28.4.2008 | 12:14
Einn stolinn ( og örlítið klúr )
Einu sinni kom nunna til kvensjúkdómalæknis og sagði: "læknir, það er eitthvað undarlegt með mig. Þegar ég fer á túr, þá kemur ekki bara blóð heldur koma líka frímerki." | ||||||||||||||||
Læknirinn svaraði: "Hmmm, það getur ekki verið. Svoleiðis nokkuð er líffræðilega ómögulegt. Ég verð að fá að sjá þetta. " Nunnan samþykkir það og kemur aftur tveimur vikum seinna til læknisins. | ||||||||||||||||
Læknirinn segir spenntur við hana: "Leggstu hérna á bekkinn og láttu fara vel um þig", rennir stólnum sínum að henni og skoðar náttúruundrið og skellir svo upp úr. Þá segir nunnan frekar pirruð: "Hvað er þetta eiginlega ?" Læknirinn svarar: "Nunna góð, þetta eru ekki frímerki, heldur... | ||||||||||||||||
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.4.2008 | 23:52
Enginn með sjúkrabíl í dag
Ekki úr þessari fjölskyldu - bara svo það sé á hreinu.
Bræður tóku þátt í sínu fyrsta fótboltamóti í dag - " var rústað af 5 liðum" sagði pínulítið svekktur bróðir á leiðinni heim en var samt ánægður með daginn. Liðið spilaði 6 leiki og tapaði öllum. Þetta var hins vegar mjög gaman og bræður ánægðir með daginn. SÁ harkaði af sér og spilaði með. Sá fram á að hann gæti hlaupið og gerði það. Hann ætlaði sko ekki að sitja á einhverjum varamannabekk. Aðstoðarþjálfarinn sem sá um reynsluminna liðið passaði reyndar mjög vel upp á að allir fengju að vera með og var duglegur að skipta mönnum út. Það var fínt - þá gat strákur aðeins hvílt bakið.
Að móti loknu fengu þáttakendur verðlaunapening, pizzu og svala. Það rann bæði fjótt og hratt niður. Við heimsóttum afa á spítalann og SÁ stóð við loforðið um að gleðja afa og vera í Liverpúl bol. það virkaði. Afa líður betur en er bæði fölur og fár. Frekar ræfilstuskulegur og slappur. það verður erfitt fyrir afa að vera sjúklingur og ennþá erfiðara fyrir ömmu að hafa afa sem sjúkling.
Afi þarf samt að fara mjög vel með sig og láta sér batna.
ég sagði bræðrum í kvöld að við ætluðum á annað landshorn fljótlega. Þeim leist vel á það en höfðu áhyggjur af því að þeir hefðu nú engan til að leika við. Ég hef ekki áhyggjur af því að þeim leiðist.
Nú á ég tvo bræður í útlöndum - annar heima hjá sér í Noregi og svo annan sem er að fara að opna útibú frá fyrirtækinu sínu í Póllandi. Ég held samt að hann sé ekki fluttur ! Læt ykkur vita ef hafnfirski bróðir breytist í pólska bróður Þetta hljómar samt eitthvað öfugsnúið - Íslendingar að fara til Póllands til að vinna ????
Jæja - nestisboxin bíða spennt eftir því að verða fyllt - Mánudagur, vinna og skóli framundan !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2008 | 22:37
Fleiri úr stórfjölskyldunni fara með sjúkrabíl
Ekki átti maður nú von á að fleiri fjölskyldumeðlimir færu með sjúkrabíl á einum sólarhring en það á aldrei að segja aldrei. Tengdapabbi veiktist í gær og var fluttur á spítala í nótt. Hann er með slæma lungnabólgu og komin sýking bæði í blóð og þvag Hann er mikið veikur en kominn af gjörgæslu og verður EKKI mættur í vinnuna á mánudag. Við vitum ekki hvað hann verður lengi á spítalanum, það verður bara að koma í ljós.
Þegar SÁ fékk tíðindin, að afi væri á spítala og hann væri veikur þá var fyrsta spurningin " dó hann ?" Nei afi dó ekki. "hjúkk" svaraði þá stráksi, það er ekkert gaman ef afi manns deyr. ( það er ekkert verið að skafa af hlutunum )
Bræður eru að fara að keppa í fótbolta á morgun og eftir það er ætlunin að heimsækja afa í smá stund. Seinna um daginn heyrist svo í stráksa " ég ætla að gleðja afa aðeins þegar við förum að heimsækja hann og vera í Liverpúl búningnum " Hann er handviss að það gleður "púllarahjartað " hans afa að sjá sig í Liverpúl fótboltabúningnum.
Annars eru bræður búnir að eiga góðan dag. Tóku hann frekar snemma ( voru vaknaðir fyrir klukkan sjö í morgun ) og fóru með pabba sínum að Hlíðarvatni þar sem árlegur tiltektardagur veiðifélagsins var. Fyrst tínir maður rusl - svo má veiða. Veiðiguðirnir voru ekki gjafmildir og það fékk enginn fisk. Sama hvort veiðimennirnir voru stórir eða litlir og með dýrar eða ódýrar veiðistangir. - Gengur bara betur næst.
Um tvöleitið voru veiðimenn komnir til baka og fljótlega skildu leiðir - annar fór til veiðifélaga í austri og hinn í vestri. Bræður voru þreyttir eftir daginn og skriðu í rúmið fyrir hálf níu - og voru steinsofnaðir nokkrum mínútum seinna.
Húsmóðirin eldaði lambalæri - ekki samt af nýslátruðu - en það var samt sem áður mjög gott. Býð ykkur öllum í mat annað kvöld þar sem það var svo mikill afgangur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2008 | 22:31
Uppáhaldið hennar Ollu
Bara fyrir Ollu
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2008 | 22:10
úr heimi húsmóður og ferð með sjúkrabíl
Ekkert blogg undanfarna daga þýðir ekki endilega að það gerist ekki neitt. Það er frekar spurning um hvort það sé fréttnæmt það sem er að gerast. Hið daglega líf hljóðar nokkurn veginn svona, vinna, skóli, borða, sofa, læra, leika sér, þvo og þrífa og þar fram eftir götum.
það er komið sumar - eða allavega sumardagurinn fyrsti. Voða gott að fá aukafrídag. Hann var notaður til að þvo gólf, þvo þvott og ganga frá, þrífa baðherbergi og svo frv. það þurfti líka að koma bræðrum á fótboltaæfingu, fara með þá á leiksýningu og bjóða þeim upp á ís. Svo þurfti að láta læra og lesa og síðast en ekki síst - að taka til í herberginu sínu. það gekk ekki þrautalaust.
Ég byrjaði á því um morguninn, rúmlega 10 að sópa saman dótinu sem lá eins og hráviður út um allt gólf í bræðraherbergi, í einn haug og láta bræður vita af því að það sem yrði ennþá á gólfinu þegar þeir færu að sofa um kvöldið færi í poka og út úr herberginu. Bræður gáfu lítið fyrir það. Rúmum klukkutíma seinna ítrekaði ég skilaboðin og þá hófust samningaviðræður af hendi bræðra
" hvað má gera þegar er búið að taka saman ?" ( það þýðir" megum við sem sagt fara í tölvuna þegar er búið að taka saman ?) Mamma gaf ekki grænt ljós á það Bræður ákváðu þá að byrja á verkinu en tóku sér síðan góðan tíma í að rökræða hver ætti að gera hvað. Báðir voru til í að skipuleggja og stjórna en hvorugur var til í að hefjast handa. Mér taldist til að þeir hefðu tínt sitthvora 10 legókubbana upp í kassann. Hvorugur ætlaði að gera meira en hinn. Bræður leika sér hins vegar sjaldan eins vel og þegar þeir eiga að vera að tína saman og það var engin undantekning á því. Ró og friður í bræðraherbergi en minna fór fyrir tiltekt.
Eftir annasaman dag og heimalærdóm voru bræður orðnir ansi þreyttir. Þá minnti ég þá aftur á hvað myndi gerast með dótið sem yrði á gólfinu þegar þeir færu að sofa. Ekki vildu þeir sjá á eftir dótinu í poka svo þeir hófust handa. - við að skipuleggja verkið - og leika sér aðeins í leiðinni. það hafðist að koma öllu í röð og reglu en naumt var það - klukkan átta og tveim mínútum betur var hægt að ganga um gólf í bræðraherbergi án þess að stíga ofan á kubba eða dót. Bræður voru nokkuð ánægðir með sjálfa sig og eftir að búið var að lesa kvöldsöguna liðu ekki margar mínútur þar til þeir voru sofnaðir.
SA fór sína aðra ferð með sjúkrabíl í dag - datt ofan af leiktæki á skólalóðinni og beint á bakið. Þetta var ansi hátt ( 4-5) metrar og hjúkrunarfræðingurinn vildi ekki taka neina áhættu. Sem betur fer var pabbinn að vinna í næsta húsi við skólann og var fljótur á svæðið. Þeir feðgar fóru því sama í sjúkrabílnum til Reykjavíkur. Stráksi var skoðaður hátt og lágt og var bara sprækur. Aumur í bakinu og lurkum laminn en samt ekki verr haldinn en svo að hann vildi frekar fara í skólagæsluna og leika við krakkana heldur en að fara heim með mömmu sinni og láta dekra við sig heima. Stráksi er harður af sér og kveinkar sér ekki en þar sem hann gengur um húsið í staðinn fyrir að hlaupa þá er ég nokkuð viss um að hann finnur til. Það er spurning hvort hann getur tekið þátt í fótboltamótinu á sunnudaginn - það verður bara að koma í ljós.
Ég komst ekki til að kaupa nýja rennilása í flíspeysur af bræðrum - ætlaði að vera ægilega húsmóðurleg um helgina og sauma. kemur í ljós seinna hvað verður.
kv húsmóðirin sem gleymdi alveg að vera hagsýn í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.4.2008 | 12:35
Dramadrottning í húsi mínu.
JA fór með bróður og frændum út að hjóla áðan. Ægilegt fjör en stuttu seinna kemur stráksi skælandi í fylgd stóra frænda inn aftur með uppbretta ermi og sár á hendinni. Mamman setur blautan, kaldan þvottapoka á sárið og meðan hún klippir niður plástur skælir stráksi
" uhuhuuuuu þetta er svo sárt " engin viðbrögð frá mömmunni
" uhuhuhuhu þetta er geðveikt sárt ( í aðeins hærri tóntegund )" ennþá engin viðbrögð frá hinni kaldlyndu móður
" uhuhuhuuuuuu þetta er versti dagur lífs míns skælir stráksi áfram " Hvað segiru elskan mín , er þetta versti dagur lífs þíns - loksins koma viðbrögð frá hinni kaldlyndu móður sem hefur loksins lokið við að klippa niður plástur og setja hann á sárið.
" uhuhuhuhuuuuuu já, heldur stráksi áfram, ég held ég sé að deyja " Þá fannst mömmunni nóg komið, snýtti stráksa og þurrkaði tárin, gaf honum gott knús og sagði honum að sem betur fer þyrfti nú meira til en eina kollsteypu af hjólinu til þess að hann myndi deyja. Stráksi þagnaði, hélt um hendina, fór fram í sófa og lagðist þar. 10 mínútum seinna var kominn tími til að fara á fólboltaæfingu og engin miskunn hjá hinni kaldlyndu móður - við færum hjólandi.
Stráksi sem upplifði versta daginn í lífi sínu og var við dauðans dyr fyrir tæpum klukkutíma er nú á fótboltaæfingu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.4.2008 | 00:21
Hammond hátíð framundan
Árshátíðin búin og voða gaman. Góður matur, góð skemmtiatriði og síðast en ekki síst - skemmtilegt fólk. Það gerist ekki betra. Drengirnir í góðum höndum hjá afa og ömmu í rauða húsinu á meðan.
Það var samt ekki í boði að sofa mikið fram eftir þar sem bræður höfðu fengið boðsmiða í Bíó frá Sparisjóðunum á hinn eina sanna Bubba Byggir. Við vorum því mætt í Smárabíó rétt fyrir klukkan 12 á Sunnudeginum. það besta við sýninguna var hvað hún var stutt.
Tókum svo búðarrúnt bræðrum til lítillar ánægju - Hagkaup - Ikea - Byko - Bónus. Þetta var ekki alveg þeirra uppáhald enda höfðu þeir fengið að vaka fram eftir kvöldi og leika sér í tölvunni í afa og ömmuhúsi. Bræður vakna hins vegar alltaf snemma. Úrillir og svangir bræður í búðarferð er ekki góð blanda og þráðurinn í foreldrunum var farinn að styttast all verulega í annan endann. það lagaðist þó allt eftir heimsókn á American Style !
Bræður eru duglegir að lesa og síðustu tvö kvöld hafa bræður viljað lesa fyrir mömmu sína áður en hún les kvöldsöguna fyrir þá.
Sumir eru meiri töffarar en aðrir.
Ég reyndi að vera ægilega skipulögð og ætlaði að vera ofurgóð mamma. Senda einn bróður í skólasund og eiga smá tíma með hinum bróður í dag. Senda svo hinn bróður á sundæfingu á morgun og eiga þá smá tíma með hinum. það gekk ekki - skólasund fellt niður í dag ( sundlaugin svo köld ) það fór því enginn í sund og tveir með mér heim. ákvað að slaka á steinaldarklónum og gaf grænt ljós á PleiSteisjon þegar búið væri að læra. JA dreif sig í verkið og kláraði það af en SÁ sem þarf alltaf að gera eitthvað annað fyrst var hálfnaður þegar bekkjarbróðir SÁ kom í heimsókn. það var ánægður strákur sem fór í tölvuleik með bekkjarbróður en að sama skapi úrillur strákur sem sat yfir skriftarbókinni sinni að kvöldmat loknum. mamma var ekki í uppáhaldi þá.
Stefnan tekin á Hammond hátíð um mánaðamótin sjá hér - er farin að hlakka til. Ætla ekki að segja bræðrum frá því fyrr en nær dregur. Það er nefnilega svo skelfing erfitt að bíða. Sérstaklega þar sem þeim þykir allt of langt síðan þeir hafa heimsótt afa og ömmu fyrir austan.
Bið að heilsa í bili. húsmóðirin sem bauð upp á kjúklingalasagna í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.4.2008 | 16:48
Mamma - þú eignast ekki fleiri börn
sagði JA við mig eitt kvöldið þegar við kúrðum saman í sófanum eitt kvöldið. " Nú sagði ég hálf hissa á þessari fullyrðingu sem kom alveg upp úr þurru " Af hverju segir þú það ? Drengurinn horfði á mig með einlægni og svaraði svo ´" þú ert orðin svo gömul "
Þá veit maður það ! Annars hafa bræður aldrei sýnt því áhuga á að eignast systkini og JA frekar verið á móti því ef eitthvað er. Þegar hann var milli 3-4 ára spurði ég hann að því hvort honum langaði að eignast lítinn bróður eða systur. Hann hélt nú ekki - hann átti Pó , stubbadúkkuna sína go það var sko meira en nóg. Hann þurfti sko ekki á samkeppni að halda um athygli mömmu sinnar frá neinum smákrakka.
Nú þremur árum seinna er hann enn sömu skoðunnar fyrir utan það að smákrakki myndi stinga öllum kubbunum hans og bílunum upp í sig. Hann hefur sko hvorki löngun né þörf fyrir systkini.
Við hjónin tókum skurk í þrifum í dag og nú get ég slappað af - var farin að óttast að heilbrigðiseftirlitið myndi mæta á svæðið og dæma það óhæft til búsetu. Veðrið er glimrandi gott en bræður eiga eitthvað erfitt með að dunda sér úti við. Við fórum í góðan hjólatúr áðan en útiveran eftir að heim kom entist stutt. Kannski hanga þeir fastar í pilsfald mömmu sinnar en hún gerir sér grein fyrir
er að fara í sturtu og að taka mig til - er að fara á árshátíð í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.4.2008 | 22:02
Mamma
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún mamma, hún á afmæli í dag.
Elsku mamma - til hamingju með daginn.
Aðrir sem eiga afmæli í dag fá líka hamingjuóskir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
kona á besta aldri
185 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1591
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar