14.5.2008 | 22:05
Það var sumar í bænum mínum í dag.
Ég hef fundið þetta á mér í morgun - hafði hvorki löngun að elda né borða hafragraut svo ég bauð bræðrum upp á "boost" drykk úr skyri og ávöxtum. Þeir tóku því vel en fannst samt skrítið að fá svona ískaldan morgunmat.
Leyfði bræðrum að fara á flakk þegar skólasundi var lokið. Vinurinn sem átti að heimsækja var ekki heima svo bræður lögðu bara land undir fót og heimsóttu annan vin. ( höfðu nú ekki leyfi til að fara alveg svo langt en............................ ) stundum er allt of langt að fara heim og spyrja um leyfi
Eftir kvöldmat voru bræður óvenju duglegir og fljótir að lesa heima enda máttu þeir fara út að lestri loknum. - maður lætur ekki segja sér svoleiðis tvisvar. Þegar klukkan var orðin 15 mínútum yfir leyfilegan útivistartíma og bræður ekki komnir heim fór ég um hverfið að leita. Fann þá alsæla hoppandi á trampólíni með Eyþóri nýjasta vini sínum ( sem er svo stálheppinn að eiga trampólín í garðinum )
Það má búast við að bræður verði þreyttir í fyrramálið - þrátt fyrir að vera komnir í rúmið og búnir að hlusta á kvöldsögu þá eiga þeir erfitt með að slaka á og sofna.
Í gær fóru bræður í myndatöku og sóttu um vegabréf - það er nefnilega farið að styttast í Spánarferð
Ennþá eru framkvæmdir á heimilinu - nú hamast eiginmaðurinn við þakið. Smíðar og sagar og borar og neglir. það er fjör en verður ægilega fínt þegar nýtt þak verður komið. - þá verður okkar hús ekki lengur með ljótasta þakið í götunni. 1
kveð í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2008 | 19:29
Á mamma að verða forseti ?
spurði ég bræður við kvöldmatarborðið eftir að hafa heyrt að Ólafur Ragnar yrði væntanlega sjálfkjörinn þetta tímabil.
JA hugsaði sig um smástund og sagði svo nei. " því þá verður þú aldrei heima á daginn "
Það er nógu góð ástæða - Ólafur Ragnar fær allavega ekki mótframboð frá mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.5.2008 | 23:15
Umskiptingar
" Álfur ( venjulega gamall ) látinn í stað mennsks barns sem álfar tóku.
Fletti því orði upp í dag en ég hef mikið velt því fyrir mér undnafarið hvar vel uppöldu og kurteisu strákarnir mínir eru ?
Bara í dag er búið að taka nokkur frekju og fýluköst - það er búið að reka tunguna á sér framan í mig ( og svo hjólaði dýrið í burtu svo ég næði örugglega ekki í rassg......á honum ) Sögnin að hlýða sem bræður þekktu ágætlega fyrr í vetur er dottin út úr orðaforðanum.
Og svo gerðist einn sonur fingralangur og stal 100 kr.
Ég vil fá strákana MÍNA aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2008 | 18:40
Guðmundur í Byrginu
Ég hef það eftir nokkuð áreiðanlegum heimildum að hann komi ekki til með að eiga náðuga daga bak við rimlana þegar hann afplánar (smánarlegan og allt of stuttan ) dóm sinn.
margir hverjir sem sitja inni eru fíklar og margir þeirra voru í Byrginu í lengri eða skemmri tíma. Margir þeirra sem sitja inni eiga systur, frænkur, eiginkonur eða vinkonur sem voru misnotaðar.
Ég ætla ekki að eyða orðum á þennan "mann" en hann á bæði börn og barnabörn. Ég hef samúð með þeim
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2008 | 18:02
Ég var klukkuð
Gamall vinnufélagi og núverandi Bloggvinur klukkaði mig. þannig að ég ætla að setja á blað 7 atriði sem ég er þakklát fyrir. Það er reyndar óendanlega margt sem ég er þakklát fyrir en það eru ennþá fleiri atriði sem ég ætti að vera þakklát fyrir.
Ég er þakklát fyrir
eiginmann minn
strákana mína
góða heilsu
góða vini og fjölskyldu
skemmtilega vinnu og gott vinnuumhverfi
Þak yfir höfuðiðog gott líf
Það sem ég ætti að vera þakklát fyrir en kann ekki að meta þvi ég hef það svo gott og tek öllu sem sjálfsögðum hlut er t.d. þetta
Fyrir litlu systir mína,
sem hringir til að kvarta yfir að þurfa að hjálpa til heima,
því það þýðir að hún er heima,
og ekki á götunum
Fyrir skattana
sem ég þarf að borga
því það þýðir að ég hef atvinnu
Fyrir allt draslið
sem þarf að taka til eftir party
því það þýðir að ég hef verið umkringd vinum
Fyrir fötin
sem eru aðeins of lítil
því það þýðir að ég hef nóg að borða
Fyrir skuggann
sem fylgist með mér vinna
því það þýðir að ég er úti í sólinni
fyrir lóðina sem þarf að slá,
gluggana sem þarf að þrífa,
og þakrennuna sem þarf að gera við,
því þetta þýðir að ég á heimili
Fyrir allar kvartanirnar
sem ég heyri um yfirvöldin
því það þýðir að við höfum frelsi til að tala...
Fyrir bílastæðið
sem ég fann við enda bílastæðanna
því það þýðir að ég er fær um að ganga
og hef farartæki
Fyrir þennan risa hitaveitureikning
sem ég var að fá
því það þýðir að mér er ekki kalt
Fyrir hrúguna
sem ég þarf að þvo og strauja
því það þýðir að ég hef föt til að vera í
Fyrir þreytuna og verkjunum
sem ég finn fyrir í lok dagsins,
því það þýðir að ég get unnið
Fyrir vekjaraklukkuna
sem vekur mig að morgni dags
því það þýðir að ég er á lífi!
Ég klukka svo nokkra bloggvini - farið því að hugsa ykkur um !
kv frá þakklátri húsmóður
Bloggar | Breytt 11.5.2008 kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2008 | 23:58
fjöruferð og strokupiltar
í skólanum hjá bræðrum í vikunni - sitthvorn daginn þar sem bræður eru í sitthvorum bekknum. Degi fyrir fjöruferð kom miði heim úr skólanum um tilhögun ferðarinnar. M.a áttu börnin að koma með auka drykk - en það mátti ekki vera gos.
Ég horfði á miðann í smá stund - þarf virkilega að taka svona fram ? Eru virkilega einhverjir foreldrar sem finnst allt í lagi og myndu senda barnið sitt með gos í fjöruferð. Þetta er 1 bekkur í grunnskóla. -
Bræður voru í essinu sínu í gær - NOT - þegar þeir komu heim úr skólagæslu. Harðneituðu að fara á sundæfingu og stungu svo af til að finna leikfélaga - komu heim nokkru seinna til að spyrja hvort þeir mættu fara heim til leikfélagans. Urðu hinir fúlustu þegar það leyfi fékkst ekki og ruku út. Stuttu seinna voru þeir stungnir af aftur. Hin illa innrætta móðir kláraði að eldamennskuna og hélt svo af stað til að hafa uppi á strokudýrunum. Það tók ekki langan tíma enda vita og geta mömmur allt. Það voru frekar lúpulegir bræður sem hjóluðu heim með mömmu sinni. Bræður máttu þola frekar leiðilegar umræður við matarborðið um orsakir og afleiðingar óhlýðni. Þeir gátu m.a ekki notað hjólin sín í dag. Til að toppa daginn fyrir SÁ þá hringdi kennarinn hans heim til að láta okkur vita að hann hefði ekki fylgt reglum og fylgt hópnum í fjöruferðinni.
Ég var sko ekki í uppáhaldi í gær - það fór ekki fram hjá mér. Eftir allt þetta vogaði ég mér svo að láta bræður lesa heima. Ef það hefði verið hægt að skipta mér út fyrir aðra mömmu í gær þá hefði það verið gert.
Erfitt líf stundum. það var þó skárra í dag enda veðrið í sólskinsskapi. Engin miskunn með sundæfingar - bræður skyldu í sund. SÁ nöldraði og skammaðist yfir því að þurfa að mæta - sundæfingar væri bæði langar og erfiðar Skil ekki ennþá af hverju hann var síðastur upp úr lauginni þegar æfingin var búin.
Ég þokaðist ofar á vinsældalistanum í dag - enda annað ekki hægt - neðar komst maður ekki.
Spáð úrhellisrigningu á morgun og ekki líklegt að bræður fari út að hjóla - þó svo að refsingunni verði aflétt á morgun og hjólin megi aftur koma út undir ferskt loft.
Ætla að fara að taka til nesti -
Bloggar | Breytt 9.5.2008 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.5.2008 | 17:55
Bensínverðið
Heyrði þetta frá starfsmanni í skólanum
En sonur minn sat og stimplaði inn tölur á vasareiknivél af miklum móð. Eftir smá stund og mikinn innslátt dæsir hann hátt og segir " úff hvað bensínverðið er orðið hátt "
kannski ekki algengasta áhygguefni 6 ára en greinilega einhverra........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2008 | 21:37
Nú hef ég sofið með Spædermansæng
Kom nú ekki til af góðu - einhvern tímann undir morgun skríður annar sonurinn upp í mömmurúm. Þó maður sé næstum 7 ára ofurtöffari í skóla og sletti orðum eins og "fokk og sjitt " í tíma og ótíma þá er maður samt ekki of stór til að skríða í mömmurúm á nóttunni.
En - stráksi þarf og vill sitt pláss, sérstaklega þegar hann er sofandi. Hann stækkar en rúmið ekki. Að lokum sá ég fram á að ef ég ætlaði ekki á fætur um hálf sex í morgun þá yrði ég að finna mér annan svefnstað. Stefnan var tekið á stofusófann en - þegar ég sá rúmið með Spæderman sænginni þá kviknaði smá ljós í mínum annars svefndrukkna heila - og ég þangað.
Ég hef nú oft sofið betur - og lengur - en ég svaf þó í tæpan klukkutíma - með Spæderman sæng og spæderman kodda. - geri aðrir á fertugsaldri betur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2008 | 22:37
Æm bakk
komin heim úr 4 daga ferð austur á firði og um leið 4 daga tölvubindindi. - bara gott.
Er ennþá alsæl eftir Hammondhátíðina - ótrúlega skemmtileg upplifun - Er þreytt í skrokknum eftir aksturinn að austan enda strekkingur alla leiðina og það verður að viðurkennast að sætið í bílnum og ég náðum ekki saman á þessari keyrslu.
Nenni ekki að blogga núna - vinna og skóli framundan á morgun. það er greinilegt að maður er kominn heim - nestispakkar sem bíða fyrir morgundaginn.
Fékk tölvupóst ( svar) frá kennara sonar míns í vikunni sem ég ætla að leyfa að fljóta með en ég þurfti að fá frí fyrir drengina einn dag í skólanum og svo vildi til að löggan kom í heimsókn akkúrat þann dag.
( mamma )
.................Já hann er pínu svekktur yfir því að missa af löggunni en það verður bara að
hafa það.
Ég ætti kannski bara að vera fegin að hann verður ekki - hann var nefnilega
að segja mér um daginn að löggan kæmi seinna í heimsókn. " Þegar löggan
kemur ætla ég að vera pínu óþægur "
Mér leist nú ekkert á það og spurði af hverju ? " jú honum langaði svolítið
að vita hvernig væri að vera settur í handjárn " ( úff )
( svar frá kennara )
Hann er alltaf með skemmtileg svör. Hann stökk einmitt upp á borð á mánudaginn og sagði við mig dansandi "Kennari" hvað er ég kominn með marga miða? (Heðgðunarmiða sem eru í gangi í skólanum) Ég spurði af hverju hann væri að spyrja að því. Nú mig langar svo að hætta að skólanum. !
Hann ætlar nú samt að mæta á morgun !
kv mamman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2008 | 23:17
Hammond hátíð um helgina
þið sem hafið áhuga þá eru nánari upplýsingar að finna hér
Legg af stað með bræður og farangur í bílnum á morgun - stoppa í Reykjavík og bæti einni móðursystur með í bílinn. Ætla að eiga góða daga og helgi fyrir austan. Slappa af, leika við strákana mína og síðast en ekki síst - fara á tónleika.
húsmóðurkveðja
P.S var arfaléleg húsmóðir í kvöld og bauð upp pizzulíki og AB mjólk með jarðarberjum í kvöldmat. Bætti það upp með því að gera extra hollt nesti fyrir morgundaginn.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
kona á besta aldri
185 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar