ég á ekki tengdadóttur

Og finnst það bara allt í lagi enda afsprengin ekki nema rúmlega 9 ára.  Á alveg nóg með að díla við "rakspírann " og bræður sem vilja spreyja á sig í tíma og ótíma.  Annar sonurinn horfði á mig frekar undarlegu augnaráði þegar ég benti honum á það það þýddi ekki að fara í sturtu eftir körfuboltaæfingu og  spreyja á sig vellyktandi ef maður færi svo aftur í sveitta körfuboltabolinn að sturtu lokinni. GetLost    Þessar mömmur eru stundum svo glataðar.

Þó svo ég sem móðir 4 bekkinga eigi ekki tengdadóttur þá gildir það ekki um alla.   Það er sko komið kærustupar í bekkinn hans SÁ.   " og þau eiga bara einn dag eftir , þá eru þau búin að vera kærustupar í heila viku " sagði SÁ og fannst þetta frekar heimskulegt. 

Umræðan um kærustuparið tók svo undarlegan vinkil því hinn sonurinn ( sem sagði að það væri ekkert kærustupar í sínum bekk ) tilkynnti að stelpa hefði einu sinni slegið sig utan undir Whistling    Bekkjarsystur hans fannst ástæða til að slá hann utan undir í danstíma í skólanum, því hann dansaði bara alls ekki nógu vel.    Fótafimin hjá syninum hlýtur að hafa verið afar slæm því ég veit ekki betur en að umrædd bekkjarsystir sé að öllu jöfnu ljúf og teljist langt frá því að vera ofbeldishneigð. 

Frí hjá bræðrum í skólanum í dag og eftir körfuboltaæfingu fóru þeir út að renna.  Síðasti séns því samkvæmt veðurspá rignir snjónum burt á morgun.

 


Við Baggalútur ætlum á Hammond

Baggalútur ætlar að skemmta bæði mér ogöðrum góðum gestum.   12-14 maí er málið. 


Komin dagsetning á Hammond hátíðina

Sá inni á Djúpavogs vefnum að það er komin dagsetning á Hammond hátíðina Grin

12 - 13 - 14 maí er hér með frátekið fyrir Hammond.   

Nú er bara að skipuleggja sig, panta gistingu á hótel mömmu, og hlakka til að vita hvaða flytjendur verða. 

Allir á Hammond

Fyrir þá sem vilja vita meira er bent á heimasíðu Djúpavogshrepps


Körfuboltamót í dag.

Ég og bræður fórum á körfuboltamót í Kópavog í  dag - ég að horfa og bræður að keppa.  Þetta var fínt - lögðum af stað rétt fyrir klukkan 9 , bræður kepptu 3 leiki, við skruppum í Rúmfatalagerinn þar sem ég verslaði 8 + 8 = 16 pör af sokkum fyrir þá bræður.  Vorum komin heim um klukkan 2.

Bræður halda áfram að lykta vel - nota hvert tækifæri sem gefst til að úða á sig " rakspíra " .  Vildu ólmir fá sér lykt í morgun áður en við lögðum af stað á mótið.  Ég hélt nú ekki og bræður þurftu að yfirgefa húsið  með eintóma líkamslykt.  En eftir sturtu að móti loknu mátti að sjálfsögðu lykta vel.

Svínakjöt að hætti bóndans í kvöld, pepsi max með matnum og ís í eftirmat.  Mjög hefðbundið laugardagskvöld  hjá fjölskyldunni.  Verst hvað sjónvarpið er ótrúlega leiðinlegtDevil 


Allt angandi af " rakspíra"

Loksins kom að því að haldið yrði í leiðangur til að skoða rakspírann sem 9 ára unglingunum langar svo sárlega í.  Bræður komu báðir með og teymdu mömmu sína rakleitt að rekkanum í Nettó þar sem umræddur rakspíri stóð. 

Utan á fallegum grænum og svörtum brúsa stóð á engilsaxnesku  " body spray " svo hinni seinþroska unglingamóður leið aðeins betur.  Verðið á þessum "rakspíra" var líka frekar hagkvæmt miðað við annan rakspíra svo ákveðið var að á morgun skyldu bræður fá að nota eigin pening og fara í búðina.

Bræður voru afar hamingjusamir með innkaupin og voru varla komnir inn úr dyrunum heima þegar þeir urðu nauðsynlega að rífa sig úr að ofan og úða  ( dálítið of mikið af ) góðri lykt á sig.  Fyrir íþróttatímann í morgun var "rakspírinn" það fyrsta sem fór ofan í töskuna - mun mikilvægara en íþróttaföt og handklæði.  Bræður voru að sögn afar vinsælir í búningsklefanum eftir íþróttir og bekkjarbræður komu víst nánast allir frekar vellyktandi.  "  þessi " og " hinn" spreyjuðu meira að segja á tippið á sér sagði JA og glotti.     Seinnipartinn fóru bræður svo í afmæli ( fjórða afmælið í janúarmánuði ) og urðu að sjálfsögðu að setja meiri góða lykt á sig fyrir það.

Sá stóri þurfti ekki að koma með miða til íþróttakennarans - hvorki frá mér né mömmu sinni.

Körfuboltamót í fyrramálið - bræður báðir að keppa.  Sá stóri kominn i stresskast yfir verkefnaskilum svo hann verður heima að læra meðan ég fer og horfi á körfubolta. 

 

 


fjarvist í íþróttum - miði frá konunni.

Sumir sem lesa bloggið mitt vita að eiginmaðurinn sem nálgast fimmtugsdaldurinn  stundar nám þar sem stór hluti nemenda er á aldrinum 16-20 ára.  Á stundatöflunni  er einn íþróttatími í viku.   Eiginmaðurinn ákvað að sleppa íþróttatímanum í dag vegna bakverkja og fá að mæta einhvern annan dag í staðinn.  Ætlaði að ræða við íþróttakennarann á eftir.

Nú bíð ég spennt eftir að fá að vita hvort íþróttakennarinn vill fá vottorð frá eiginkonunni eða mömmunni um að hann hafi virkilega verið slæmur í baki Tounge


9 ára unglingarnir mínir

segja mér að sífellt fleiri bekkjarfélagar komi með rakspíra með sér í leikfimi og íþróttir.  Fornaldarrisaeðlumamman (ég) á afskaplega erfitt með að skilja þetta. Shocking   Annar unglingurinn bað mig um að koma með sér í búðina í dag til að skoða rakspíra.  Ég var nú alveg tilbúin í það en svo ákvað hann að fara frekar út að leika við frænda sinn í staðinn.   Ég gerði ekki athugasemd við það. 


Rapp og viagra

Mér finnst 9 ára of ungt til þess að vera unglingar.  Bræður eru ekki sammála.  Þeir slá um sig með ensku slangri "wazz up men " hlusta á Emmsje Gauta og Blazroca og textar eins og " viltu dick, bitch " og " við elskum þessar mellur " þykja afar hipp og kúl.   SÁ sem hefur hingað til eingöngu viljað klæðast  íþróttafatnaði þráir ekkert heitar en að eignast "Karate " buxur.  Téðar buxur fást ekki í íþróttaverslunum og eiga ekkert sameiginlegt með íþróttinni Karate. 

Téðar buxur eru með vösum á hliðinni, fást í verslunum sem selja (ofurdýran) brettafatnað og eru með litlum miða, svona ca 2 cm á lengd og breidd,  sem stendur á carhartt einhvers staðar við hliðarvasann.  Fyrir þessi herlegheit , aðallega miðann, þarf að punga út eins og 17.990 kr.   Ef stráksa langar nógu mikið í svona buxur þá safnar hann fyrir þeim sjálfur.  Ég tími ekki einu sinni að kaupa mér svona dýra flík sjálf. Pinch 

Bræður voru skyndilega sendir í rúmið í kvöld.  Í sjónvarpinu var læknaþáttur og maður sem hafði étið yfir sig af viagra.   Þá fóru að koma spurningarnar sem maður vill ekki fá. 

 " hvað er viagra " ?  Svar:  það eru töflur.

" og hvað gerist ef maður étur yfir sig af þeim " ?     Svar : DRÍFA SIG, það er kominn háttatími, nú á að fara að sofa og bræður sendir í náttföt og tannburstun med det samme .   Einhverra hluta vegna þurfti pabbinn ógurlega mikið að horfa á myrkrið út um stofugluggann á þessum andartökum Whistling en ég slapp. 

Bræður eru enn blessunarlega fáfróðir um viagra og hvað gerist ef maður étur yfir sig af því Blush   Það er heldur ekki enn búið að rukka mig um skýringuna á því hvað smokkar eru.   

 


Sparnaðar og nískuráð eru komin í gang

Hafa ekki allir gott af þessu ?

Nýtt blogg hjá mér þar sem hin hagsýna húsmóðir tekur völdin

 http://innipuki.blog.is/blog/hagsyna_husmodirin/

 


" mamma, hvað eru smokkar eiginlega " ?

sagði annar sonur á leiðinni í skólann í morgun ?

ég varð örlítið kjaftstopp, skal viðurkenna það en notaði svo hugleysisaðferðina :  æ  ég nenni eiginlega ekki að útskýra það núna, getum við talað um að það þegar þú kemur heim úr skólanum í dag. 

Lofaru því ?  sagði sonurinn

Já - ég lofa sagði ég og prísaði mig sæla fyrir gálgafrestinn.  Var ekki upplögð í smokkafræðslu fyrir níu ára gamlan son minn klukkan 7,48 í morgun

Sonurinn var greinilega búinn að gleyma loforðinu þegar hann kom heim og af ásettu ráði ákvað ég að "gleyma" þessu líka.

En ég þekki son minn, hann á eftir að innheimta loforðið...............


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

kona á besta aldri

190 dagar til jóla

Höfundur

Húsmóðir
Húsmóðir

Mál dagsins

Áttu kolagrill ?

Matarblogg

Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum

  • Matarblogg
    www.mataraedi.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband