6.11.2011 | 21:54
Ný kona ?
Feðgar sátu allir þrí inni í stofu seinnipartinn og horfðu á Skjá 1 - keppnin "Ungfrú heimur" var á dagskrá og fullt af fallegum konum svifu um skjáinn. Meðan á þessu stóð var ég í eldhúsinu ( nema hvað ) að undirbúa kvöldmatinn þegar annar sonurinn kallar :
" mamma, þú verður kannski reið, en ég held að pabbi sé kannski að fá sér nýja konu "
Mér þótti þetta alveg ástæða til að yfirgefa eldavélina og fara inn í stofu að kanna málið. Sonurinn sat glottandi inni í stofu þegar ég kom og fylgdist með pabba sínum til að sjá hvernig viðbrögðin yrðu.
Jahá, ég skil, sagði ég þegar ég sá hvað þeir feðgar voru að horfa á. En heldur þú að svona ungar konur eins og í sjónvarpinu hafi einhvern áhuga á að giftast manni sem er eins gamall og pabbi ?
" jájá, sagði sonurinn kokhraustur og greinilega staðráðinn í að eiga síðasta orðið, örugglega ef hún verður full !
Ég hef engar sérstakar áhyggjur af því að fyrrum keppendur í ungrú Heimur fari að leggjast í drykkju og áreita eiginmanninn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2011 | 23:19
Feitabollur, bæði litlar og stórar.
Enn og aftur koma fréttir af holdafari landans í fjölmiðlum. Við erum feit, næstfeitust í heiminum. Hr Latibær vill meina að botninum sé ekki náð ennþá, við eigum eftir að verða enn feitari. Það sem verra er, íslensku feitabollurnar verða sífellt yngri.
Ef börnin mín eru eða verða of feit þá verður það ekki af óhollum skólamat. Sem betur fer er ég þokkalega sátt við matinn þar og það er ég sem vel hvort ég kaupi matinn í skólanum eða sendi nesti. Börnin verða of feit því þau borða of mikið af of óhollum mat sem við foreldrarnir sjáum þeim fyrir. Þau eru á okkar framfæri og það er okkar að fóðra þau, hvort sem það er með frönskum kartöflum , kokteilsósu eða lífrænu grænmetis eða baunafæði.
Við foreldrarnir veljum hvort við kaupum í kexskápinn eða ávaxtaskálina. Það erum við sem ákveðum að hafa alltaf salat eða grænmeti með matnum. Það erum við sem ráðum því hvort það eru alltaf majones sósur til í ísskápnum og hvort við bjóðum upp á mat úr öllum fæðuflokkum eða ekki. Það er himinn og haf á milli þess sem börnin mín vilja borða og það sem ég vil að þau borði. Við reynum að fara hinn gullna meðalveg sem gengur svona misjafnlega vel.
Ég hef aldrei komið til USA ( en það stendur til bóta fljótlega ) Það sem ég sé í fjölmiðlum og les er að ameríkaninn sé stæðstur og feitastur og það sé allt svo stórt í Ammeríkunni. Ekki síst maturinn, skammtastærðirnar verði sífellt stærri og stærri.
Tökum gamla prins pólóið sem dæmi. Þegar það kom fyrst fram þá voru tvær stærðir, lítið sem var sennilega 18-20 gr, lítil stöng sem þótti passlegur skammtur fyrir börn og svo stórt sem var sennilega 36 gr og fínn skammtur fyrir fullorðna.
Nú þykir venjulegt prins póló vera 36 gr og stórt (XXL) 52 gr og allt í lagi með það. Það er ekki bara að maturinn sem við borðum sé óhollur og oft einhæfur - fyrir utan það þá borðum við ALLT OF mikið af honum
Þeir sem hafa lesið hina bráðskemmtilegu bók "franskar konur fitna ekki " eru örugglega sammála. Frönsk kona sem hefur búið í USA í mörg ár ber saman þjóðirnar, menninguna og mataræðið og útskýrir á skemmtilegan hátt af hverju Bandaríska þjóðin er svona miklu feitari en sú franska.
Ef Kaninn myndi setjast niður við matarborð á matartímum, gæta hófs, borða minni skammta og fjölbreyttari mat, drekka vatn og hreyfa sig. Þá væri holdafarið annað.
Samkvæmt höfundi bókarinnar þá getur Frakkinn fengið sér eina sneið af köku og notið bæði bragðs, áferðar og þess að borða sneiðina meðan Kaninn leitar ánægjunnar í magninu, finnur hvorki bragð nér áferð meðan hann borðar.
Fyrir mig og mína hefur það verið til góðs að draga úr kolvetna og sterkjuríkum mat eins og brauði, hvítu pasta og hrísgrjónum. Ég baka slatta en nota til þess grófara mjöl og hafra. Og skammast mín ekki fyrir að skammta brauðmetið ofan í þá gaura sem eru staddir hér á kaffitímum. Merkilegt nokk þá fer aldrei neinn svangur hér frá borðinu þó svo stöku herramaður hefði örugglega stundum getað borðað meira.
En betur má ef duga skal. Ég trúi því að offitan og hennar fylgikvillar eigi eftir að verða enn stærra heilsufarsvandamál á Vesturlöndunum en nú er, því miður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2011 | 18:24
Nýr fjölskyldumeðlimur
Byrjaði daginn á því að brosa út að eyrum og fella nokkur tár í leiðinni.
Norski bróður og frú loksins búin að fá dóttur sína í hendurnar. - er búin að skoða myndirnar nokkrum sinnum í dag og alltaf laumast einhver bleyta í augnkrókana.
Elsku Hafdís Ana Ingþórsdóttir, velkomin í fjölskylduna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2011 | 20:16
lífið heldur áfram
hér eins og annars staðar. Allt sinn vanagang eða þannig.
Ég finn að þrek og úthald hjá mér eykst - bara núna síðustu 3-4 vikur sem ég finn virkilegan mun. Að sjálfsögðu gleðst ég yfir því.
Stefni á gönguferðir og meiri hreyfingu framvegis, maður þarf líka að gera svoleiðis til að safna orku og þreki. Glími reyndar við jafnvægisleysi sem gerir gönguferðir stundum erfiðari. Jafnvægisleysið er ekki talið tengjast aðgerðinni/æxlinu í sumar og ég er búin að eiga stefnumót við nýjan lækni út af því.
Umræður við kvöldmatarborðið.
"mamma, næst þegar ég á afmæli ( í október ) og það er skóli, megum við JA þá fá langloku eins og er til í Nettó ( Sómi eða Júmbó) með í nesti " ?
Ég lofaði að taka það til skoðunar á sínum tíma.
"mamma, þegar þú varst á spítalanum og við JA vorum á Djúpavogi, hvar var þá pabbi ? " ( Pabbinn sat við borðið, beint á móti honum "
"Hann var í pössun hjá ömmu í rauða húsinu" svaraði ég.
Neeeeiiiii, sonur trúði því ekki að hinn 47 ára gamli pabbi hefði verið í pössun !
Hugurinn er hjá norska bróður og frú sem eru vonandi búin að fá litla brúna barnið sitt í hendurnar og geta kastað því upp í loft ef þau vilja. ( þeir sem eru búnir að lesa www.ingthor.is skilja hvað ég meina ) Þó ég bíði spennt eftir fleiri bloggfærslum frá þeim þá vona ég að þau séu alls ekki að hugsa um blogg núna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2011 | 21:46
Vikan hefur bæði fært gleði og sorg
Liðin vika hefur verið viðburðarík, svo ekki sé meira sagt. Hún byrjaði með fjölskylduferð til augnlæknis. Eftir tveggja tíma veru hjá augnlækni var niðurstaðan sú að sá stóri þarf að mæta aftur eftir mánuð. Er í áhættuhóp og þarf eftirlit vegna gláku. Annar sonurinn þarf gleraugu. Mamman er með óbreytta sjón og þarf ennþá að nota gleraugu en allt annað er í lagi. Hinn sonurinn er með fína sjón og fengi sennilega nafnið Arnarauga ef fjölskyldan breyttist í indíánafjölskyldu.
Svo kom stóri dagurinn - 10 ára afmælið. Ekki var um hefðbundna veislu að ræða heldur var tveimur bestu vinunum boðið í óvissuferð. - svona þegar væri búið að safna orku með amerískum pönnukökum, köku og öðru gúmmulaði hér heima áður. Við byrjuðum á því að fara í fínu sundlaugina á Álftanesi, heimsóttum svo Ævintýragarðinn í Skútuvogi þar sem pabbinn slóst í hópinn og eftir að var farið í Gokart sem vakti mikla lukku. Þá voru allir orðnir svangir og deginum lauk á Hamborgarafabrikkunni þar sem allir fengu borgara og ís. Og til að tryggja að enginn yrði svangur á leiðinni fengu strákar hamborgaramöffins til að maula á leiðinni heim.
Afmælisbörnin voru ánægð með daginn og fljót að sofna þegar heim var komið. Sama má segja um mömmuna sem var búin á því eftir daginn og sofnuð fyrir hálf tíu.
Daginn eftir fékk ég svo símtal um hið skelfilega slys á Djúpavogi. Síðan þá hefur hugurinn verið meira og minna þar bæði með fólkinu hans og vinum. Hann hefur þó leitað í fortíðina að gömlum og góðum minningum enda við búin að eiga samleið í næstum 40 ár. Eins og aðrir sem til þekkja er maður búinn að vera hálf dofinn síðan maður fékk þessar fréttir og gengur erfiðlega að meðtaka þær að fullu. Blessuð sé minning þín gamli ( þú varst nú tveimur dögum eldri en ég ) nágranni.
í dag fórum við á starfakynningu www.eures.is og vinnumálastofnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur - með aðaláherslu á Noreg. Ekki það að við séum að flytja, allavega ekki á þessu ári, en það sakar ekki að horfa í kringum sig og kynna sér hvað er í boði annars staðar. Ekki lekur bjartsýnin af manni hérna.
Heyrði í norska bróður í kvöld, mikil spenna í gangi og þau hamast við að gera klárt heima fyrir Hafdísi sína um leið og ferðalagið. Væntanlega koma þau með hana heim í byrjun des. Á þessu ári hlakka ég mest til að fá jólakort með fjölskyldumynd Vonandi fæ ég ( og allir aðrir ) að sjá hana á næsta ári. Ég þori nú samt ekki í heimsókn strax, þau verða að fá góðan tíma til að kynnast hverju öðru og litla Hafdís einnig að að kynnast nýju umhverfi og tveimur nýjum tungumálum. En tækninördið hann pabbi hennar verður vonandi duglegur að senda myndir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2011 | 21:57
Það eru að verða 6 ár síðan ég bakaði ljótustu kökur
sem sögur fara af. Þær voru nú samt borðaðar með góðri lyst og mér ekki kunnugt um annað en að bræður eigi góðar minningar um 4 ára afmælisdaginn sinn. Vonandi verður sama minning um 10 afmælisdaginn þrátt fyrir að kökurnar verði ekki alveg eins ljótar og þessar.
Smáralindin átti kannski afmæli í dag en bræður eiga afmæli á morgun og það er sko miklu merkilegra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.10.2011 | 10:48
Hver er ekki glaður ?
og gleðst yfir þessum dásamlegu fréttum
http://ingthor.com
Nú þarf ég að leggjast í hernaðarlegan undirbúning því ég geri ráð fyrir hörkusamkeppni (þar sem verður barist til síðasta blóðdropa) við móðursysturnar þrjár um titilill "besta frænkan "
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2011 | 13:31
ég minnkaði
við það að sækja um endurnýjun á vegabréfi.
Hef verið 162 cm síðustu 20 árin samkv vegabréfi en verð næstu 10 árin allavega ekki nema 159 cm.
Bræður ættu að gleðjast. Þá er ennþá styttra þar til þeir verða stærri en ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2011 | 22:12
kæri dr Gunni - oft hef ég verið sammála þér en aldrei eins og núna.
skyldulesning fyrir tilvonandi, núverandi og fyrrverandi klósettnotendur.
Vinsamlegast lesið greinina um mannasiði sem hann skrifar 4 okt.
eyjan.is/goto/drgunni/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2011 | 21:42
vetrarfrí og starfsdagar
Núna eru liðnar ca 10 vikur af skólastarfi vetrarins. Í dag og á morgun eru starfsdagar svo kemur helgi og þá tekur vetrarfrí við.
Kennarar og starfsfólk notar tímann til að kynna sér skólastarf í Bretlandi. Ég hef ekki móti því að þetta góða fólk sem uppfræðir og annast börnin mín í skólanum kynni sér starfshætti í öðrum löndum. Alls ekki.
Hins vegar nöldra ég yfir því að þetta sé gert í byrjun október - loksins er skóli og íþróttaæfingar farið að renna saman í góða rútínu og þá er það brotið upp. Ég hefði frekar viljað sjá þetta í febrúar eða byrjun mars.
Hugmyndafræðin á bak við vetrarfrí er góð og gild en hún virkar bara ekki í framkvæmd. Í mínum huga er vetrarfrí = tress, vesen og púsl um það hver á að taka frí úr vinnu. Ekki séns að hægt sé að nota þetta frí í einhverja fjölskyldusamveru.
Síðasti dagurinn í vetrarfríi er stóri dagurinn - bræður eiga afmæli. Það var ákveðið að halda ekki veislu fyrir félagana heldur verður tveim vinum boðið í óvissuferð í Reykjavík. Dagurinn endar svo á því hitta pabba í Reykjavík og borða á hamborgarafabrikkunni. til að hafa orku fyrir óvissuferð verður snæðingur af amerískum pönnukökum og fleira góðgæti hér heima áður en við höldum af stað.
Við hjónin vorum ein í húsinu í gær, bræðrum var óvænt boðið í sveitarferð með vini og gistu þeir þar eina nótt. Við svindluðum á heimilisreglunum, borðuðum inni í stofu og drukkum gos með. ( á virkum degi ) Sváfum svo fyrir framan sjónvarpið.
Bræður komu heim um miðjan dag, ánægðir með ferðina. Voru sofnaðir eldsnemma enda höfðu þeir farið seint að sofa og snemma á fætur.
Fjölskylduferð til augnlæknis á mánudag - gláka í báðum "tengdaættum" og fjölskyldumeðlimur innan við fimmtugt kominn með gláku á háu stigi. Frúin hefur ekki farið til augnlæknis í mörg ár og annar sonur telur sig sjá illa. Svo ákveðið var að hafa fjölskylduferð og láta skoða augun í öllum.
Ekki kominn snjór ennþá en töluverð hreyfing verið á logninu undanfarið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
kona á besta aldri
191 dagur til jóla
Mál dagsins
Færsluflokkar
Tenglar
Þetta les ég stundum
vinir og vandamenn
- Norski bróðir
- Sparnaðarráð hinnar hagsýnu húsmóður
- Heiðar
- Bærinn sem ég bý í
- Bærinn sem ég fæddist í
- Hristingsmælingar
- Dr Gunni
Matarblogg úr ýmsum áttum
- Flott og gott Skemmtileg síða sem ég rakst á fyrir tilviljun
- Eva Laufey Kjaran
- Matur sem vinnur gegn krabbameini
- Eldhússögur úr Kleifarseli Svakalega girnilegt
- Síðan hans Axels hjartalæknis
Matarblogg
Uppskriftir og hugleiðingar um mat úr ýmsum áttum
-
Matarblogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar