Bókaklúbbur á netinu.

Veit einhver um bókaklúbb á netinu sem vantar meðlim ?    Mig langar að vera með.


Foreldrakaffi í trúarbragðafræði

Fór í foreldrakaffi bekknum hans JA á föstudag  - gaman að sjá hvað krakkarnir hafa verið dugleg og greinilega heilmikil vinna búin að vera í gangi.  JA og hans hópur var búinn að kynna sér gyðingdóm.

þar sem ég á tvö jafngömul börn í sitthvorum bekk þá er ekki ótrúlegt að ég fari í kaffi í hinn bekkinn fljótlega.  SÁ er að kynna sér islam. 

Þetta er gaman. 

 


Lífsgæðakapphlaup og ástarmál unglinga

Að mínu mati eru bræður (og sumir jafnaldrar þeirra ) að flýta sér allt of mikið að verða unglingar.  Lífsgæðakapphlaupið er þegar hafið, þó bræður séu nú ekki (ennþá) hraðskreiðustu þáttakendur þá eru þeir samt með.

" oh ég vildi að ég fengi 40 þúsund í afmælisgjöf" sagði annar sonurinn í morgun þegar hann var að baksa við að reima skóna sína. 

 Nú - spurði ég !" Já - Mig langar svo í Æfón "

Að sjálfsögðu langar 9 ára ungling í Æfón - nema hvað.

Frá Æfóni og að ástarmálunum.........................

Jafnaldra þeirra bræðra býr í götunni - snaggaraleg og skemmtileg stelpa sem hefur munninni fyrir neðan nefið.

Ég átti erindi fram hjá húsinu hennar í dag og sú stutta var úti í glugga.  " hæ " kallar hún til mín og veifar.  Ég kalla "hæ"  á móti.  " Ég er hætt með X " kallar hún aftur og nefnir nafn á bekkjarbróður sínum .  "Nú" kalla ég á móti, "er langt síðan "  og þykist hafa vitað af sambandinu allan tímann. - "nei, segir hún bara rétt áðan.   Samtalið varð ekki lengra og ég held áfram heim til mín.Þeir bræður koma heim stuttu seinna og ég fer að spyrja út í kærustuparið sem er greinilega orðið kærustuparið fyrrverandi.  SÁ kannaðist við parið en hélt að bekkjarbróðirinn ætlaði nú að hætta með henni.   Þá glotti JA  " veistu hvað hún ( og nefndi nafn þeirrar sem var nýorðin einhleyp ) kallaði til mín áðan þegar ég hljóp fram hjá húsinu hennar ?  " hæ JA, ég er á lausu "Svona eru sem sagt ástamálin hjá fjórðubekkingum ! 


Ætli ég hafi fengið höfuðhögg ?

Eins og hjá svo mörgum öðrum er alltaf á stefnuskránni að hreyfa sig meira.  Ekki veitir af - aldurinn færist yfir,  skrokkurinn stirðnar, og almennt heilsufar er einhvern veginn aldrei nógu gott.   " Eitthvað sem heitir lífstílssjúkdómar, hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról, léleg meltingarstarfsemi og fleira sem fyrir örfáum árum þjáði bara gamalt fólk er nú rétt handan við hornið hjá mér og mínum jafnöldrum. 

Ef hreyfing eða líkamsrækt á að verða hluti af lífstílnum þá verður hún að vera skemmtileg.  Svo einfalt er það.  Mér þykir gaman að ganga og sé alveg fyrir mér að tölta á fjöll og fyrnindi í nánustu framtíð.  Mér þykir líka gaman að hjóla og á þetta fína hjól inni í bílskúr.  Var reyndar þokkalega vel notað síðasta sumar og verður eflaust vel notað í sumar.  En - nú er vetur og þó svo veðrið sé gott í dag þá veit maður aldrei hvernig veðrið verður á morgun og hvort maður kemst út í gönguferð eða ekki.  Þá þarf maður að finna sér aðra hreyfingu.

Líkamsræktarstöðvar höfða ekki til mín og þó ég hafi hugsað um að herma eftir nágrönnunum, kaupa hlaupaskó og nota þá, þá hefur það aldrei náð lengra.  Sundið er ekki mín hreyfing heldur og mér nægir fullkomnlega að vera fótbolta og körfuboltamamma.  það er hvorki til umhugsunar né umræðu að taka þátt í einhverju (very) old girls boltasprikli.  því miður.

En ( og nú kemur ástæðan fyrir því að ég velti þessu fyrir mér með höfuðhöggið ) ég spurði júdóþjálfara bæjarins í síðustu viku hvort það væri í boði fyrir fullorðna að æfa júdó hér í bæ.   " já já sagði hr júdóþjálfari " komdu bara - kl 18 þrisvar í viku.   þetta eru nú reyndar mest strákar á aldrinum 16-18 ára en komdu bara.    Ég fór í dag og horfði á eina æfingu.  Undecided  Komst að því að þetta eru ekki mest strákar á aldrinum 16-18 ára.  Þetta eru BARA strákar á aldrinum 15 - 18 ára.  Flestir ennþá í grunnskóla og synir kunningjafólks.  Flottir og áhugasamir strákar, harðir naglar sem eftir upphitum blésu ekki úr nös og skelltu svo hverjum öðrum á gólfið svo glumdi í.  Var skíthrædd og leið afar heimskulega eftir að hafa horft á þessa duglegu stráka.

Ég verð 42 ára á þessu ári og er eldri en mæður flestra strákanna. Er of þung í arfaslöku formi, með gleraugu sem hentar nú ekki í þessari íþrótt, fyrir utan það að ég veit EKKERT um júdó. 

Ég er samt í alvöru að velta fyrir mér að mæta á næstu æfingu Blush 

 


Skólamál karldýranna

Foreldraviðtöl hjá bræðrum búin og foreldrar bara ánægðir með vitnisburð og umsagnir.  Bræður koma glimrandi vel út úr lestri  - vel yfir meðallag og svona kringum meðallag í öðru.  Hegðun og vinnusemi þess sem hefur löngum átt erfitt með að sitja kyrr er með besta móti og kennari talar um að úthald og vinnusemi sé ótrúlega mikið mun betri en á síðasta skólaári.  Allir eru hamingjusamir með það.

Sá stóri hefur nóg að gera í sínu námi og gengur vel.  Situr núna á föstudagskvöldi við verkefnavinnslu.  Á morgun ætlar hann svo að skoða möguleika á frekara námi og fara á Háskóladag í Ráðhúsi Reykjavíkur.  W00t

Ég er ekki í skóla og ætla ekki í skóla.  ( fyrir utan skóla lífsins sem allir eru í )  Hins vegar er ég að kenna verslunarreikning og bókfærslu á námskeiði sem heitir Skrifstofuskólinn.  

Eldaði kakósúpu í kvöldmat og eftir kvöldmat byrjaði ég að elda sjávarréttasúpu sem verður í afmælisveislunni hennar svilkonu minnar á morgun.  Lyktin lofar allavega góðu Kissing

 


Flottur pistill

Sem frekar nýleg körfuboltamamma ( hef meiri reynslu sem fótboltamamma ) er maður alltaf að læra eitthvað nýtt.  Körfubolti og fótbolti eru trúarbrögð hér í Grindavík og með því að þegja og fylgjast með hefur eitt og annað síast inn.

Þess vegna veit ég hver Hlynur Bæringsson er og að áður en hann fór til Sundsvall í Svíþjóð var hann lykilmaður með Snæfelli í Stykkishólmi.  

Er nýbúin að reka augun í þennan pistil og finnst hann flottur.


Valentínusardagur og Júróvision

Er gömul gribba og þoli ekki þessa auglýsinga og sölumennsku í kringum útlenska hefð.  Hef ekkert á móti rómantík, nema síður sé en fyrir mér er engin rómantík í því að kaupa gjöf handa makanum eða dekra við hann, bara af því að auglýsingar í fjölmiðlum " segja " mér að ég eigi að gera það einhvern ákveðinn dag. Angry 

Annar sonur var ánægður með úrslitin í Júróvision - hinn hefði frekar viljað sjá Eldgosið fara en gerði svo sem ekki stórvægilegar athugasemdir við vinningslagið.   Það var hins vegar ekki laust við að þeir öfunduðu frænku sína sem fékk að vera innan um allt fræga fólkið í græna herberginu ( sem er samt sem áður hvítt ) svokallaða.  En enginn úr fjölskyldunni er á leiðinni til Dusseldorf - allavega ekki svo vitað sé.

Bræður fóru í fimmtu afmælisveisluna á árinu um helgina- nóg að gera í samkvæmislífinu.  Enda eru 10 ára afmæli stórafmæli og sjálfsagt að halda upp á þau með pompi og pragt. Wizard   -  svo er fullorðins stórafmælisveisla um næstu helgi en þá ætlar Hárgreiðslufrænka að halda upp á það að vera orðin fullorðin. 

Sá stóri leggur sitt af mörkum til að safna í ferðasjóð (pípara)útskriftarnema - kæmi mér ekki á óvart ef hann færi að ganga í hús og selja klósettpappír.

Annars fékk ég hann mér í gönguferð í dag - hressandi fyrir okkur bæðiSmile

Hef verið í fésbókarbindindi í næstum þrjá mánuði og líður svona ljómandi vel.   -  Er ekki hætt á fésbókinni en ef ég man lykilorðið mitt í haust þá er aldrei að vita nema ég kíki þar við.  Lofa samt engu.  Lífið án fésbókarinnar er alveg ljómandi gott.  


Ja há

Einhverrra vegna hluta vegna hef ég trú á að hann sé ekkert að grínast með þetta og það sem verra er að allt of margir hafi mikla þörf fyrir spark í afturendann vegna þessa.   Vonandi hef ég rangt fyrir mér.

Ekki er þó við krakkagreyin að sakast heldur þá sem hafa alið þá upp.  Þetta er fyrst og fremst áfellisdómur yfir þeim.


mbl.is Jamie Oliver gagnrýnir bresk ungmenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sumir útskrifast í vor.

Sá stóri fær óvenjulegan póst þessa dagana og sækir óvenjulega fundi. - í dag kom t.d bréf frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og svo tilkynning um háskóladaga sem eru 19 feb.  Áður en hann kom heim var hann búinn að fara á kynningu hjá nemendum og kennara í dönskum tækni(há)skóla.  Maðurinn er greinilega tilvonandi útskriftarnemandi og fær póst samkvæmt því.  Framundan eru svo fundir með útskriftarhópnum en tilvonandi píparar stefna á dimmiteringu og eins að gera sér glaðan dag að sveinsprófi loknu. W00t

Það þarf meira en gjósandi Eyjafjallajökul til að drepa niður löngun norska bróður til að koma á Hammond.  Þeir sem þekkja til vita af hremmingum norska bróður og frú í fyrra.  En spurning hvort hvíli álög hr Bergen og eldgosum eða hvort sé um tilviljun að ræða.  Norski bróðir var ekki fyrr búin að láta í ljós löngun sína og ýja afar fínlega og varlega í að það væri pínulítill möguleiki að hann kæmi á Hammond þetta árið þegar jörð fór að titra

sjá " Í Dagbladet og NRK er sagt frá því að það sé trúlega að fara að gjósa á Íslandi. Ég veit ástæðuna, það er farið að styttast í Hammondhátíð á Djúpavogi og ég var búinn að orða það að ég ætlaði að koma."

Ég bakaði meinholla orkuklumpa áðan - svo trefjaríkir að ég er að spá í að setja aðvörunarmiða á dallinn.  " Ef þú drekkur ekki nóg af vatni með þessu þá máttu búast við harðlífi "

Kjúklingasúpa ( með gulrótum, maís, kjúklingi og núðlum ) og heimabakað heilhveitibrauð með lyftidufti í matinn.

Veðurspáin á yfirsnúningi og búið að aflýsa skólasundi á morgun ( enda útilaug ) vegna veðurs - spurning hvort það verður skóli eða ekki !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

190 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband