræður eru farnir að eyða mun meiri tíma en venjulega fyrir framan spegilinn og geta ekki farið í skólann nema vandlega greiddir.  Skilningslaus móðirin á samt frekar erfitt með að skilja af hverju það þarf að greiða sér svona vandlega þar sem ekki er hægt að halda út úr húsi án þess að setja húfu ofan á hárgreiðsluna GetLost

En það er ekki bara á morgnanna sem bræður greiða sér.  Annar sonurinn var búinn að eyða dágóðum tíma inni á baði einn seinnipart og kemur vel "greiddur" fram.  Eitthvað fannst mér áferðin á toppnum ( sá ekki meira af hárinu þar sem strákur var með derhúfu ) öðruvísi en venjulega og fer að skoða.   í ljós kom að strákur hafði sett vaselín á varirnar á sér og ákveðið að þetta gums væri nú örugglega hentugt í hárið líka.  

Ég bað strák um að gera þetta ekki aftur og frekar spyrja mig ef honum langaði í gel eða eitthvað annað efni í hárið framvegis.  Hann lofaði því.  Ég er handviss um að hann stendur við loforðið.  Eftir fimmta sápuþvottinn um kvöldið ákváðum við að láta það gott heita en það hefði ekki veitt af einni til tveimur þvottum í viðbót.  Eftir nokkra leit fannst túba af hárgeli sem verður til afnota fyrir þá bræður.  Spurning hvort pabbi eigi að leita í gömlum snyrtitöskum og sjá hvort það leynist brilljantín einhvers staðar.  Ekki notar hann neitt í hárið, er hvort eð er að mestu vaxinn upp úr því.

Ég var spurð um daginn hvort ég ætti, eða hefði átt, einhverjar tengdadætur.  Nei ekki veit ég til þess.  Hin móðirin ( einhleyp og líka tviburamóðir sem  á strák og stelpu ) glotti og sagðist vera búin að eiga þrjár !  Sonurinn hringdi í móður sína um daginn og hreykti sér af því að nú væri hann á föstu en ekki hún InLove   Tengdasynir voru hins vegar ekki á dagskrá.

Sá stóri kom heim lurkum laminn í gær og í dag.  Skrokkurinn er löngu búinn að gleyma öllu sem heitir líkamleg áreynsla og kann ekkert á þetta lengur.    Hann er í verklega hlutanum af sveinsprófinu og klárar á morgun. - Svo er útskrift 20 maí.  Þá verður kannski veisla !

Bræður byrja í prófum í næstu viku - próf eru ekki spennandi en það er sumarfríið hins vegar. 

Ég horfði á Júróvision áðan og fékk áfall.  Ísland komst áfram en ekki Noregur ??

 

 


Nýtt netfang

gamla netfangið mitt mun brátt verða óvirkt.

Frá og með núna mun ég nota nýtt netfang :

brefaklemman@gmail.com


Hvað er í matinn ?

Hvað er í matinn og hvað eigum við að borða ? 

Algeng spurning á mörgum heimilum, ekki spurning ?

Mitt heimili er eitt af þeim.  Ég er oft bæði svarandi og spyrjandi.  Svara spurningunni um hvað eigi að vera í matinn en spyr yfirleitt hvað eigi að vera í matinn.

Í dag spurði ég bóndann " hvað eigum við að borða " ?  Bóndinn ákvað að svara einhverju öðru en " ég veit það ekki " til tilbreytingar  og kom með tillögu um steikt gras !

Sonurinn sem sat í eldhúsinu og nagaði epli var fljótur að mótmæla þessu " Nei takk fyrir, ég ætla sko ekki að vera í vímu "!!!!!

Við vorum smá stund að fatta svarið -  fengum svo sjokk á leiðinni í búðina - aðallega yfir því að sonurinn skyldi vita þekkja orð eins og gras  ( hina merkinguna ) og svo víma.

En -grillað lambakjöt á 50% afslætti, bakaðar kartöflur, salat og heimagerð sinnpessósa brögðuðust ljómandi vel.

 


Meira "sumarveður"

eða þannig - hávaðarok með tilheyrandi rigningu um hádegisbil en farið að lægja seinnipart og bræður gátu þá farið út.

Ananr sonurinn á erfitt með að kyngja því að mega ekki fara út í peysunni þegar honum dettur í hug að fara út " það er komið sumar, sumardagurinn fyrsti er búinn ".  " Ég veit sonur sæll en það er rok/rigning/snjór/hagl eða eitthvað annað ekkisumarveður úti "

Sonur geiflar sig pirraður, tekur samt rökunum, klæðir sig í  efnisminnsta jakkann, horfir á mig með augnaráði sem er ekki alveg laust við hortugheit og " nú er ég búinn að klæða mig í jakka erfiða mamma " svip og fer.

Svo framarlega sem hann setur hjálm á hausinn á sér þá er mér sama um hitt.

Stóri fór í fyrsta prófið í dag - kom frekar ósáttur heim, lenti í tímahraki og gekk ekki eins vel og hann hefði viljað.  Er nú nokkuð viss um að hafa náð en stefnan er sett á hærri einkun en það.

Bræður eru nýbúnir í páskafríi en farnir að bíða eftir sumarfríi.  Það er sko aaaaalllllttttoooofff langt til 31 maí.  

Styttist í Hammond - bara gleði yfir því Smile


Páskahret og súkkulaðibrún uppköst

Veðrið hefur ekki boðið upp á mikla útivist þessa páskana, búið að vera rok, kuldi, rigning, haglél og snjór.  Akkúrat núna er allt hvítt úti og ég þyrfti að sópa af bílnum ef ég ætlaði mér eitthvað út.

Dagurinn var tekinn snemma, bræður byrjuðu á því að rekja vísbendingar sem búið var að koma fyrir og með smá aðstoð frá mömmunni tókst að finna hin heittelskuðu súkkulaðiegg.  Foreldrarnir þurftu líka að rekja vísbendingar eins og

1) farðu inn í eldhús - og auðvitað fórum við inn í eldhús. þar var næsta vísbending :

2 ) farðu inn á klósett - við þangað og þar var miði : 

3) Allt í plati, ha ha ha - farðu inn í stofu. -

Við inn í stofu og þar máttum við leita  - ekki mjög lengi samt - þar til við fundum páskaeggin sem tilheyrðu okkur.

Og einu sinni á ári má borða súkkulaði í morgunmat - það var sem sagt í dag Smile

Letidagur að baki með miklu sjónvarpsglápi og páskaeggjaáti.  Mágur kom og snæddi með okkur dýrindis hreindýrasteik.  Eldamennska að hætti húsbóndans eins og hún gerist best.  Bræður höfðu þó ekki mikla lyst enda ekki slegið slöku við páskaeggjaát.

Annar sonurinn tók sig til áðan og skilaði megninu af súkkulaðinu til baka. Sick Einhvern tímann verður allt fyst og nú er það "vísindalega" sannað að uppköst geta verið súkkulaðibrún og lyktað af súkkulaði.  

Smá innskot :

það er einnig "vísindalega" sannað að uppköst geta verið súkkulaðibrún en lyktað eins og uppköst !  Hinn sonurinn er sem sagt búinn að skila sínu súkkulaði líka Sick

 


Stálbrúðkaup

í gær áttum við hjónin stálbrúðkaup eða 11 ára brúðakaupsafmæli.  Við ákváðum að fara út að borða í tilefni dagsins sem við og gerðum.  Borðuðum humarsúpu, sushi og rauðsprettu.  Bræður völdu sér hamborgara og ís í eftirmat.  Því var svo skolað miður með kóka kóla.  Þeir voru svo leystir út með páskaeggi nr 3.  Dálítið svindl - ekki áttu þeir brúðkaupsafmæli.

 


Páll Óskar flytur ávarp til fermingarbarna - Siðmennt

Glæsilegt ávarp hjá Palla

Hvet ykkur endilega til að lesa þetta, á ekki bara erindi til fermingarbarna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

191 dagur til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1588

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband