Ekki mikið hlustað á geisladiska

á þessu heimili, það fékkst staðfesting á því um daginn.

5 fallegar og glæsilegar konur sóttu mig heim í byrjun apríl.  Ég undirbjó heimsóknina af kostgæfni, eldaði góðan (hollan) mat handa þeim og bjó til dýrindis (óhollt) gúmmulaði til að hafa með kaffinu.  Lagði dúk á borðið og kveikti á kertum.  Ákvað svo að setja skemmtilega tónlist frá "sítt að aftan" tímabilinu á - opnaði geislaspilarann , sem tekur 5 diska, og á móti mér tóku 5 geisladiskar af jólatónlist.  Blush 

Jólatónlistin er því komin upp í hillur og verður væntanlega þar fram í desember.

 


Geiri kenndur við Goldfinger kaupir Festi

Nú verður aftur fjör í Festi
(Tekið af vef Grindavíkurbæjar)
Sala á Festi í höfn - Boðið upp á listdanssýningu í dag

Samningar hafa náðst við Ásgeir Davíðsson athafnamann um að hann kaupi félagsheimilið Festi og verður þar rekinn skemmtistaður og hótel. Ásgeir segist ætla að rífa upp gömlu og góðu Festisstemmninguna og ætlar m.a. að bjóða upp á listviðburði á heimsmælikvarða.

Í tilefni dagsins ætlar Ásgeir að bjóða Grindvíkingum á listdanssýningu í Festi kl. 17:00 í dag í gamla samkomusalnum sem verður upphitun fyrir kútmagakvöld Lions í kvöld. Munu félagar í Lions standa heiðursvörð á sýningunni. Allir bæjarbúar eldri en 18 ára eru velkomnir.


Dagskráin klár fyrir Hammond hátíð 2011

Fylgist með á heimasíðunni   

Hlakka til að sjá ykkur öll

 


ég ruglaðist á bókaklúbb og leshring

Ég setti inn færslu um að mig langaði að vera í bókaklúbb.  

 Ég var ekki að segja satt - mig langar að vera í leshring þar sem allir lesa sömu bókina og ræða svo um hana. 

Má ég vera með einhvers staðar ?


He loves me

Við hjónin fórum í hina nýstandsettu Nettóverslun hér í Grindavík í gær, ekki í frásögur færandi nema hvað uppáhaldskaffið mitt var ekki til.  Ég fékk flog og var ekki tilbúin til skipta um kaffitegund á staðnum - út með Morgundögg frá Kaffitár og inn með Gulan Braga.  Nei takk, frekar myndi ég hætta að drekka kaffi.

Um kvöldið " Ef þú hefur tíma eftir skóla í dag, viltu þá koma við og kaupa kaffi handa mér "

Eiginmaðurinn kom heim rétt fyrir kvöldmat - með pakka af uppáhaldskaffinu mínu

InLove He loves me  - og engin hætta á geðvondri eiginkonu í kaffifráhvörfum.


"I just had sex "

"and it felt so good"  - syngja 9 ára unglingarnir  í tíma og ótíma þessa dagana.  - Ég get ekki að því gert að mér þykir þetta hálf óþægilegt ( og óviðeigandi ) þó svo ég viti fullvel að ekkert annað býr að baki en þetta lag.   

Ég kemst alltaf betur og betur af því að bræður eru mun lífsreyndari en ég hélt.  Gamla risaeðlan ég  Pinch.   Fjölskyldan sat fyrir framan sjónvarpið í gær og á skjáinn kom mynd af konu sem sat á baðkarsbrúninni inni á baðherberginu og horfði með ótta og hræðslu á lítinn staut sem hún var með í hendinni.

" Er hún að athuga hvort hún er ólétt  ?"  spurði strákur

" Já " sagði ég ( brá samt örlítið yfir því að strákur vissi hvað óléttupróf væri )  

Í sama bili er sýnt framan á stautinn  og ég ákveð að bæta við þekkinguna á óléttuprófum hjá syninum

" Ef það kemur blátt merki þarna þá þýðir það að hún er ólétt " sagði ég " ef það kemur ekkert þá er hún ekki ólétt "

Sonurinn var nú ekki alveg sáttur  -  " Ef það kemur plús, þá er hún ólétt, ef það kemur mínus þá er hún ekki ólétt " sagði hann ákveðinn.

Ég varð eiginlega kjaftstopp - gat ekki rökrætt við drenginn enda hef ég afskaplega takmarkaða reynslu af óléttuprófum.  Sem betur fer var óléttuprófið horfið af sjónvarpsskjánum og við mæðginin tókum þetta út af dagskrá.

Aldursforsetinn á heimilinu gengur um með gifsaða hendi í fatla.  Crying  Á þriðjudagsmorguninn þegar hann er búinn að leggja bílnum á bílastæðið í skólanum býðst hann til að aðstoða konu sem er búin að festa bílinn sinn í snjó.  Hann ýtir og togar en ekkert gengur - þá kemur þar að maður sem býðst til að aðstoða líka.  Hinn nýkomni sest undir stýri og tekst ekki betur upp en svo að minn maður fær mikinn hnykk(tog) á hægri  hendina.  Dagurinn líður, við foreldrarnir förum á árshátíð í skólanum þar sem bræður sýna danshæfileika sína, annar í línudansi og hinn í rúmbu.  Þeim Stóra verkjar meira og meira í hendina - drífur sig til læknis - og kemur til baka með hendina í risastóru og klunnalegu gifsi.  Bein í handleggnum sprungið.

Eftir svefnlausa nótt þar sem gifsið gerði ekki annað en að auka á verkina og vanlíðanina fórum við á Bráðavaktina í Kef þar sem gifshlunkurinn var tekinn af og léttara gifs - sem studdi við hendina - sett á auk þess sem hann fékk fatla til að hvíla hina gifsuðu hendi.

Sá stóri er því næstum kominn í sama pakka og fyrir rúmu ári síðan, getur ekki baðað sig sjálfur, ekki skorið kjötið sitt sjálfur og þarf aðstoð við að klæða sig sjálfur.  Svo getur hann ekki keyrt.  Til að kóróna þetta þá er hann búinn að vera með auman og bólginn háls í rúma viku.  Við fórum á læknavaktina á Smáratorgi í gær - hann kom út með svæsna sýkingu í hálsi og eyra og stóra skammt af pensilíni til að eta á næstu dögum. Sick

En við notuðum jólagjöfina frá þeim norsku og hafnfirsku í gær - og eigum nú nýja diska, skálar, bolla og glös.  Eftir 12 ára sambúð erum við því hætt að nota leirtauið sem við komum með í búið.  

 


Hver skyldi vera með

hendina í gifsi og fatla á heimilinu ?

Nettómóti lokið

Risastóru, fjölmennu og vel skipulögðu körfuboltamóti lokið.  Sjá http://nettomot.blog.is/blog/nettomot/  - um 190 lið og 1200 leikmenn tóku þátt og auðvitað voru fylgdust foreldrar stoltir með.

Við bræður erum búnir að vera í Keflavík mest alla helgina - þeir að keppa í körfubolta og ég að horfa á, hvetja, vera liðsstjóri, bera töskur, útvega fóður þegar þörf gerist, fara með 7 strákum í bíó, vera bílstjóri og fara með hópinn í sund.  Það var mikill spenningur að fá að gista í skóla í Reykjanesbæ en þar sem strákarnir áttu ekki leik fyrr en klukkan 13 í dag þá tók einn pabbinn sig til og bauð hópnum að gista heima hjá sér í Grindavík á laugardagskvöldið.  Pabbi hans Ó var sko "the man " það kvöldið.

Heimalærdómur var settur út í kuldann þessa helgina.  Fjölskyldan fylgdi hefðinni og horfði á Top Gear eins og venjulega á sunnudagskvöldum.  Eftir það fóru bræður beinustu leið í rúmið og voru varla búnir að setja höfuðið á koddann þegar þeir voru sofnaðir.  Sleeping 

Bolludagur á morgun - ég ætla að baka.

 

 

 


Játning í tilefni af mottumars !

Einhvern tímann verður allt fyrst.  Hér með viðurkenni ég opinberlega að mér finnst þessi kall sem er fæddur 1945 OG með yfirvaraskegg alveg ótrúlega flottur.

Tom-Selleck-as-Frank-Reagan-blue-bloods-cbs-15634793-487-639

 


Það er greinilega fjör í fornleifunum

Við skulum vona að blessaður maðurinn hafi ekki bara gaman af því að búa til börnin,  það þarf meira til. 
mbl.is Nýtt barn eftir að hafa eignaðist tvíbura sjötugur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

190 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband