8.4.2008 | 22:57
Af hverju
Eru strákar, og menn, búnir til með typpi ? spurði SÁ fyrr í kvöld þegar henn hélt utan um umræddan líkamshluta og pissaði ? Ég skal viðurkenna að ég var of þreytt og alls ekki upplögð til að koma með greinargóða en um leið einfalda skýringu á þessu. Lét duga að segja " hmmm það er nú það " og sem betur fer lét sá stutti það duga.
Dagurinn í dag hefur ekki verið nýttur til húsverka ( það var ekki einu sinni eldað ) Byrjað á því að sækja synina úr skólagæslu og koma öðrum þeirra í skólasund. Heim í smástund, tekið til í eldhúsinu, tekið úr þvottavél, svarað óteljandi "afhverju spurningum frá hinum syninum " og ýmislegt fleira smálegt áður en þurfti að fara út og sækja sundgarpinn. Fórum í verslunarleiðangur og ætluðum að versla "Liverpúl" dót handa afa í rauða húsinu sem á afmæli í dag en fundum ekkert svo við létum litla fótboltabók sem gerir grín að fótbolta duga.
Stoppuðum allt of lengi, mamman borðaði allt of mikið en drengirnir allt of lítið og við komum allt of seint heim - samlokum var skellt í brauðristina, borðað, svo náttföt, tannbursti og beint í rúmið. Það er viðbúið að bræður verði syfjaðir og úrillir þegar þeir mæta í skólann á morgun - og ekkert búnir að lesa
Stóri fór ekki með, heilsufarið hjá honum er frekar slappt. Hann á tíma hjá lækni á morgun.
Til að kóróna allt á ég fund með kennaranum hans SÁ i fyrramálið. Efast stórlega um að hún ætli að hrósa honum fyrir góða og rólega hegðun
Sparaði óvænt - eldaði engan kvöldmat og borðaði bara kökur hjá tengdó í staðinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2008 | 21:54
Svar óskast .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.4.2008 | 22:30
Sparsamasti vinur minn.
Hann segir sjálfur svo frá :
Spara... ég kann leiðir til þess. Ég fer alltaf með konuna og börnin með mér ef ég veit af matarkynningum í Hagkaup, Nóatúni eða öðrum búðum. Búinn að kenna krökkunum að labba alltaf einn hring og fara svo og fá sér aftur, konurnar sem eru að kynna þekkja þær hvort sem er ekki aftur. Annað sem við gripum til, til að spara, var að láta krakkana leika sér við þá vini sem matar var von hjá í kringum matmálstíma. Það hefur gefist vel. Síðan er eitt ráð alveg brilljant til að spara í mat, fyrir þá sem búa á Reykjavíkursvæðinu að fara í allar erfidrykkjur sem hægt er að komast í. Þar er alltaf flott bakkelsi og nóg af því og ef vel er borðað þarf ekkert nema ómerkilegt snarl í kvöldmatinn.
Nú, varðandi bílinn, þá seldum við hann. Höfum komist vel af með bílinn hans tengdó og annarra velviljaðra ættingja. Og það sem meira er, þú færð bílinn lánaðan með bensíni og skilar honum svo aftur tómum. Og ekki er nú bensínið ókeypis eða ég tala nú ekki um tryggingarnar. Svo til hvers að vera að eyða í svoleiðis óþarfa ef hægt er að spara sér það?
Fleiri leiðir eru til að spara en ég læt þessi ráð duga að sinni.
Hann hefur reyndar aldrei boðið mér í mat...........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.4.2008 | 21:27
Fyrir norsku mágkonu
svo hún sé ekki í vandræðum með silfurborðbúnaðinn :
*Gott ráð til að pússa silfrið. Sjóðið vatn og hellið í bala, setjið
álpapparsræmur út í og smá dass af matarsóda og hendið síðan silfrinu
út í.
*Svo er um að gera að slaka á meðan silfrið hreinsast sjálft, ekkert
pússerí og vesen.
Svona gera hagsýnar húsmæður......................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.4.2008 | 00:28
Húsráð
*Ef lím eða vax fer í fötin, setjið dagblað yfir blettinn og straujið
yfir á lágum hita, nær öllu úr.
*Til að ná grasgrænku úr fötum, hellið nýmjólk í blettinn og svo
uppþottarlegi og nuddið saman.
*Fitublettir: hellið kóki í blettinn (passa það sé gos í kókinu) og
látið liggja í c.a. mínútu og svo beint í þvottavélina.
*Tannkrem á silfur, nudda og skola svo með köldu vatni. Tannkrem á
pennastrik og liti á veggjum þrífa það svo af með blautri tusku.
Uppþvottalög á fitubletti í fötum eins og td eftir smjör, Nudda
uppþvottaleginum í og láta hann liggja á í smá stund og smella þessu
svo í þvottavélina
Edik Er sótthreinsandi t.d. Er líka lyktareyðandi, blandaðu
borðediki við vatn og stjúktu innan úr skáp með vondri lykt, eða helltu því í dýnu sem er vond lykt af, eða leggðu illa lyktandi í bleyti eða
settu smá edik í þvottvélina Ég þríf allt með ediki, gólf þurrka
af.... name it! Mjög gott að láta smá dry edik í skál og inní ískáp.
Eins að strjúka innan úr ískápnum með ediki til að losna við vonda
lykt. Edik lyktin fer síðan á örskotstundu, en hún tollir í tuskunni
svo ef þér líkar lyktin illa, hentu þá tuskunni í þvott!
húsmóðurkveðja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2008 | 17:41
Ég var kölluð stelpa í dag *breittbros*
Ákvað að taka jákvæðnisdýfu á sunnudaginn og viti menn. Dagurinn var hinn ágætasti. Ákvað að vera ofurjákvæð í dag og mætti syngjandi í vinnuna í nýju neongrænu flíspeysunni minn: Það vakti nú samt enga sérstaka lukku hjá vinnufélögunum sem horfðu á mig frekar pirruðum augum og spurðu : Á hverju ert þú eiginlega ? Eftir því sem líða tók á morguninn fóru munnvikin á mér að síga aðeins niður á við en þau ruku snarlega upp aftur þegar forstjórinn spyr " er stelpan búin að borga út launin " " Stelpan " sem heldur upp á fertugsafmælið sitt á næsta ári var alsæl með þessa spurningu
Bræður lærðu 1 apríl fræðin greinilega í skólanum í dag því að á leiðinni heim ( fórum gangandi heim aldrei þessu vant ) létu þeir dæluna ganga "
" mamma það er gat á buxunum þínum " - " mamma það er gat á flíspeysunni þinni " - " mamma það er gíraffi fljúgandi upp í loftinu " - " mamma sérðu geitina á bak við þig" og þar fram eftir götum. Ég reyndi að telja þeim trú um að það væri krókódílasteik í matinn. En bræður létu ekki plata sig svo auðveldlega.
Þar sem veðrið var gott ákváðu bræður að fara út að hjóla með mömmu gömlu í eftirdragi.. Stuttu eftir að við lögðum af stað heyrist í JA " Ég ætla að hafa partý á laugardaginn heima" þegar ég fór að spyrja nánar út í það kom í ljos að stráksa þykir allt of langt þar til hann á afmæli og það alveg nauðsynlegt að halda partý í millitíðinni. Veitingarnar eiga að vera popp, kex og kaka. Ég veit ekki við hverjum er boðið né hverjir eiga að sjá um veitingarnar. Allavega er ekki búið að tala við mig.
Sparnaðarráð dagsins : Ef mjólkin eða rjóminn er kominn á dagsetningu þá er um að gera að frysta. Ísmolabox/form eru fín til að frysta rjóma í. Þá er alltaf hægt að kippa 1-2 "molum" ef vantar í sósuna eða súpuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2008 | 21:15
Suðurstrandavegur
Miðaldra karlmenn Þorlákshafnar og Grindavíkur sameinist - loksins er von að fá bundið slitlag á Suðurstrandaveg
![]() |
Nekt skilaði vegabótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2008 | 15:29
Ég er neikvæð akkúrat núna.
bóndinn hamast við að smíða og saga, pússa og klára fráganginn við nýju útidyrnar. Vinnan við það er mun meiri en reiknað var með (svona er að vanda ekki til verka þegar hús eru byggð ). Hann verður því í vinnugallanum í dag. Bræður eru á fótboltaæfingu akkúrat núna, búnir að horfa á barnatímann, búnir að læra og borða þrefaldan morgunverð. ( Á samt von á að matarlystin verði í góðu lagi þegar þeir koma heim af æfingunni )
Af hverju er ég þá neikvæð ? Af því að það er gluggaveður af bestu gerð en SKÍTKALT úti. Sem þýðir að þetta verður innidagur. Innidagar um helgar fara oftast í að stilla til friðar milli bræðra, þrif og önnur heimilisstörf.
Spurning um að halda áfram að vera neikvæð eða taka jákvæðnisdýfu og breyta hugarfarinu !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2008 | 21:19
Rómantík og ástarkort
Rómantíkin hafði smá viðkomu hér eftir kvöldmatinn. Bræður vildu ekki horfa á sjónvarpsfréttir með foreldrum en ákváðu teikna inni í herbergi á meðan.
Stuttu seinna kom JA út úr herberginu aftur, með hendur fyrir aftan bak og glott á andlitinu. " hvora hendina viltu " ? Mamman valdi hægri og þegar stráksi var búinn að finna út hvor hendin var hægri rétti hann mér samanbrotið blað. Á myndinni voru tveir bókstafir og eitt tákn : B E . " mamma elskar pabba " sagði sá stutti og hljóp flissandi í burtu.
Hinn bróðirinn mátti ekki minni vera og ákvað að skrifa líka ástarkort. "MAMMA ", heyrðist kallað úr bræðraherbergi stuttu seinna. " hvernig skrifar maður elska ?" mamman stafaði það samviskusamlega og stuttu seinna kom ástarkortið " mamma ég elska " og teikning af ægilega framúrstefnulegu farartæki með eld aftan úr sér og vopn framan á sér "
Í kjölfarið fylgdu svo fleiri " ástarkort" - ein með mynd af skrímsli ??? ein með mynd af engli ( þetta ert þú mamma ) og svo ein með mynd af stelpu með sítt hár ( þetta ert þú mamma þegar þú varst unglingur )
Ætli ég verði beðin um aðstoð við gerð "ástarkorta" seinna meir ?
Þessi bréf og teikningar verða vandlega geymd
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2008 | 17:34
Ég er á sterum
O já - og meira að segja með læknisvottorð upp á að ég eigi að vera á þeim næsta árið - að minnsta kosti. Ég á að sprauta þeim í nefið - og árangurinn á að verða kverkaskítslaust líf, nef sem er hægt að anda í gegn um, bólgulausir kirtlar og háls og meira að segja nef sem finnur lykt.
Það var góð upplifun að rölta um verslunarmiðstöð seinni part á miðvikudegi, barnlaus og þurfa ekki að hugsa um neitt nema sjálfan sig. Góð tilfinning en það kostaði smá fyrirhöfn að rifja hana upp. Mér tókst að eyða öðru gjafakortinu og fór heim einum buxum, einu belti og einni flíspeysu ríkari.
Lét ginnast af slagorðinu " þar sem íslendingum finnst skemmtilegast að versla " og labbaði einn rúnt í gegn um Hagkaup. Fékk staðfestingu á því að sú skemmtun er ekki ókeypis. Sá að rúsínur ( sama tegund og sama stærð ) sem ég var nýbúin að kaupa í Bónus á 139 kr kosta 202 kr í Skemmtilegu búðinni. Kom svo við í Nóatúni á leiðinni heim og þar kostaði sama vara 179 kr.
"Hagsýnu húsmóðurgenið" fékk svæsið kast inni í skemmtilegu búðinni og ég ákvað að ísskápurinn heima væri ekki svo tómur að hann gæti ekki beðið til morguns.
Bræður eru bara ánægðir með að vera byrjaðir í skólanum aftur. JA er þó ennþá á þeirri skoðun að skólinn væri miklu skemmtilegri ef maður þyrfti ekki alltaf að vera að læra. Drengurinn kom mér aldeilis á óvart í fyrradag þegar við komum heim úr skólaseli. Veðrið einstaklega gott og nýju hjólin biðu óþreyjufull inni í bílskúr eftir bræðrum. Ég spyr bræður hvort þeir ætli út að hjóla smá stund áður en þeir lesi. " Ég ætla að lesa fyrst, það er nefnilega svo leiðinlegt " segir JA Mamman varð greinilega eitt spurningamerki í framan því hann bætti við, "best að klára þetta leiðinlega fyrst svo það sé búið " Jahá - það er greinilegt að það er allavega stundum farið eftir því sem mamma gamla segir.
SÁ er hættur með "broskallabókina" nú er honum treyst til að hegða sér vel. Spurning um hvað það gengur vel. Sá stutti hefur nefnilega verið að færast í aukana með að sýna sig fyrir bekkjarfélögunum og fá þá til að hlægja að sér. Ég hef grun um að kennarinn hans eigi eftir að hafa samband við mig fljótlega.......
Sparnaðarráð dagsins : skera kremtúpur og flöskur í tvennt til að ná afganginum út. ( þið verðið hissa þegar þið sjáið tannkremið sem er eftir í túpunni þegar þið haldið að hún sé tóm"
kveðja frá hinni hagsýnu húsmóður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
kona á besta aldri
185 dagar til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1591
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar