5.6.2008 | 00:34
Bræður bjarga sér !
Bræður eru alsælir að vera komnir í sumarfrí. Búnir að vera við skólaslit - sækja vitnisburðinn sinn og kveðja kennarann. Eru sennilega dauðfegnir að þurfa ekki að eiga nein samskipti við kennara fyrr en í haust.
Það styttist í sumarfrí og Spánarferð. Meðan gamla settið er í vinnunni eru bræður á leikjanámskeiði og svo bjargar amma í rauða húsinu málum eftir hádegi eða þar til mamma kemur heim.
Mamma fer af stað klukkan átta en leikjanámskeið byrjar klukkan níu. þenna klukkutíma þurfa bræður að að vera einir heima. Það finnst þeim "kúlt" . Mamman er hundstressuð yfir þessu en bræður eru frekar slakir. Ég fékk skýringu á því í dag - voru búnir að kveikja á sjónvarpinu, reyna að starfa PS2 tölvunni og sátu svo óskaplega samrýmdir í heimilistölvunni þegar afi kíkti við svona til að tékka á stöðunni rétt fyrir níu í morgun
Það kom svipur á bræður þegar ég fór að spyrja þá út úr þessu * svona á ég að skrökva eða segja satt og verða kannski skammaður * svipur en báðir viðurkenndu þeir að hafa farið í tölvuna - alveg óvart bætti SÁ við. Auðvitað gerist svona bara óvart !! Þeir lofuðu báðir hátíðlega að gera þetta ekki aftur. Ég trúi því svona mátulega, ætla að gera einhverjar varúðarráðstafanir !
Bræðrum og leiksystur datt í hug í kvöld að halda tombólu og voru búin að fara í tvö hús og fá dót. Ég hef nú nokkuð sterkan grun um að löngunin til að láta gott af sér leiða hafi ekki verið kveikjan að þessari hugmynd heldur hafi þau séð þarna möguleika til að verða sér úti um nammipeninga Ég hélt tilfinningaþrungna ræðu um tombólur og tilgang þeirra, fátækt í Afríku, svöng börn sem sofa í pappakössum og þar fram eftir götu. Ég held að það hafi virkað - allavega á að fresta tombólunni fram yfir Spánarferð og afraksturinn á að renna til rauða krossins.
Ég þurfti að leita að bræðrum í kvöld - annar þeirra skilaði sér heim í millitíðinni og vísaði á hinn. Hann var reyndar á heimleið þegar ég fann hann. setti svo plástra á fótinn á leiksystur því mamma hennar á ALDREI plástur. Fyrst hún átti ekki plástur í fyrrasumar (einu sinni ) þá á hún örugglega ekki plástur núna !
Á morgun fer hópurinn á leikjanámskeiðinu í sund - gaman gaman gaman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2008 | 00:57
Tungumálaspurningar
Mamma : - hvað þýðir "bonsjú ( bonjour ) " spurt þegar strákur var að leika sér á hjólinu sínu fyrir framan húsið.
Mamma : Ég veit hvað " dis is mæ læf " á útlensku þýðir ? " Fullkomið líf " ( þessi speki kom fram stuttu eftir að Laugardagslögunum lauk )
Mamma : Hvernig segir maður " Sylvía Nótt á frakklensku " spurt fyrr í kvöld þegar var verið að kú**
það eru greinilega ýmsar pælingar í gangi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2008 | 22:15
Skólinn búinn, sjómannadagur og Fjölskyldudagur - brjálað að gera.
Jæja - nóg að gera á stóru heimili - eða þannig.
Síðasta vika hefur ekki einkennst af miklum lærdómi hjá bræðrum - kannski sem betur fer. Þeir eru svo löngu búnir að fá nóg af námsbókum og tilbúnir í sumarfrí. Fimmtudagur var útileikjadagur og þurfti ekki einu sinni að mæta með skólatöskuna í skólann. Á föstudaginn var enginn skóli - bara viðtal við kennara. Á mánudag eru svo skólaslit og bræður þurfa ekki að mæta í skóla fyrr en að hausti - í annan bekk.
Sjóarinn síkáti er hér alls ráðandi - bræður voru harðákveðnir í að fara á bryggjuball á föstudagskvöldi en JA varð að játa sig sigraðann og var sofnaður fyrir klukkan átta um kvöldið. Þó svo maður sé sex ára ofurtoffari og fyrsti bekkur sé nánast að baki, veðrið sé gott og það sé ægilega spennandi að vera úti eftir kvöldmat, þá dugir það ekki að vera vakandi til rúmlega 10 á kvöldin. Sérstaklega þegar maður vaknar ALLTAF snemma. Sá var þó aðeins hressari og við kíktum niður eftir þegar klukkan var að verða níu. Ballið var ekki byrjað, bara verið að stilla hljóðfærin, lítið af fólki komið á svæðið og svo vildi mamman alls ekki kaupa neitt nammi.
Sonurinn tók því ágætlega í að fara heim fljótlega, sérstaklega þegar mamman gaf grænt ljós á það að hún tæki jákvæðar í sælgætisát daginn eftir. 'i stuttu máli sagt þá var laugardagurinn ( eftir hádegi ) tóm hamingja: Hoppukastalar, nammi, ferðir á fjórhjóli, veltibíllinn frá Sjóvá, meira nammi og svo nokkrar salibunur aftan á mótorhjóli. - þegar maður er sex ára þá gerist lífið ekki betra. Mamman var hins vegar uppgefin eftir að standa upp á endann og bíða og bíða og bíða í rúma fjóra tíma. En þetta er víst bara partur af djobbinu, ekki satt.
Bræður voru samt sem ekki sáttir við að fara heim - gerðu það nú samt mótþróalaust. Vildu svo fara út að hjola þegar heim kom. Lofuðu hátíðlega að fara ekki heim til neins - ( ég gat ekki hugsað það til enda að upptjúnaðir bræður í sykurstuði enduðu inni á gafli inn á einhverju heimili ) Það þurfti svo að fara út að leita að bræðrum rúmum klukkutíma seinna - þeir fundust í nálægum garði, hoppandi á trampólíni.
Ef ég væri sniðug þá myndi ég selja aðgang að nýrri líkamsþjálfun - "following my kids camp" - ég gæti ábyrgst það að það færu nokkur kíló á viku EF sá hinn sami myndi taka þátt í öllu því sem mín börn gera og hreyfa sig jafn mikið. það væri kannski vænlegra til árangurs að ég tæki sjálf eins og tveggja vikna prógram og setti svo inn "fyrir og eftir " myndir ! Spái þí það þegar ég kem til baka frá Spáni.
Í dag var svo fjölskyldudagur i vinnunni minni - starfsfólk og börn hittist í húsdýragarðinum. Frítt í garðinn, frítt í leiktækin fyrir börn og svo gott á grillið.
Við vorum rétt kominn inn í garðinn þegar við hittum "the boss" sem umsvifalaust smellti armbandi á strákana þannig að þeir voru komnir með aðgöngumiða í tækin. Og - það þýddi að ekki spengilegur foreldrarnir máttu hafa sig alla við til að drengirnir myndu ekki stinga þá af. Sem betur fer kom nú eitt og eitt leiktæki sem var svo skemmtilegt að foreldrarnir höfðu möguleika að tylla sér niður og blása mæðinni. Einum og hálfum tíma seinna tókst okkur að stoppa bræður nógu lengi til að tilkynna þeim að nú ætluðum við að hitta fólkið og fá okkur eitthvað að borða.
Það passaði - flestir voru búnir að borða og sumir jafnvel farnir heim. En við fengum nóg að borða. Bræðrum fannst ekki nokkur ástæða að eyða of löngum tíma til að borða og voru roknir í næsta leiktæki meðan foreldrarnir voru ennþá með fullan munninn af hamborgurum og pylsum. Voru sennilega búnir að sjá það út að þau gætu ekki mótmælt á meðan
Við enduðum á því að heilsa upp á Regínu Ósk - ekki söngkonuna - heldur nýborinn hreindýrskálf sem er búsettur í húsdýragarðinum. Veðrið var í kaldara lagi fyrir þá sem ekki hömuðust og hoppuðu í leiktækjunum en þetta var rosalega fínn dagur sem bræður ( já og líka foreldrar ) nutu alveg í botn.
það hafði enginn lyst á grilluðum hamborgurum svo pabbi tók sig til og eldaði grjónagraut !
Skólaslit á morgun og svo þarf að leita á náðir ömmu í rauða húsinu til að gæta drengjanna.
bless í bili - húsmóðirin sem er búin að þvo heilt fjall af þvotti OG brjóta það saman og ganga frá inn í skáp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 16:58
Er Mansester hreinn ? En Frakkland ? En Liverpúl ?
Ekki óalgengar spurningar á morgnanna á þessum bæ - a.m.k. þegar eru íþróttir í skólanum eða fótboltaæfing.
Bræður eiga samtíning af fótboltabúningum en þykir ágætt að breyta samsetningunum öðru hvoru. Hræódýrir, illa saumaðir, Manchester United stuttermabolir úr kolaportinu - vandlega merktir Beckham - eru í uppáhaldi.
Í morgun var úr vöndu að velja - bara allt hreint ?
SÁ - ég vil fara í Mansester bolinn og Liverpúl stuttbuxurnar, það gekk upp - JA gat ekki verið alveg eins ( það er ekki "inn" hjá bræðrum að vera eins þessa dagana ) svo hann valdi : Mansester bolinn en Frakklands stuttbuxurnar. Þá var málinu reddað.
Það er búið að gefa út það loforð að versla fótboltaföt, fótboltaskó, fótboltadót og búninga á Spáni. kreditkortið er komið í kæli og risastóru ferðatöskurnar teknar með - fara tómar út og koma fullar heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.5.2008 | 00:23
Datt í blogggírinn allt í einu
og ákvað að gleðja mína fjölmörgu og dyggu lesendur sem hafa þurft að strjúka vonbrigðatárin af votum hvörmum marga daga í röð " ekkert blogg frá innipúkanum í dag "
Þetta heitir kaldhæðni - ef þið skylduð ekki vera viss.
Sumarið, Spánarferð, skólaslit og sumarfrí nálgast óðum Verð að viðurkenna að ég er farin að hlakka til. Pirra mig samt á sundurslitnum skóladögum og uppákomum í skólanum sem kosta nöldur og væl í vinnuveitanda : " ég kem seinna á morgun út af þessu í skólanum " " ég verð að fara fyrr hinn daginn út af þessu í skólanum og svo verð ég að fá frí þennan dag út af einhverju í skólanum " Sem betur fer er verkefnastaðan í vinnunni þessa dagana með skárra móti fyrir svona vesen OG ég er svo heppin að hafa vinnuveitendur sem sýna þessu skilning - ennþá ! Ég segi ennþá því ég er ekki eini starfsmaðurinn sem er með börn í fyrstu bekkjum grunnskólans.
í síðustu viku var vorgleði í skólanum - frá 11-13 og skyldumæting. Ég varð að mæta í vinnuna snemma um morguninn og þar sem pabbi var viðra veiðistöngina þá var ekki annað í stöðunni en að bræður yrðu bara að bjarga sér sjálfir um morguninn en svo áttu þeir að fara til ömmu. mamman lagði þeim lífsreglurnar vandlega um kvöldið. Bræður voru nokkuð spenntir yfir þessu öllu saman´- bæði að fá að vera einir heima og svo vorgleðinni.
Bræður fengu að vaka lengur - fóru ekki að sofa fyrr en um kl 10 - smá von til þess að þeir svæfu aðeins lengur. kannski til rúmlega átta. Sú von var slökkt rétt fyrir hálf átta um morguninn örugg leið til að halda friðinn í smá stund var að setja spólu í tækið og leyfa þeim að borða morgunverð inni í stofu á meðan. Það gekk upp að mestu - við skulum ekkert vera að minnast á jógúrtdósina sem slettist út um allt parketið og upp á sjónvarp.
Bræður fengu morgunverð og svo krosslagði mamman puttana og sjálfa sig í bak og fyrir, sagði bless og hélt af stað í vinnuna. þetta gekk nú allt saman upp - bræður hlýddu öllum reglum og voru komnir til ömmu fyrir hálf níu um morguninn.
11,20 var mamman komin á vorgleðina og 11,30 var hún búin að finna bræðurna. það átti að bjóða þeim upp á pylsur en nei - þeir voru ekki svangir. amma hafði gefið þeim pening. Hr Átvagl var ekki lengi að eyða sínum 500 kr. 1 pylsa = 200 kr - 1 svali=100 og 2xprinspólo=200. Hann var búinn að versla og sporðrenna þessu öllu þegar mamman mætti á svæðið. (Hálftíma seinna sporðrenndi hann einni pylsu í viðbót í boði mömmu )
Hr Aurapúki var ekki alveg svona gráðugur. hann var búinn að spandera í 2xprinspóló = 200 kr og hélt fast utan um 3 hundraðkalla sem voru í afgang. Fékkst ekki til að versla neitt meira Spáði mikið og spökuleraði hvað hann ætti að gera við þennan pening ( það var ekki í boði að versla nammi fyrir hann ) en seinna um daginn náðist samkomulag við mömmu og hann spanderaði í snúða í bakaríinu.
Sól og sumar í gær - rigning í dag. Áttum erindi í höfuðborgina í gær og ákváðum að taka þetta með trompi fyrst við værum þarna á annað borð - fórum í Smáralindina - kringluna og kolaportið. þetta er náttúrulega bilun. Toppuðum þetta með því að fara á skyndibitastað áður en við héldum heim - kvöldmaturinn 'a la Kentökkí. Ég þurfti allavega ekki að elda. Vorum svo upptjúnuð þegar við komum heim rétt um hálf sjö að við rétt hoppuðum inn til að skipta um föt, bóndinn fór í þaksmíði en ég í garðinn. Tveim tímum seinna rankaði ég við mér - ég ætti tvo syni í fyrsta bekk og þeir ættu að mæta í skólann í fyrramálið Sem betur fer komu bræður heim fljótlega. Þeir voru nú ekki alveg á því að fara að sofa ( meiri vitleysan í þessu góða veðri ) en eftir kvöldmat númer tvö þá sáu þeir að háttatími væri kannski ekki svo vitlaus hugmynd.
Bræður fóru í skólann í dag - ekki búnir að lesa staf í lestrarbókunum sínum um helgina. Ég faldi mig bak við rekkann með seriosinu í búðinni í dag svo ég þyrfti ekki að mæta kennaranum hans JA Sonurinn varð hálf skrýtinn í framan þegar ég sótti hann í Skólasel í dag og sagðist hafa falið mig fyrir kennaranum hans, ég væri hrædd um að hún myndi skamma mig fyrir að hafa ekki látið hann lesa um helgina. " mamma kennarinn gerir ekki svoleiðis - hún skammar ekkert mömmur úti í búð " Stráksi las samt extra mikið í kvöld. ( best að hafa vaðið fyrir neðan sig )
Held að svefngalsinn ( og svefnleysi ) undanfarið sé farið að segja til sín.
kv húsmóðirin sem skúraði ægilega mikið á laugardaginn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2008 | 23:10
hver rækallinn
Ég er á vitlausu landshorni - miðað við veðurspá allavega. Best að rífa börnin upp úr rúminu, rota karlinn ( eða skilja hann eftir ) og drífa sig austur. Get borðað morgunmatinn úti í sól og blíðu ef ég legg strax af stað !
![]() |
Næstum óraunveruleg veðurspá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2008 | 16:25
Shir Habatlanim
Eitt skemmtilegasta Eurovision lag allra tíma..........
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2008 | 00:37
Riot Band - Dóri Braga og co
Veit einhver hvort þetta band hefur gefið eitthvað út ?
Eftir tónleikana þeirra á Hammond Hátíðinni hef ég verið nánast friðlaus - mig langar svo að hlusta á meira með þeim.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2008 | 00:18
Home alone !
Merkilegur áfangi í dag hjá JA - hann var einn heima í smá stund. !
Bræður fóru út að leika eftir að við komum heim í dag - fengu að fara á flakk og áttu að koma heim klukkan 6. Allt í lagi með það.
Mamman upptekin heima á meðan og sá svo fram á að ef hún færi ekki í búð fengi enginn kvöldmat. Í því augnabliki kemur JA heim - nennti ekki að leika lengur. Mamman ákvað að treysta stráksa til að vera einn heima og hann hélt nú að það væri lítið mál, ekki laust við stolt í svipnum yfir að vera svona "stór" Til öryggis skrifaði mamma gsm númerið sitt á blað með stórum stöfum.
Mamman labbar í búðina (rösklega, örlítið stressuð yfir barninu heima ), veðrið var gott og bensínið hækkar með hverjum klukkutímanum. - best að spara örlítið.
Stuttu eftir að mamman er komin í búðina hringir stráksi - hann er ennþá aleinn heima ! Á milli þess sem ég róta mjólkurvörum ofan í körfuna spjalla ég við stráksa. Hann ætlar að halda áfram að horfa á barnatímann. Ég hleyp á milli kæla í búðinni og ákveð svo að eiginmaðurinn grilli hamborgara þegar hann komi heim.
2 mín seinna hringir stráksi aftur " Bróðir minn er ekki kominn heim ennþá - ég er búinn að bíða eftir honum í meira en 10 mínútur " erfitt líf. Ég fullvissa stráksa um að ég sé að borga matinn og sé að fara að labba heim. Hann leggur á.
Ég arka heim , þeir sem sáu litla kellingu í eplagrænni flíspeysu með Nettópoka í sitthvorri hendi stika stórum skrefum heimleiðis - þeir voru að horfa á mig
Þegar ég á eftir ca 50 metra heim að húsinu okkar hringir stráksi - hann er ennþá aleinn heima en verður glaður þegar ég segi að ég sé rétt hjá húsinu okkar. Hann er ennþá með símann í hendinni þegar ég kem inn. Hann var nú samt frekar ánægður með sjálfan sig - hann var nú aleinn heima í u.þ.b 20 minútur !!!
Ég er ekki búin að taka hamborgarana upp úr pokanum þegar eiginmaðurinn hringir og lætur mig vita af því að hann hafi tekið að sér aukavinnu og kom ekki heim fyrr en seint í kvöld. Þá var enginn til að grilla - ( ég borða ekki hamborgara og kann ekki að grilla þá ) svo að heimagrilluðum hamborgurum var skipt úr fyrir pizzutilboð. Þegar þarna er komið er hinn týndi bróðir búinn að skila sér heim. Bræður eru sáttir við kvöldmatinn og ekkert mál að bíða einir heima meðan mamma sækir flatbökuna.
Ég fer af stað. Tveimur mínútum seinna er hringt (Akkúrat meðan ég er tala við afgreiðslustúlkuna á pizzastaðnum ) " mamma ég er svo svangur " Ég fullvissaði stráksa um það að ég væri á leiðinni heim - með pizzuna! Var komin heim tveimur mínútum eftir að símtalinu lauk.
Hinn svangi sonur gat nú samt ekki sest að matarborðinu fyrr en 10 mínútum eftir að pizzan var komin á borðið - pizzan gat alveg beðið en ekki barnaefnið í sjónvarpinu.
Frí á morgun - styttist í sumarfrí - síðasti heimalærdómurinn í fyrsta bekk kláraður um helgina - gott veður og svo afmæli hjá skólafélaga á morgun. Lífið er svo sannarlega bara fínt þessa dagana
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2008 | 22:13
Til lukku með það
þau verða sennilega að kaupa sér stærri bíl / eða fleiri bíla - barnapíunum hlýtur að fjölga líka.
![]() |
Angelina og Brad eiga von á tvíburum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
kona á besta aldri
185 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar